Úrval - 01.10.1971, Page 92
90
ÚRVAL
hebreska þjóðlagið „Hava Nagilla".
Og hinir farþegarnir tóku undir.
Er hér var komið sögu, hafði ör-
yggisvörður sá, sem var á ferða-
mannafarrýminu, gert sér góða
grein fyrir því, að það ríkti vand-
ræðaástand í flugvélinni og að það
var mikill vandi á ferðum. En hann
hafði hingað til frestað því að taka
nokkuð til bragðs, því að hann vildi
sjá, hvort það kynnu ef til vill að
vera fleiri flugvélarræningjar í flug-
vélinni. En þegar flugvélin steypt-
ist niður á við, steig hann fram á
við með hönd á skammbyssu sinni.
Hann kom auga á mennina tvo, sem
voru að berjast við dyrnar að stjórn-
klefanum, og skaut í áttina til
þeirra. Karlræninginn varð fyrir
þrem skotum. Það blæddi mikið úr
Vider. „Skyndlega var bardaganum
lokið,“ sagði Vider síðar. „Úg hélt,
að flugvélarræninginn væri með-
vitundarlaus. Úg stóð þarna yfir
honum og ýtti við honum með fæt-
inum. Hann hreyfðist ekki.“
Kvenræninginn hafði misst af sér
hárkolluna, og mikið af málning-
unni hafði nuggazt og strokizt fram-
an úr henni. Og nú þekkti ísraelski
öryggisvörðurinn hana. Þetta var
konan ,sem var álitin vera „kven-
hetja palestínsku þjóðarinnar", Lei-
la Khaled að nafni, 24 ára gömul.
Hún hafði unnið sér þessa frægð í
ágúst árið 1969, þegar hún hafði
rænt flugvél frá flugfélaginu Trans
World Airlines. Þetta var vssulega
dýrmætur „farmur". Og við aðrar
aðstæður hefði flugvélinni verið
flogið aftur til ísraels alveg við-
stöðulaust. En Vider þarfnaðist taf-
arlausrar læknishjálpar. Því ákvað
flugmaðurinn að lenda í Lundúnum.
En nú höfðu fréttirnar af þessari
ránstilraun verið sendar með fjar-
skiptatækjum til Amsterdam. Og
ollu þær ísraelska öryggisverðinum
frá „E1 Al“, er starfaði þar á flug-
vellinum, mikilli gremju. Starf hans
var að athuga gaumgæfilega alla
farþega, áður en þeir færu upp í
flugvélarnar. Augsýnilega hafði
honum skjátlazt hrapallega. En nú
velti hann samt enn alvarlegri
spurningu fyrir sér. Hafði honum
aðeins skjátlazt, hvað eina flugvél
snerti? Hann hafði að vísu leift
Leilu Khaled og félaga hennar að
fara með flugi númer 219. En hann
hafði neitað tveim mönnum um sæti
í flugvélinni, sem vakið höfðu grun-
semdir með honum. Og þessir tveir
náungar voru nú einmitt í flugvél
frá Pan Americanflugfélaginu á leið
til New York.
LAGT AF STAÐ TIL
,,VINVEITTS“ RÍKIS
Menn þessir voru negrar og hétu
Semoe Gueeye og Sanghone Diop.
Voru þeir sagðir vera námsmenn
frá Senegal í Vestur-Afríku. Þeir
höfðu vakið grunsemdir hjá starfs-
fólki „E1 Al“, þegar þeir keyptu
farmiða aðeins aðra leiðina frá Am-
sterdam til Santiago í Chile um New
Yorkborg og buðust til þess að
greiða þá í reiðufé, en þar var um
óvenjulega háa upphæð að ræða.
Þetta var það eina, sem gat gefið
ástæðu til grunsemda í þessu til-
felli. En samt nægði það til þess,
að afgreiðslufólk „E1 Al“ sagði við
þá: „Því miður er flug númer 219
alveg fullbókað.“ En þeir höfðu