Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Side 1

Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Side 1
Það er alltaf gleðiefni þegar að nýir bátar koma í heimahöfn. Útgerðarfélagið Bjartsýnn í Ólafsvík hefur gert út bátinn Brynju SH síðan árið 2006. Þá var sá bátur keyptur sem 6 tonna bátur og settur í gríðarlega mikla breytingu í Bátahöllini á Hellissandi. Var báturinn lengdur þar um 3 metra, breikkaður um 30 cm og brúin hækkuð um 30 cm. Við þessar breytingar stækkaði báturinn úr 6 BT og upp í 15 BT. Vel gekk að fiska á bátinn og t.d á makríl vertíðinni 2014 var Heiðar Magnússon skipstjóri ásamt einum öðrum sem réri á bátnum aflahæstur allra handfærabáta á makrílnum. Útgerðarfélagið gekk nýlega frá kaupum á nýjum báti og kom hann til Ólafsvíkur um helgina en fór strax aftur suður og þegar að haft var samband við Heiðar vegan þessara skrifa á mánudag þá var hann á veiðum skammt utan við Grindavík. Bar hann nýja bátnum vel söguna, hann var þá búinn að sigla honum frá Hafnarfirði vestur til Ólafsvíkur og þaðan alla leið suður aftur. Nýi báturinn er nokkuð gangmeiri en sá gamli og hét áður Steinunn HF, smíðaður árið 2010 (gamli var smíðaður árið 1995). Nýi báturinn er nokkuð lengri og breiðari en gamli, er hann 12,45 metrar á lengd miðað við 11,98 á þeim gamla. Breiddinn er 3,74 metrar á móti 3,38 metrum. Sömuleiðis er stærri vél í honum. 455 hestafla vél á móti 254 hestafla vél í gamla bátnum. Þó sagði Heiðar að lestin í nýja bátnum tæki jafn mörg 660 lítra kör og í gamla bátnum. Nýja Brynja SH er hálfyfirbyggð sem er mikill munur frá þeim gamla. Reyndar sagði Heiðar að hann muni róa á gamla bátnum sem núna heitir Brynja II SH á makrílnum í sumar, því makríl­ búnaðurinn er sérsniðin fyrir bátinn og yrði það ansi dýrt að búa til og hanna nýjan makrílbúnað í nýja bátinn. Þess má geta að þegar að báturinn hét Steinunn HF þá átti báturinn feiknarlega gott ár, árið 2013 en þá fór aflin hjá bátnum yfir 1000 tonnin. Í apríl og maí það ár þá mokveiddi báturinn á steinbítnum og setti þá íslandsmet í mestum afla smábáts undir 15 BT. Því að báturinn landaði 232,6 tonn í 24 róðrum og kom mest með 17,3 tonn að landi í einni löndun. Maí var líka góður en þá landaði báturinn 174 tonnum í 21 róðri og kom þá mest með 18,7 tonn að landi. Myndina tók Kjartan Hallgrímsson. Gísli Reynisson Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ Sími: 410 4190 Netfang: 0190@landsbankinn.is Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Ný Brynja SH til heimahafnar 691. tbl - 15. árg. 26. mars 2015 PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR Í félagsheimil Grundarfjarðar, föstudagskvöldið 27. mars kl 21:00 Skoðaðu Facebook viðburðinn Pétur Jóhann í Grundarfirði Jökull fer í páskafrí til 16. apríl.

x

Bæjarblaðið Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.