Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Blaðsíða 11

Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Blaðsíða 11
Bókasafn Snæfellsbæjar auglýsir: Bókasafn Snæfellsbæjar verður lokað frá og með 27. mars til 9. apríl 2015 (um páskana). En dagana 30. mars (mánudag) og 1. apríl (miðvikudag) verður opið frá kl. 16 til 18. Gleðilega páska Sveitarfélögin fimm á Snæ­ fells nesi munu í ár taka virkan þátt í svokallaðri Jarðarstund eða Earth Hour. Um er að ræða alþjóðlegan viðburð sem fer fram í lok mars ár hvert á milli klukkan 20:30 og 21:30 þegar þátttakendur slökkva öll ljós. Markmiðið er að vekja athygli á loftslagsbreytingum af manna­ völdum, orkunotkun og ekki síst því að gjörðir hvers einstaklings telja. Í fyrra tóku 7001 borg í 154 lönd um þátt. Þátt taka sveitarfélaganna á Snæ fells nesi felur í sér að slökkt verður á götu lýsingu þar til klukkan 21:30 í samstarfi við RARIK. Auk þess verður lögð áhersla á að slökkva ljós í þeim stofnunum á vegum sveitarfélaganna þar sem því verður við komið. Við hvetjum íbúa til þess að taka þátt í verkefninu, slökkva ljósin heima hjá sér og njóta stundarinnar með fjölskyldu og vinum án rafmagnslýsingar, sjónvarps og tölva. Sönnum nú hið forkveðna að margt smátt gerir eitt stórt og myrkvum Snæfellsnes saman! #EarthHourSnæ #EarthHour Theódóra Matthíasdóttir, umhverfis- fulltrúi Snæfellsness (theo@nsv.is) Myrkvað Snæfellsnes Viðvera fulltrúa sýslumanns í Grundarrði Fulltrúi sýslumanns verður með viðveru á lögreglustöðinni í Grundarrði frá 10:00-14:00 dagana 9. apríl og 7. maí   Ólafur K. Ólafsson Sýslumaðurinn á Vesturlandi SÝSLUMAÐURINN Á VESTURLANDI BORGARBRAUT 2 · 340 STYKKISHÓLMUR · SÍMI: 458 2300

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.