SÍBS blaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 8

SÍBS blaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 8
SÍBS-blaðið lúmskur og oft er í fyrstu talið að um sé að ræða s.k. starfræn einkenni frá meltingarvegi. Margfalt algengari en Crohns sjúkdómur er iðraólga (e. irritable bowel syndrome, IBS), stundum einnig kallað „ristilkrampar“ (sjá nánar að neðan). Æxli, bæði góðkynja og íllkynja eru sjaldgæf í smáþörmum. Þó geta komið fyrir í sjald- gæfum tilfellum kirtilfrumuæxli, tauga/hormónafrumuæxli og eitilfrumukrabbamein, t.d. tengt ómeðhöndlaðu glútenof- næmi. Ristill. Áðurnefnt IBS er lang algengasta sjúkdómsástand sem leggst á meltingarfærin. IBS sem er svo nefndur meðal lækna virðist ekki vera jafn vel þekktur meðal almennings. Flest fólk þekkir til „MS“ ( e. multiple sclerosis) sem er mun sjald- gæfari sjúkdómur en IBS. IBS heilkennið er ekki einskorðað við ristilinn enda stendur B-ið í skammstöfunni fyrir „bowel" en ekki „colon" heilkenni, sem þýðir í raun að heilkennið nær yfir eða getur náð yfir allan meltingarveginn frá vélinda og niður í endaþarm. Um er að ræða starfræna truflun sem er af óþekktri orsök, þar sem hreyfingar og/eða skynjun í görninni eru talin afbrigðileg. Heilkennið er greint hjá þeim sem hafa haft langvarandi meltingareinkenni, sem hafa staðið yfir í marga mánuði og yfirleitt árum saman. IBS einkennist af verkjum og/eða óþægindum í kvið með hægðabreytingum, niðurgangi og/eða hægðatregðu. Verkirnir versna þegar sjúklingurinn er í fasa með meiri niðurgangi eða hægðatregðu. Einnig versna verkir og uppþemba eftir máltíð en batna þegar sjúklingurinn tæmir ristilinn. Samkvæmt skil- greiningu eru blóðprufur og speglunarrannsóknir eðlilegar. Hægðatregða án verkjavandamála í kviðarholi er líka mjög alengt vandamál. í flestum tilfellum er um að ræða s.k. „Iatan“ ristil og talið orsakast af fábreytilegum og slökum þarma- þreyfingum. Bólgusjúkdómar í ristli eru aðallega fjórir: sáraristil- bólga, Crohns sjúkdómur, smásæ ristilbólga (e. microscopic/ collagenous colitis) og ristilpokabólga (diverticulitis). Sáraristilbólga einkennist af bólgu í slímhúð ristilsins sem er mjög mismunandi svæsin og nær til mismunandi hluta ristils- ins. í versta falli er um að ræða svæsna bólgu í ristilinum frá endaþarmi og upp allan ristilinn fram að lokunni milli ristils og efsta hluta ristilsins. Dæmi um mildara form er væg bólga sem nær bara til nokkurra sentrimetra í endaþarmi. Oft er bólgan við Crohns sjúkdóm staðsett á mörkum neðsta hluta smáþarmanna og efsta hluta ristilsins. Hvimleiður kvilli er s.k. smásæ ristilbólga (e. microscopic colitis) sem lýsir sér með langvinnum vatnskenndum niður- gangi sem getur leitt til mikillar skerðingar á lífsgæðum. Greiningin byggist á því að taka sýni úr ristilslímhúðinni sem lítur eðlileg út en í smásjá kemur fram bólga. Þessi bólgu- sjúkdómur svarar hjá flestum vel meðferð með steragjöf en sterarnir verka staðbundið í ristlinum. Ristilpokabólga, líka nefnd sarpabólga er nokkuð algengur sjúkdómur í ristlinum. Pokar sem eru nokkurs konar útbung- anir fyrst og fremst í vinstri hluta ristils byrja að myndast yfirleitt upp úr fertugu. Það getur myndast sýking í þeim sem lýsir sér með verkjum og eymslum í vinstri neðri hluta kviðar, hita og hækkuðum bólgumerkjum í blóði. Stundum er nóg að fasta í nokkra daga en þörf getur verið á sýklalyfjum í stuttan tíma. Ristilpokar eru til staðar hjá a.m.k. 70-80% einstaklinga 60 ára og eldri en ekki er vitað hvers vegna einungis örfá % þeirra virðast geta þróað með sér bólgu. Einnig geta átt sér stað blæðingar frá þessum ristilpokum sem oftast leiðir til umtalsverðrar blæðingar á fersku blóði um endaþarm. Þetta er algengasta orsök blæðingar frá neðri hluta endaþarms sem leiðir til sjúkrahúsinnlagnar. Langflestir hafa góðar horfur og hætta að blæða af sjálfu sér en þurfa oft á föstu að halda og vökvagjöf í æð. Ristilkrabbamein er með algengustu krabbameinum á íslandi, með u.þ.b. 150 ný tilfelli á ári. Einkenni eru að mestu leyti tengd blæðingum frá meltingarvegi, annað hvort sýnileg fersk blæðing frá vinstri hluta ristils eða dulin blæðing sem ekki sést með berum augum en veldur járnskorti. Lifur og gallvegir. Sjúkdómar í lifur geta ýmist verið langvinnir eða bráðir. Algengasti sjúkdómurinn sem sækir á lifrina er s.k. fitulifrarkvilli sem ekki tengist óhóflegri áfengisneyslu. Fita safnast í lifrina mest megnis sökum offitu og efnskipta- villu. Yfirleitt eru sjúklingar einkennalausir og aukið magn fitu sést á myndgreiningarrannsóknum og/eða að sjúklingarnir eru með hækkuð lifrarpróf sem merki um að lifrin sé undir álagi. Hjá flestu fólki veldur fitulifur ekki einkennum eða afleiðingum. Hins vegar þróar hluti fólks bólgu í lifrarfitunni og hjá þeim getur myndast örvefur og í versta falli skorpulifur. Orsakir fyrir skorpulifur eru í 30-40% tilfella af völdum áfengis en u.þ.b. 25% vegna fitulifrarkvilla sem ekki tengist ofnotkun áfengis. Fjölmargir aðrir langvinnir lifrarsjúkdómar geta valdið skaða á lifrinni s.s. sjálfsofnæmislifrarbólga og langvinnir sjúkdómar sem valda bólgu í litlum og stórum gallvegum. Annars vegar er um að ræða PBC (e. primary biliary cholangitis) og hins vegar PSC (e. primary sclerosing cholangitis). Sjúkdómar sem tengjast ofhleðslu af járni og kopar geta líka valdið skaða á lifrinni. Langvinn lifrarbólga B og C geta valdið skorpulifur og eykst áhættan ef einstaklingur með þessa langvinnu lifrarbólgusjúkdóma drekkur of mikið áfengi. Varðandi áfengi og lifur, eykur stöðug drykkja þegar áfengisdrykkjunni er dreift á fleiri daga áhættu á skorpulifur. Bráðir lifrarsjúkdómar geta líka orsakast af veirum, t.d. lifrarbólga A sem smitast með saurmenguðu vatni eða mat- vælum, lifrarbólga B sem smitast með blóði eða við kynmök og lifrarbólga C sem smitast fyrst og fremst með blóði, t.d. óhreinum sprautunálum. Flestir sem fá í sig lifrarbólgu- veirurnar B og C fá langvinna lifrarbólgu en hjá hluta sjúk- linga geta þær valdið bráðri lifrarbólgu. Önnur tegund af bráðum lifrarskaða er af völdum lyfja. Oftast er um sjaldgæfa aukaverkun að ræða sem getur orsakast af mörgum mismunandi lyfjum. Flest lyf sem orsaka lifrarskaða valda ófyrirsjáanlegum skaða en bein eitrunaráhrif tengjast of háum skömmtum af parasetamóli. Algengasti lyfjaflokkurinn sem valda lifraskaða eru sýklalyf. Algengustu einkennin eru gula og kláði. Oftast lagast lifrarstarfsemin ef töku lyfsins er hætt en í mjög sjaldgæfum tilfellum getur sjúkiingurinn þróað með sér bráða lifrarbilun. Við bráða lifrarbilun getur þurft að framkvæma lifrarígræðslu en flestir 8

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.