Úrval - 01.10.1971, Page 10
8
ÚRVAL
um Garni, turnum og
hliðum. í kringum
musteri sólarinnar fer
jafnframt fram upp-
gröftur á sumarhöll
keisarans. Yfir rústirn-
ar af hallarböðunum, en
í gólfi þeirra eru mósa-
íkmyndir, einstæð dæmi
um forna myndlist Ar-
meníumanna, á að reisa
sýningarsal úr gleri. Þá
mun Garni opna hlið sín
fyrir ferðamönnum og
þau munu teljast með
frægustu dæmum um
meistaraverk fornra
húsameistara í Armen-
íu. Þau munu verða
sambærileg við Erebúní
virkið, sem reist var
fyrir 27 V2 öld á staðn-
um, þar sem síðar var
reist borgin Erevan, hin-
ar glæsilegu lágmyndir
á Gregard-klaustrinu
frá 13. öld og rúmlega
20 aðrar byggingar, sem
varðveittar eru og end-
urbyggðar hafa verið
með styrk frá stjórn-
inni.
Þið skuluð vara ykkur, þegar þið heyrið orðið „ó.hjákvæmilegt“. Þar
hefur einhver óvinur mannkynsins kynnt sig.
Stephen Vizinczey.
Það, sem er svo indælt við mai, er, að blómin byrja að skjóa upp
kollinum og upphitunarkostnaðurinn fer að minnka.
Arnold H. Glasow.
Teddy Kollek, borgarstjóri Jerúsalem, var spurður að því af erlendum
ferðamanni í borginni, hvert væri hlutverk .hans, hvað snerti lausn
vandamálanna í, Miðausturlöndum. „Sko, við Golda Meir höfum gert
samning með okkur," svaraði hann. „Ég sé um sorphreinsunina í Jerú-
salem, og hún sér um öll Miðausturlandavandamálin.
Það gengur ekki öllum óskaplega vel í auglýsinga.heiminu'm, og þvi
verða .margir að lúta lágt til þess að hafa í sig og á. Eínn slikur starfs-
maður útvegar auglýsingar fyrir dagblaðið „Spegilinn“ í Scarborough í
Ont'oriofylki og i því starfi sínu þarf ihann oft að hjálpa ei-gendum ým-
issa fyrirtækja til þess að búa til athyglisverðar auglýsingar í þessum
dúr, og eru þær þá stundum tvær og t.værihlið við hlið: „Jack, gerðu það
fyrir mig að koma heim,“ stóð í annarri auglýsingunni. „Ég er búin
að taka á leigu megrunartæki ihjá leigufyrirtækinu Stephenson’s Rent-
A01.“
„Jack, farðu ekki heim,“ stóð í hinni auglýsingunni í varðúðarskyni.
„Hún 'hefur líka tekið á leigu viðarpússningartæki, 'veggfóðursálímingar-
tæki, málningarsprautu, vélsög og gólfteppaþvottavél hjá leigufyrirtæk-
inu Morningside Rent-Alls.“
Macleans’s, Kanada.