SÍBS blaðið - 01.10.2022, Page 10
SÍBS-blaðið
Fæði án mjólkursykurs
Mjólkursykur er tvísykra
sem finnst í mjólk spendýra.
í móðurmjólk eru um 7,2 g í
100 ml en 4,7 g í 100 ml af
kúamjólk. í meltingarveginum
er mjólkursykurinn síðan
^ M brotinn niður í smáþörmum
T r JP fyrir tilstilli ensímsins
laktasa. Ef að þetta ensím
er ekki til staðar eða í of
litlum mæli brotnar mjólkur-
sykurinn ekki eða illa niður,
hann dregur að sér vökva
sem hækkar vökvainnihald
og magn þess sem er í
meltingarveginum sem veldur
uppþembu, óþægindum
og niðurgangi. Að auki fer
ómeltur mjólkursykur niður í
ristilinn þar sem hann gerjast
fyrir tilstilli baktería og við
það myndast stuttar fitusýrur
og loft. Þetta ferli leiðir til vindgangs og uppþembu sem er
einkennandi hjá þeim sem þola illa eða ekki mjólkursykur. Til
að sannreyna hvort að mjólkursykuróþol er til staðar eru gerð
sértæk öndunarpróf.
Fríða Rún Þórðardóttir
næringarráðgjafi, næringar-
fræðingur, Landspítala og sjálf-
stætt starfandi. Formaður Astma-
og ofnæmisfélags íslands.
Hægt er að kaupa Laktasatöflur sem settar eru í mjólk/
mjólkurvörur sem neyta á, og látið standa í 12-24 klst. til að
brjóta mjólkursykurinn niður fyrir neyslu. í dag, með öllu því
vöruúrvali sem í boði er, ætti þessi aðferð að vera óþörf.
Þeir sem ekki þola mjólk og mjólkursykur og þurfa að taka
lyf, ættu að kanna vel með sínum lækni hvort að mjólkur-
sykur leynist nokkuð meðal innihaldsefna lyfsins.
Óþol eða ofnæmi?
Það að þola ekki mjólkursykurinn, öðru nafni laktósa, er
annað en að þola ekki mjólkurpróteinin. Þegar mjólkur-
sykurinn þolist ekki kemur það meira fram sem óþægindi í
meltingarvegi enda köllum við það óþol á meðan ofnæmið
er heldur alvarlegra og getur leitt til útbrota á húð og upp í
alvarlegt ofnæmislost (e. anaphylaxis) þar sem sprauta þarf
með adrenalíni og flytja undir læknishendur. Óþolseinkennin
koma aðallega fram í meltingarvegi og þá sem magaónot,
kviðverkir, loftangur, maga krampar, óregla á hægðum og
niðurgangur. Einnig geta einkenni eins og þreyta, höfuð-
verkur, vöðva- og liðverkir, slappleiki, einbeitingarskortur,
ógleði, húðeinkenni, sár í munni og þvagvandamál gert vart
við sig.
Þeir sem þola ekki glúten og lenda í versnun á ástandi
þola oft ekki mjólkursykurinn vegna þess að þarmarnir eru í
slæmu ásigkomulagi. Það gengur oftast til baka þegar þarm-
arnir jafna sig og glúten alveg útilokað úr mataræðinu.
Mjólkursykuróþol
Mjólkursykur er nokkuð algengur óþolsvaldur á Islandi og
á Norðurlöndunum og hafa aðrar þjóðir en við hér á íslandi
haft aðgengi að fjölbreyttu úrvali af vörum án hans í áratugi.
Þó svo að þekkingin hafi verið til staðar þá hófst framleiðsla
og sala á jógúrt, skyri, AB mjólk og fleiru ekki fyrr en ARNA
í Bolungarvík hóf starfsemi árið 2013. Upp úr því fór Mjólk-
ursamsalan einnig að framleiða slíkar vörur þannig að fram-
boðið á vörum jókst mikið á stuttum tíma, eða úr því að vera
aðeins fastur ostur (sem inniheldur aðeins próteinhlutann)
og íslenskt smjör í það að vera drykkjarmjólk, jógúrt, skyr, AB
mjólk og súrmjólk, sýrður rjómi, mjólkurdrykkir og prótein-
drykkir, fetaostur og smurostar. Rétt er þó að taka fram að
létt súrmjólk og AB mjólk þoldist hjá sumum þar sem gerlarnir
í vörunni brutu niður mjólkursykurinn á náttúrulegan máta,
og áður notaðist fólk við sojamjólk, sojajógúrt og baunajógúrt.
Orðin sem við notum gjarnan um þær vörur sem um ræðir
eru: mjólkursykurfrítt, mjólkursykursnautt, mjólkursykurlaust,
laktósasnautt, laktósalaust og laktósafrítt.
Hvaða vörur ber að forðast þegar mjólkurofnæmi er til staðar:
Mjólk, undanrennu, súrmjólk, geitamjólk, sauðamjólk, Stoð-
mjólk, rjóma, sýrðan rjómi, jógúrt, skyr, ost, smurost, rjóma-
ost, kotasælu, mysing, smjör, smjörva, mysu, mjólkurduft,
mysuduft/mysuprótein, próteindrykki úr mjólk, ís. Morgun-
korn, tilbúnir réttir, eftirréttir, súpur, sósur, súkkulaði, sæl-
gæti, kex, kökur.
Jurtaostar og jurtarjómi eru ekki endilega mjólkurlaus,
mikilvægt er að lesa vel innihaldslýsingar.
Hráefni í tilbúnum / samsettum matvælum:
Mjólkurprótein, undanrennuduft, mjólkurduft, mysuprótein
(whey, valle), kasein (casein, caseinates), mjólkursykur/
laktósi (lactose, mælksukker), buttermilk.
Þær vörur sem nota má í staðinn þegar
mjólkurofnæmi er til staðar:
Sojamjólk, sojajógúrt, baunajógúrt (e. pea) gerð úr ertum.
Möndlumjólk og haframjólk t.d. Oatly, rísmjólk (e. ricemilk) og
► *
\WREVf7£Z/
5 88 55 22
STRACTA
HÓTEL
☆☆☆☆
TBGehf
10