Úrval - 01.10.1971, Síða 37
DOTTIR ROCKEFELLERS
brúðkaupsferðarinnar. En aumingja
Edith fékk slæmt kvef, smitaði Har-
old, svo að lítið varð úr ferðinni.
Þau settust að í smábænum Coun-
cil Bluffs í Iowa. Edith hafði séð
dýrindis óperuhús í London og París,
og nú ákvað hún að gefa Chicago-
borg glæsilegt óperuhús. Hún teikn-
aði sjálf uppdráttinn að húsinu og
blandaði sjálf sementið í grunninn,
og endaði með því að brjóta á sér
öklann.
Edith var um þessar mundir boð-
ið í mikla veizlu. Þegar farið var
að borða var Edith horfin. Menn
fóru nú að leita að henni. Loks
fannst hún. Hún var að hjálpa til
við að múra óperuhúsið.
Hún var nú á allra vörum. Hún
hélt glæsilegar veizlur. Meðal ann-
ars átu gestir hennar af diskum, sem
Napoleon hafði átt. María Rúmen-
íudrottning og sænski krónprinsinn
gistu meira að segja hjá henni. Að
miðdegisverði loknum fór Edith
með gesti sína í óperuna. Hún hafði
kostað nær 50.000.000 króna, en þar
að auki hafði hún eytt álíka mikl-
um peningum í að fá Melba og
Caruso til þess að syngja þar.
i
t,
Um þessar mundir lézt sonur
hennar. Þá urðu tímaskipti í lífi
Edith. Sonur hennar hafði dáið úr
skarlatsótt. Hún gaf tugi milljóna
króna til rannsókna á skarlatsótt.
Enginn vaf er á, að hún hefur þann-
ig bjargað milljónum barna frá
bráðum dauða.
Edith fór til Sviss, en þar ákvað
35
hún að gerast kennari í sálgreiningu
Enda þótt hún ætti enn tugi mill-
jóna króna, skúraði hún sjálf gólfið
í herbergi sínu, til þess að læra
undirgefni.
En þetta þoldi Harold McCormick
ekki. Hann fór frá henni. Seinna
giftist hann söngkonu frá óperu
Edithar í Chicago.
Edith fór nú aftur heim í kastal-
ann sinn. Með henni var lítill Sviss-
lendingur, Edwin Krenn að nafni.
En nú fékk Edith sér heilan hóp
leynilögreglumanna, sem áttu að
sjá um að vatnið væri ekki eitrað.
Hún var svo hrædd við vatn, að
hún þvoði sér aldrei. Hún eyddi
milljónum króna í alls konar hreins-
unar- og snyrtivökva, og baðkar
hennar var alltaf fyllt með alls kon-
ar snyrtivökvum.
Meðan Edwin vökvaði blómin, sat
Edith í trjálundi einum, og dreymdi
um að hún væri ákveðin egypzt
drottning endurholdguð.
Mathilde, dóttir hennar, hafði
gifzt svissneskum manni, sem var
tuttugu árum eldri en hún. Þetta
gramdist Edith svo, að hún arfleiddi
Edwin að næstum öllum peningum
sínum.
John D. Rockefeller var nítíu og
þriggja ára gamall, þegar dóttir
hans dó. Hann var enn ríkasti mað-
ur veraldar, en hann ku hafa spurt,
er hann frétti lát hennar: ,,Arf-
leiddi hún mig að nokkru?“
Þegar hann frétti um arfleiðslu-
skrána ánafnaði hann Matthilde
35.000.000 krónum.