Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 18.12.2014, Page 11

Bæjarblaðið Jökull - 18.12.2014, Page 11
Nú er ár liðið frá íbúaþingi sem haldið var á vegum Grundar­ fjarðarbæjar í nóvember í fyrra og því ekki úr vegi að rifja upp helstu skilaboð íbúa og hvernig þeim hefur verið fylgt eftir. Á þinginu voru flutt erindi um sjávarútveg, ferðaþjónustu, Svæðisgarðinn Snæfellsnes, menntun og málefni ungs fólks og eldri borgara. Þátt tak endur stungu síðan upp á um ræðu­ efnum sem rædd voru í hópum. Í samantekt um íbúaþingið er sagt frá erindunum og niður­ stöðum umræðuhópa. Eftir þingið fór stýrihópur yfir hug­ myndir sem fram komu og gerði tillögur um eftirfylgni, sem bæjarráð fjallaði um. Sumt var einfalt að framkvæma og annað stærra og flóknara og þarf lengri tíma. Einhverjar hugmyndanna eiga ekki eftir að verða að veru­ leika og aðrar snúa að félaga­ samtökum, fyrirtækjum og stofn unum, t.d. skólunum og eru í þeirra höndum. Sem dæmi um atriði sem hafa verið framkvæmd má nefna að hjólabrettarampur var settur upp á skólalóð grunnskólans og haldinn var tiltektardagur. Opnunartími sundlaugar var lengdur, en draumurinn um heilsársopnun er háð nýjum og ódýrari lausnum í kyndingu. Vetrarnýting íþróttahúss hefur aukist, m.a. með íþróttaskóla barna. Verið er að efla starfsemi ungmennaráðs og verður á næsta ári lagt aukið fjármagn í starf félagsmiðstöðvarinnar Eden. Aðstaða við Kirkjufellsfoss hefur verið bætt til muna. Sögumiðstöðin stendur öllum til boða fyrir félagsstarf, ungum sem öldnum og hug­ myndir um þjónustu bóka­ safnsins eru í traustum höndum for stöðumanns. Uppi eru hugmyndir um að Svæðisgarðurinn Snæ fells­ nes muni halda utan um ýmis þróunarverkefni í ferða þjón­ ustu, þar með afþreyingu fyrir far þega skemmtiferðaskipa. Brátt kemur að endurskoðun aðalskipulags og þar verður m.a. mörkuð stefna um göngustíga og útivistarsvæði innan bæjar og utan. Steinatjörn var fólki ofarlega í huga á þinginu og virðast bæði ungir og aldnir Grundfirðingar sakna tjarnarinnar. Tjörnin er hluti af stærra vatnakerfi og flókið að finna lausn sem hentar og kostar ekki of mikið, en er til skoðunar. En það er ánægju­ legt að segja frá því að styrkur fékkst frá Menningarráði Vestur­ lands til að hanna Paimpol­ garðinn, í samstarfi við Land­ búnaðarháskólann á Hvanneyri og munu tillögur liggja fyrir í vor. Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015. Aðveitustöð – Aðalskipulagsbreyting Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 11.desember 2014 að auglýsa „Lýsingu“ samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meginmarkmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu með færslu tengivirkis í aðveitustöð og lagningu jarðstrengja, auk þess að færa tengivirki fjær íbúðarbyggð. Markmiðið er einnig að breytingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma. Sjá nánar í lýsingu. Lýsingin verður aðgengileg á veg Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 17. desember 2014 til 8. Janúar 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður eða á netfangið bygg@grundarfjordur.is í síðasta lagi 8. janúar 2014 Auglýsing um nýtt deiliskipulag vestan Kvernár - Aðveitustöð. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 11.desember 2014 að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er áætlað fyrir eina iðnaðarlóð og aðkomu að henni. Á lóðinni sem er 4.900m² að stærð, er heimilt að reisa allt að 620m² byggingu. Hámark- shæð húss er 9.25m frá gólfi jarðhæðar. Skipulagssvæðið sem er rúmir 7.6ha er suðaustan þéttbýlisins og liggur á milli ánna Gilóss og Kvernár. Sjá nánar í deiliskipulagstillögu og greinagerð. Deiliskipulagstillagan og greinagerðin verður aðgengileg á veg Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 17. desember 2014 til 29. janúar 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér deiliskipulagið og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundar- fjörður, í síðasta lagi 29. janúar 2014 Auglýsing um Breytingu á deiliskipulagi Framness. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 11.desember 2014 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felst í sameiningu lóða 4b og 6 á Nesvegi í lóð 6. Lóðarmörk lóðar 4 breytist jafnframt á móti lóð 6. Nýtingarhlutfallið breytist úr 0.90 í 0.95. Mesta leyfilega hæð mannvirkis verður 16m. Sjá nánar upplýsingu á breytingu á deiliskipulagi. Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á veg Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 17. desember 2014 til 29. janúar 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundar- fjörður, í síðasta lagi 29. janúar 2014 Sigurbjartur Loftsson Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði. Ári eftir íbúaþing

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.