Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Síða 2
Enn eitt árið er liðið og hraðar
en nokkru sinni. Það verður að
viðurkennast að eftir því sem maður
eldist, því hraðar virðast árin líða.
En árið 2013 var viðburðaríkt þó
það liði hratt.
Margs er að minnast frá árinu og
engan veginn hægt að gera því öllu
skil hér en í mínum huga þá var
margt skemmtilegt sem gerðist og
byrja ég á því að nefna það að í fyrsta
sinn tók meistaraflokkur karla hjá
Víkingi í Ólafsvík þátt í efstu deild
karla í fótbolta. Það að upplifa flest
alla leiki sumarsins og þann góða
stuðning sem liði fékk allstaðar frá
er ógleymanlegt og þrátt fyrir að
maður hefði viljað að árangurinn
hefði verið betri þá náðist að mínu
mati það markmið sumarsins hjá
stuðningsmönnum liðsins, að hafa
gaman af og styðja sitt lið í blíðu
og stríðu. Það eru engar ýkjur að
allstaðar sem Víkingur fór í sumar
þá var eftir því tekið hversu öflugan
stuðning liðið hafði og í lok sumars
voru stuðningsmenn Víkings valdir
bestu stuðningsmenn Pepsídeildar
karla 2013 sem kom mér ekkert á
óvart, svo frábærir voru þeir.
Á árinu tók meistaraflokkur
kvenna hjá Víkingi Ólafsvík í fyrsta
skipti þátt í Íslandsmóti og var afar
gaman að fylgja með þessum góða
hópi sem var að stíga sín fyrstu
skref í meistaraflokki. Uppistaða
hópsins eru ungar stúlkur, ásamt
reynsluboltum, sem eiga framtíðina
fyrir sér í fótboltanum og verður
gaman að fylgjast með þeim á
næstu árum. Það var gaman var
að sjá hversu góð mæting var á
heimaleikina hjá stelpunum og verð
ég að hrósa íbúum á Snæfellsnesi
fyrir góðan stuðning við liðið. Það
er svo mikils virði því kvennaboltinn
hefur átt undir högg að sækja víða.
Það er afar mikilvægt í íþróttum
og í lífinu öllu að gera ekki upp
á milli kynja. Það skiptir miklu
máli að stúlkur og drengir upplifi
að bæði kyn hafi sömu möguleika
að ná árangri í lífinu. Til þess að
svo megi verða þá verðum við sem
eldri erum að hafa það ofarlega
í huga og gera ekki upp á milli.
Skilaboðin mega ekki vera þannig
að stelpur séu komnar til að vera
með en drengirnir til að ná árangri.
Það á ekki að flokka vegna kyns
heldur skulum við styðja alla okkar
einstaklinga til að ná eins langt og
hæfileikar og geta leyfa.
En að öðru. Ólafsvíkurvaka var
haldin á árinu og var gaman að taka
þátt í henni nú sem fyrr. Það er
alls ekki sjálfgefið að einstaklingar
í bæjarfélaginu séu tilbúnir til að
leggja á sig mikla vinnu til þess
að svona hátíð megi verða okkur
öllum til skemmtunar. En í ár eins
og frá upphafi Ólafsvíkurvöku og
þar á undan Færeysku daganna þá
komu fram einstaklingar sem voru
tilbúnir í verkið og langar mig að
þakka þeim fyrir frábæra skemmtun.
Gestir frá vinabæ okkar Vestmanna
í Færeyjum heiðruðu okkur með
nærveru sinni í ár. Gaman var að
fá þau til okkar og er sambandið
við Vestmanna að styrkjast með ári
hverju. Í haust komu svo fulltrúar
frá Færeyska Kommunufélaginu
(sveitarstjórnarsambandsins) til
að kynna sér hvernig við rekum
málefni aldraða hér í Snæfellsbæ
en bæjarstjórinn í Vestmanna situr
þar í stjórn.
Hjá Snæfellsbæ var ýmislegt um
að vera á árinu og þar ber hæst
framkvæmdir vegna breytinga á
sundlauginni í Ólafsvík en þær
framkvæmdir fela í sér að allur
búnaður varðandi sundlaugina er
endurnýjaður og byggð aðstaða
utandyra með heitum pottum og
vaðlaug svo eitthvað sé nefnt.
Hafist var handa við að gera
göngustíg milli Rifs og Ólafsvíkur
og naut Snæfellsbær stuðnings við
það verkefni frá Framkvæmdasjóði
ferðamanna og Vegagerðinni. Þessi
framkvæmd á eftir að verða mikil
lyftistöng fyrir svæðið og ekki
síst þá sem stunda útivist. Þarna
opnast möguleiki fyrir gangandi,
hlaupandi og hjólandi vegfarendur
sem og hestamenn til að stunda sína
hreyfingu við mun meira öryggi en
verið hefur. Bind ég miklar vonir
við þetta verkefni og á von á því að
þessari framkvæmd verði vel tekið
þegar hún verður tilbúin
Nýtt hafnarhús var tekið í notkun
á árinu í Rifi og gerbreytir það allri
vinnuaðstöðu hjá hafnarvörðum en
eldra húsið var barn síns tíma og orðið
ansi lúið. Fleiri hafnarframkvæmdir
voru á árinu og þá ber að nefna
að í Ólafsvík var steypt gatan við
Gilbakka (Suðurþilið) og ýmislegt
fleira var gert í umhverfismálum á
hafnarsvæðunum.
Haldið var áfram með viðhald á
skólahúsnæði Snæfellsbæjar og í
ár var suðuhlið skólans í Ólafsvík
einangruð og klædd en mikil þörf
var á að fara í þessa framkvæmd
til að koma í veg fyrir það að vatn
kæmist inn í skólastofur.
Snæfellsbær ásamt öðrum
sveitarfélögum á Snæfellsnesi var
þátttakandi í svokölluðum Svæðis
garði en vinnu við það verkefni á
að ljúka á á árinu 2014 og þá þurfa
sveitarfélögin að ákveða hvað verði
gert með verkefnið, þ.e. hvernig
framhaldið verði.
Á árinu var sett upp aðstaða í
Engihlíð 18 fyrir leikskólann í
Ólafsvík en sú staða kom upp að
núverandi húsnæði dugði ekki til
að koma öllum börnum sem voru
orðin 2 ára fyrir í leikskóla en með
þessari nýju aðstöðu tókst að koma
öllum börnum á þessum aldri og
eldri fyrir. Sú staðreynd að hér sé
svona mikill fjöldi barna er afar
ánægjuleg og segir í raun mikið um
mannlífið á svæðinu.
Snæfellsbær tók þátt í því að
stækka áhorfendastúkuna við
Ólafs víkur völl með fjárfram lagi
auk annarra minni fram kvæmda
sem þar þurfti að vinna á svæðinu.
Fleiri verkefni er hægt að tína til eins
og verkefni sem hefur vinnuheitið
„Efling á atvinnuSveitavegurinn“
en það verkefni gengur út á það að
efla svæðið sunna megin við Jökul
og er þetta samstarfsverkefni með
sveitarfélögunum á svæðinu.
Ef ég fer nokkrum orðum um fjár
hagsstöðu Snæfellsbæjar þá er hún
nokkuð góð og var skuldahlutfallið
92% sem þykir nokkuð gott hjá
sveitarfélögum á Íslandi og á
árinu 2013 lenti Snæfellsbær í 3
sæti blaðsins Vísbendingar yfir
svokölluð „Draumasveitarfélög“
með einkunnina 7,2 og hafði
hækkað úr 6,8 frá árinu áður.
Vonbrigði ársins snéru að
Gufuskálum. Starf björgunarsveita
um allt land er mikið og oftar en
ekki erum við minnt á hversu
mikilvægt starf sveitanna er og það
er afar ánægjulegt að til sé fólk
sem er tilbúið allan sólarhringinn
að bregðast við þegar kallið
kemur. Því var það afar sérstakt
að að fylgjast með niðurrifi
Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
á rústabjörgunarsvæðinu á Gufu
skálum á árinu. Þessi ákvörðun
forystumanna Landsbjargar er
alveg óskiljanleg, að eyðileggja
eina rústabjörgunarsvæðið sem til
er á landinu og sem af mörgum
var talið eitt af þeim bestu í
heiminum. Á Gufuskálum var
búið að fjárfesta fyrir tugi milljóna
í rústabjörgunarsvæðinu og
komu þangað aðilar til æfinga í
rústabjörgun bæði innlendir og
erlendir. Þessi björgunarpólitík
hjá forystumönnum Landsbjargar
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og
dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og
Grundarfirði. Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 1.100
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Árið er liðið....