Úrval - 01.10.1971, Side 77
VPPBLÁSIN HÚS
75
sviði landbúnaðar. Hollendingar og
Þjóðverjar hafa gert tilraunir með
lítil uppblásin gróðurhús. Og nú eru
uppblásin gróðurhús einnig að
skjóta upp kollinum í Bandaríkjun-
um. Dick Pretzer, eigandi geysimik-
illa gróðurhúsasamstæða nálægt
Cleveland, ræktar salat og tómata
við algera veðurstjórn, loftkælingu
á sumrin og hitun á veturna, sjálf-
virkt regn, o.s.frv. í samvinnu við
Goodyear Tire & Rubber Co. hefur
Pretzer gert tilraun með uppblásið
gróðurhús, sem nær yfir heila ekru.
Var það gert úr þunnu, gegnsæju
efni. Honum líkar mjög vel við
það. Það kostar aðeins helming þess
verðs, sem tilsvarandi glerhús hefðu
kostað. Það er engin þörf fyrir nein-
ar styrktarstoðir í því. Og því get-
ur hann notað venjulegar jarðyrkju-
vélar þar inni eins og um venjuleg-
an útiakur væri að ræða. Pretzer er
sannfærður um (og það er fyrirtæk-
ið Goodyear Tire & Rubber Co.
einnig) að uppblásin gróðurhús eigi
mikla framtíð fyrir sér.
Uppblásnu húsin hafa einnig skot-
ið upp kollinum á háskólalóðunum.
Er þar einkum um íþróttahús að
ræða. Slíkt uppblásið íþróttahús er
við Harvardháskóiann. Það nær yf-
ir heila ekru, þannig að þar er frem-
ur um íþróttavöll að ræða. í því er
hlaupabraut af venjulegri stærð og
þar að auki sæti fyrir 800. Og það
kostaði aðeins 300.000 dollara með
öllum útbúnaði. Aðrir háskó'ar hafa
fylgt fordæmi Harvardháskólans, og
eru ýmsir þeirra að vinna að áætl-
unum um risavaxin íþróttahús og
uppblásin hvolf yfir heila knatt-
spyrnuvelli af venjulegri stærð.
Heimili í uppblásnu húsi. Er það
hugsanlegt, að með uppblásnu hús-
unum hafi loks fengizt það ódýra
íbúðarhúsnæði sem mannkynið hef-
ur verið að bíða eftir? Líklega ekki.
íbúðarhús eru yfirleitt litil. Tré-
smiðurinn hefur vinninginn, þegar
um slíka stærð er að ræða. Þar að
auki eru það ekki veggirnir og þak-
ið, sem eru dýrustu hlutar íbúðar-
hús, heldur það, sem er þar innan
dyra, svo sem frárennsli og leiðslur
fyrir það, alls konar rafmagnsleiðsl-
ur, hitaleiðslur og upphitun, innan-
húsfrágangur, málning og skreyting
og svo framvegis.
En hví ætti þá ekki að reyna að
reisa uppblásið hús, flytja húsgögn-
in inn í það og byrja bara heimilis-
hald án frekari undirbúnings? Ung
hjón, Davíð og Vickie Schumacher
að nafni, hafa einmitt gert slíkt.
Fyrirtækið Goodyear Tire & Rubber
Co. á uppblásið íbúðarhús, sem
stendur nálægt borginni Akron í
Ohiofylki. Það hefur verið reist í
rannsóknar- og prófunarskyni.
Schumacker, sem leggur stund á
stjórnmál og alþjóðamál við Prince-
tonháskólann, gaf sig fram sem sjálf-
boðaliða og bauðst til þess að búa í
húsi þessu með konu sinni í nokkr-
ar vikur í tilraunskyni. Fyrirtækið
flýtti sér að útvega þeim dálítið af
húsgögnum og heimilistækjum. Og
svo fluttu ungu hjónin inn í upp-
blásna húsið.
Húsið er stórt. Það nær yfir næst-
um hálfa ekru. Það er því um tí-
falt stærra en venjulegt einbýlishús
í úthverfi. f rauninni er það ekki
aðeins um íbúðarhús að ræða, held-
ur fremur yfirbyggða lóð. Og það