Úrval - 01.10.1971, Blaðsíða 112

Úrval - 01.10.1971, Blaðsíða 112
110 ÚRVAL Og morguninn 25 september brut- ust jórdönsku hermennirnir í gegn- um varnir skæruliðanna og æddu inn í flóttamannabúðirnar A1 Wah- dat. Brezku, þýzku og svissnesku gíslarnir gátu heyrt jórdönsku her- mennina nálgast. Fyrst heyrðust konur og börn æpa skammt undan. Mannþyrping tók á rás eftir þröngri götunni meðfram húsinu, sem gísl- arnir höfðust við í. Handsprengjur sprungu stöðugt, og hávaðinn í þeim kom sífellt nær. Ernst Vollenwei- del, flugstjórinn frá Swissair, vildi reyna að vekja athygli hermann- anna á nærveru gíslanna, og tók hann því það til bragðs að fara úr hvíta nærbolnum sínum og veifa honum út á milli rimlanna á mjóu rifunni. Varðmenn skæruliða höfðu nú gufað upp, er hér var komið, og Vollenweider hrópaði út um glugga- boruna: „Fangar! Svisslendingar! Englendingar!“ Skyndilega var litli innri húsagarðurinn við húsið orð- inn troðfullur af hermönnum með rauðar húfur. Þeir brutu upp hurð- ina. Svo heilsuðu þeir gíslunum með handabandi og skellihlógu. En þá kallaði liðsforingi einn næstum taf- arlaust til þeirra: „Flýtið ykkur! Komið!" Gíslarnir gengu í halarófu út úr húsinu og eltu bjargvætti sína eft- ir þröngum götunum. Einn gíslanna komst svo að orði, er hann skýrði frá frelsuninni: „Menn í skriðdreka voru að hreinsa til á götunum á kerfisbundinn hátt. Þeir hleyptu einmitt úr skriðdrekabyssu, þegar við fórum fram hjá honum, og við tókum ógurlegt viðbragð, sem kom hermönnunum til þess að skella upp úr. En þeir voru mjög glaðir og ánægðir. svo ánægðir, að þeir tæmdu alveg handvélbyssur sínar, skutu hverri kúlunni á fætur ann- arri eitthvað upp í loftið.“ Brátt höfðu hermennirnir komið gíslunum á öruggan stað eftir mikla þolraun, sem hafði staðið yfir í næstum þrjár vikur. Nú var aðeins eftir að finna 38 bandaríska gísla. AÐSTOÐ FRÁ EGYPTALANDI Þessa órólegu daga vann Nasser forseti Egyptalands ákaft að því að binda endi á götubardagana og að forðast meiri háttar átök, sem hann gerði sér grein fyrir, að væru í að- sigi. Fyrst sendi hann háttsettan sendimann til Amman til þess að reyna að semja um vopnahlé milli Husseins konungs og Yassers Ara- fats, leiðtoga skæruliðanna. Báðir þessir menn hunzuðu þessa við- leitni hans. Þá boðaði hann til fund- ar æðstu manna Arabaríkjanna á Hiltonhótelinu í Kairó. En þeir Hussein og Arafat neituðu báðir að sækja fundinn. Þrátt fyrir fjarveru þessara styrjaldaraðilja var ákveð- ið á fundinum að senda skyldi frið- arsamninganefnd til Amman, og skyldi Gaafar Mohammed al-Nn- meiry frá Súdan vera formaður hennar. Al-Nimeiry flaug tvisvar til Am- man, enda þótt hann stofnaði sér þannig í mikla hættu. Og þ. 25. september, eða sama dag og fyrstu gíslarnir fundust og voru frelsaðir, tókst honum loks að telja báða styrjaldaraðiljana á að gera vopna- hlé.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.