Bæjarblaðið Jökull - 18.12.2014, Blaðsíða 7
Kór Ingjaldshólskirkju var
með opna æfingu í safnaðar
heimili Ingjalds hólskirkju
þriðju daginn 9. desember
síðast lið inn. Ágætasta mæting
var á þessa opnu æfingu þó
veður spáin hefði ekki verið upp
á það besta. Kórfélagar fluttu
jóla lög af ýmsu tagi á þessari
opnu æfingu og slógu á létta
strengi á milli laga ásamt nýjum
kórstjóra Elenu Makev en hún
tók við kórstjórninni af Kay
Wiggs sem lét af störfum í vor.
Var þetta hin skemmtilegasta
kvöldstund sem endaði á því
að bæði kórinn og gestir sungu
saman. Að því loknu var boðið
upp á kaffi, smákökur og spjall.
Sátu bæði kórfélagar og gestir
í mestu makindum að spjalli
þegar veðrið breyttist nánast á
sömu mínútu. Rauk fólk þá til
og ætlaði að drífa sig heim, en
svo blint var fyrir utan kirkjuna
og hvasst að fólk treysti sér ekki
af stað. Var ákveðið að hringja
í Björgunarsveitina Lífsbjörgu
og biðja um aðstoð. Á meðan
beðið var eftir aðstoðinni
birti aðeins til og í samráði
við Magnús Emanúelsson var
ákveðið að allir færu saman
af stað í halarófu. Gekk
heimferðin vel þrátt fyrir að
blint væri á köflum. Þess má geta
að vindhraði fór úr 6 metrum
í 28 metra og 38 í kviðum á
Gufuskálum á mjög stuttum
tíma. Ævintýri heimferðarinnar
skyggðu þó ekki á skemmtilega
kvöldstund og söng Kirkjukórs
Ingjaldshólskirkju.
þa
LJÓSABEKKIR TIL SÖLU
Til sölu eru tveir ljósabekkir,
annar þarfnast viðhalds.
Óskað er eftir tilboðum
í annanhvorn eða báða.
Upplýsingar í síma 436 1217
Nærri veðurteppt á æfingu
Skötuhlaðborð
á Þorláksmessu klukkan 11:30-14:00.
Verð kr. 3.900,- á mann
Borðapantanir í síma 618-0083 eða jon@hotelhellissandur.is
Reyktur lax
Grafinn Lax
Síld
Gellur
Reyktur fiskur
Saltfiskur
Kæst skata
Hnoðmör
Hamsar
Brauð og fl.
HRAUN
R e s t a u r a n t - C a f é
HRAUN
R e s t a u r a n t - C a f é
HRAUN
R e s t a u r a n t - C a f é