Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Blaðsíða 2

Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Blaðsíða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og Grundarfirði. Blaðið kemur út vikulega. Upplag: 1.100 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617 Þriðjudaginn 24. mars var skrifað undir svæðisskipulag Snæfellsness við hátíðlega at höfn í Stykkishólmi. Í svæðis skipu­ laginu, sem ber yfirskriftina „Andi Snæfellsness ­ auðlind til sóknar“, er sett fram stefna um byggðar­ og atvinnuþróun á Snæfellsnesi sem miðar að því að atvinnulífið, þekkingargeirinn og samfélagið nýti sér í auknum mæli náttúru­ og menningarauð Snæfellsness og að skipulag og mótun byggðar og umhverfis taki mið af honum. Formlegir þátttakendur í þessari vinnu hafa verið sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi; Eyja­ og Miklaholtshreppur, Grundar­ fjarðar bær, Helgafellssveit, Snæ­ fells bær og Stykkishólmsbær, auk samstarfsaðila sem eru: Ferða málasamtök Snæfellsness, Snæ fell ­ félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, Búnaðarfélög Eyrar sveitar, Staðarsveitar og Eyja­ og Miklaholtshrepps og Starfs mannafélag Dala­ og Snæ­ fells nessýslu. Vinna við skipu­ lagið þykir hafa tekist mjög vel og hlaut verkefnið m.a. Skipulagsverðlaunin árið 2014. Við undirskriftina var því fagnað að undirbúningsverkefnum er nú lokið og við Snæfellingar erum nú komnir með svæðisgarð sem farveg fyrir samvinnu og til að vinna að markmiðum svæðis­ skipulagsins. jó Skrifað undir svæðisskipulag Nokkuð langt hefur verið á milli leikja hjá Víkingum í Lengjubikarnum, meðal annars vegna þess að fresta þurfti fyrsta leik vegna veikinda leikmanna. Núna er lokið fjórum leikjum í mótinu, höfum unnið einn, gert eitt jafntefli og tapað tveimur. Langþráður sigurleikur kom loksins á laugardaginn var, en þá vannst góður sigur á BÍ/ Bolungarvík 4­0. Þegar þetta er skrifað eru þrír leikir eftir til að stilla liðið saman fyrir Íslandsmótið, sem hefst 9. maí, með leik við Hauka hér heima. Töluverðar breytingar hafa orðið á liðinu frá því í fyrra og fróðlegt er að sjá breytingu frá fyrri árum þegar eina leiðin til að bæta við leikmönnum var að leita til útlanda, en nú koma strákar frá öðrum innlendum liðum til að spreyta sig, þ.e. fá að spila og þroskast sem leikmenn í stað þess að sitja kannski á bekknum hjá liðum í efstu deild. Greinilegt að menn líta á Ejub sem góðann kennara, enda hefur kallinn sýnt að þeir leikmenn sem leika undir hans stjórn bæta sig á flestum sviðum. óhs Lengjubikarinn 2015 Páskafrí Jökuls Bæjarblaðið Jökull er komið í páskafrí Jökull kemur næst út 16. apríl. FÓTAAÐGERÐAR- FRÆÐINGUR

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.