SÍBS blaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 6
SIBS-blaðið
Helstu sjúkdómar í
meltingarveginum
Vélinda. Algengastl sjúkdómur í vélindanu er bakflæði (e.
gastro-esophageal reflux disease). Magasýran fer upp í
vélindað í óeðlilega miklum mæli. Ekki er að fullu Ijóst hvers
vegna sumir sjúklingar verða fyrir árás sýru úr maganum.
Áhættuþættir eru m.a. þindarslit (e. hital hernia), þ.e. að
neðri hringvöðvinn í vélindanu nær ekki að koma í veg fyrir
að óeðlilegt magn af magasýru leiti upp í vélinda. Þannig eru
maga-vélindamörkin í brjóstholinu en ekki á mörkum kviðar-
hols og brjósthols. Einnig eykur offita áhættu á bakflæði.
Brjóstsviði er aðaleinkenni við bakflæði en við alvarlegri
sjúkdóm geta sjúklingar fengið magainnihald upp í munnhol
og kallast það einkenni nábýtur í daglegu tali. Samkvæmt
spurningalistakönnunum upplifir stór hluti almennings brjóst-
sviða a.m.k. einu sinni í mánuði. Hins vegar er ekki hægt að
segja að fólk sé með bakflæðissjúkdóm nema einkenni séu
til staðar oft í viku og að þessi einkenni valdi án meðferðar
verulegri versnun á lífsgæðum.
Flestir sjúklingar svara mjög vel meðferð með lyfjum sem
minnka framleiðslu af magasýru. Mjög misjafnt er hversu löng
meðferðin þarf að vera með þessum lyfjum. Ef vélindabólga er
tll staðar er mikilvægt að meðhöndla í fleiri vikur. Ef einkenni
hverfa á þessari meðferð má reyna að stoppa hana. Ef ein-
kenni koma tilbaka þarf sjúklingurinn yfirleitt að byrja aftur á
henni og sumir þurfa lífslanga meðferð.
Hjá sjúklingum sem hafa haft langvarandi sýruárás í
neðri hluta vélinda geta myndast eyjar af frumum sem eru af
tegund þekju sem er í maganum og þolir sýruna mun betur.
Þetta nefnist Barretts slímhúð og hjá sumum geta myndast
frumubreytingar sem geta leitt til krabbameins i vélinda.
Vélindakrabbamein sem tengist magasýruárásum af þessu
tagi og hefur m.a. tengsl við Barretts slímhúð er kirtilmyndandi
krabbamein. Að auki getur myndast flöguþekjukrabbamein
sem þróast út frá frumum sem þekja vélindað og þaðan getur
s.k. flöguþekjukrabbamein myndast. Algengasta einkenni bæði
kirtilmyndandi- og flöguþekjukrabbameins eru kyngingarerfið-
leikar. Slík einkenni eiga að leiða til magaspeglunar.
Magi. Algengasti sjúkdómur í maganum er magasár. Þau
geta tengst langvinnri sýkingu með s.k. magasársbakteríu
(e. helicobacter pylori). Önnur magasár tengjast notkun á
bólguminnkandi gigtarlyfjum eða hjartamagnyl. Báðar þessar
lyfjategundir geta skaðað slímhúð magans og geta valdið
fleiðri (e. erosion) sem er skaði sem einskorðast við slímhúð-
ina og sár sem ná dýpra, eða niður í lagið undir slímhúðinni.
Blæðingar frá sárum geta verið alvarlegar og leitt til sjúkra-
húsinnlagnar og blóðgjafa. Ýmis konar speglunartækni getur
þurft að beita til að stöðva blæðingar, t.d. með heftibyssu
þar sem sárum er lokað með hefti. Einnig er sprautað með
adrenalíni í námunda við sárið og beitt brennslumeðferð
þar sem hitameðferð er beitt með teflon-húðuðum legg sem
þræddur er í gegnum speglunartækið og má líkja við innvortis
straujárn sem hægt er að stöðva með blæðingar. Einnig má
stöðva blæðingu með s.k. argon plasma sem er úðað yfir sárið
og má líkja við einskonar „logsuðu“tæki.
Mjög algengt er að fólk hafi verki eða óþægindi í ofan-
verðum kvið, með eðlilegar blóðprufur og magaspeglun sýnir
eðlilegt ástand. í raun finnst ekki skýring á einkennum og
sjúklingar nefna það ekki ósjaldan að þeir hafi greinst með
„magabólgur". Það er hugsanlegt að einhver þessara sjúk-
linga hafi greinst með magasársbakteríuna en yfirleitt er þetta
ekki rétt, því að í læknisfræðilegum skilningi þarf að taka sýni
úr maga til að greina magabólgur sem valda mjög sjaldan
einkennum.
Fólki með langvinna sýkingu vegna magasársbakteríu
hefur fækkað verulega síðustu áratugina, en um aldamótin
1900 má gera ráð fyrir að 90% hafi smitast af henni sem
tengdist fátækt, lélegu hreinlæti og þröngbýli. Börn sem alast
upp á íslandi nú til dags eru nánast alveg laus við að smitast
af þessari bakteríu og virðist hún vera að hverfa úr samfé-
laginu, en lifir enn meðal eldra fólks. Magakrabbamein var
mun algengara áður fyrr á íslandi en hefur fækkað í takt við
fækkun á tilvist magasársbakteríunnar á þessum tíma. Maga-
krabbamein er fyrst og fremst greint meðal eldra fólks um og
yfir 70 ára. Einkenni eru stundum ósértæk með kviðverkjum,
ógleði og stundum megrun. Uppköst geta verið fyrsta ein-
kenni ef hið íllkynja æxli er staðsett í neðsta hluta magans og
kemur í veg fyrir tæmingu hans.
Smáþarmar. Skeifugarnarsár er algengasti sjúkdómurinn í
smáþörmunum. Sár í skeifugörn eru í flestum tilfell tengd
tilvist magasársbakteríunnar og/eða notkunar á bólguminnk-
andi gigtarlyfjum eða hjartamagnyl. Algengustu einkenni
eru verkir í efri hluta kviðarhols en í mörgum tilfellum leita
sjúklingar á bráðamóttöku vegna blóðugra uppkasta og/eða
hafa tjörusvartar hægðir vegna blæðandi skeifugarnarsárs.
Meðferð skeifugarnarsára er mjög svipuð og þeirri sem lýst er
fyrir magasár hér að ofan.
Annar mikilvægur sjúkdómur í smáþörmunum er glútenof-
næmi. Það hefur margar og fjölbreyttar birtingarmyndir. Áður
fyrr greindust margir sjúklinganna með niðurgang og mikla
vannæringu, en síðustu ár greinast fleiri mun fyrr sem hafa
t.a.m. járn- og vítamínskort þar sem læknar nútildags eru
meira vakandi fyrir sjúkdómnum. Greiningin byggist fyrst og
fremst á að taka sýni úr skeifugarnarslímhúð sem sýnir fram
á að þarmatoturnar hafa minnkað að umfangi og í alvarlegum
tilfellum eru þær varla sýnilegar í smásjárskoðun. Meðferðin
byggist á mataræði sem ekki inniheldur glúten. Eftir að hafa
fylgt því mataræði vaxa þarmatoturnar upp í eðlilegt horf og
þarmaslímhúðin getur þá framfylgt sínu hlutverki á viðunandi
hátt með því að stuðla að frásogi næringarefna.
Bólgusjúkdómar geta átt sér stað í smáþörmun og er s.k.
Crohns sjúkdómur algengastur. Sjúkdómurinn er lúmskur
og oft eru til staðar ósértæk einkenni s.s. þreyta, óþægindi í
kviðarholi, ógleði og krampakenndir verkir eftir máltíð. Rann-
sóknir hafa sýnt að oft tekur það langan tíma fyrir sjúklinga
að leita læknis eftir að þeir fá fyrst einkenni sem leiða síðar
til greiningar á sjúkdómnum. Það getur líka vafist líka lengi
fyrir læknum að greina sjúkdóminn þar sem sjúkdómurinn er
■> } Lífeyrismál.is
▼ UPPLÝSINGAVEFUR UH LÍFEYRISMAL
Landsvirkjun
6