Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Blaðsíða 8
Þegar Soroptimistaklúbbur
Snæfellsness ákvað að skrifa um
merkar konur af Snæfellsnesi
voru margar sem nefndu Sigríði
Bogadóttur í Sjólyst.
Eins og oft er um alþýðuhetjur
eru fáar ritaðar heimildir til.
Ákváðum við að leita til
sonardóttur og alnöfnu Sigríðar
um heimildir og brást hún vel við
erindinu og sendi okkur þessar
línur, kunnum við henni bestu
þakkir fyrir.
Deyr fé,
deyja frænur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír deyr aldregi
hvim er sér góðan getur.
(úr hávamálum)
Amma mín og alnafna Sigríður
Bogadóttir var fædd 7.júlí 1886
í Flatey í Breiðarfirði. Þar ólst
hún upp hjá foreldrum sínum,
Oddfríði Guðmundsdóttur og
Boga Gunnlaugssyni sjómanni
ásamt systkinum sínum Ingjaldi,
Sólborgu, Finnboga og Þórdísi.
Faðir hennar byggði þar tvílyft
hús sem kallað var Bogahús og
stóð það við Grýluvog í Flatey.
Menningarlíf stóð í blóma
og í Flatey bjuggu allt að þrjú
hundruð manns, mikið atorku
og dugnaðarfólk.
Athafnalíf var fjörugt og mikil
verslun á staðnum. Hugur
ömmu hneigðist snemma að
hjúkrunarstörfum og las hún allt
sem hönd á festi um lækningar.
Handavinna veitti henni mikla
ánægju og liggja mörg listaverk
eftir hana, hekluð milliverk og
dúkar, ættingjum hennar til
gleði.
Eins og algengt var með
menn úr Breiðafjarðareyjum þá
lönduðu þeir aflanum á Snæ fells
nesi. Sautján ára flytur amma á
Hellissand og heldur heimili fyrir
föður sinn. Var þetta upphaf þess
að hún ílengist á Sandi í byrjun
tuttugustu aldarinnar.
Hún giftist Guðmundi Þor
varðarsyni, skipstjóra ættuðum
frá Hallsbæ og eignuðust þau
Lárus Skúla (19101960) og Boga
Ingjald (19171996).
Í Hallsbæ höfðu búið mann
fram af manni sjósóknarar.
Ragnheiður Skúladóttir og
Þorvarður Þorvarðarson voru
foreldrar Guðmundar.
Lárus Skúlason þekktur
athafnamaður bróðir Ragnheiðar
var giftur Guðrúnu Oddsdóttur
og voru þau barnlaus.
Ragnheiður systir Lárusar
gaf þeim drenginn Guðmund,
til uppeldis frá tveggja ára
aldri. Guðmundur ólst upp í
Lárusarhúsi sem stendur enn á
Hellissandi (byggt 1889) og ekki
langt frá í Hallsbæ bjuggu systkini
afa þau; Jónas, Þorvarður, Katrín
og Sigríður.
Lárus Skúlason var frumkvöðull
að mörgu á Hellissandi, má þar
upp telja barnaskólabygginguna
og Ingjaldshólskirkju ásamt því
að vera sjósóknari. Um tvítugt
kostaði Lárus afa minn til náms
í skipstjórn til Rönne, Bornholm
í Danmörku.
Allan sinn búskap bjuggu þau
í Sjólyst, litla ljósgræna húsinu
með rauða þakinu í fjörunni á
Sandi, svo nálægt sjónum að
gljáfrið í öldunum og fuglakvakið
heyrðist skýrt inn í húsið.
Minningin góða um húsið, afa,
ömmu og Lalla frænda er sterk.
Það að til hennar væri leitað
jafnt dag sem nótt fannst okkur
eðlilegt. Hún líknaði þeim sem
leituðu til hennar af öryggi og
kærleik. Sængurkonum fannst
þeim borgið þegar hún var mætt
á staðinn. Eina sumarnótt man
ég að bankað var í gluggann í
Sjólyst. Við nöfnurnar leiddumst
út í pláss að húsi einu, amma
fór inn í herbergi en á meðan
beið ég í eldhúsinu. Á leiðinni
til baka spurði ég ömmu; var
barn þarna inni ?” Já það fæddist
barn í heiminn, Sigga mín. Ég
hef líklega verið átta ára gömul.
Arngrímur Björnsson héraðs
læknir í Ólafsvík kom iðulega
við hjá ömmu og skildi eftir
í hennar umsjón umbúðir
og annað sem nota skildi til
lækninga. Kona hans, Þorbjörg
J. Guðmundsdóttir frá Flatey, var
hennar besta vinkona. það var
hennar stærsta hamingja í lífinu
að sinna þessum störfum með
skilningi afa og sonanna. Hún
var ein af stofnendum kvenfélags
Hellissands og sat þar lengi í
stjórn. Kvenfélagskonurnar
sáu um að viðburðir eins og
stórafmæli og erfidrykkjur væru
sem glæsilegastar.
Hallsbæjar frændfólk mitt
sem þekkti hana er samróma
um að hún hafi verið allt í senn,
sjálfstæð, sterk, ákveðin og
mikill mannvinur. Minnisstætt er
þegar Lárus Skúli sonur hennar
var kistulagður í Sjólyst í mars
1960. Eftir að hún hafði hlúð að
honum í síðasta sinn, stóð hún
höfðingleg í íslenska búningnum
sínum og mælti kveðjuorðin með
styrkri röddu og einkennandi
sálarró.
Sigríður Bogadóttir í Sjólyst
lést 6. september 1961.
Minning alþýðuhetjunnar lifir.
Samantekt :
June Scholtz
Kolbrún Ívarsdóttir
Anna Þóra Böðvarsdóttir
Kristín Björk Gilsfjörð
Merkar konur af Snæfellsnesi
Þakkarskjal sem Hellissandsbúar
gáfu Sigríði á 70 ára afmælisdegi
hennar
McCormick C105max árgerð 2006
ekinn 2370 klst.
Verðhugmynd: 3,6 - 4 milljónir.
(Ásett verð er 4.955.765 án ámoksturstækja)
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Á Sigurjónsson
í síma 553 5699 eða 894 7971