Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Blaðsíða 1
Snæfellsbær hefur sett upp nýtt
þjón ustu hús á tjaldsvæðinu á
Hellis sandi. Húsið kemur til með
að bæta að stöð una á tjaldsvæðinu
til muna.
Húsið er úr forsteyptum ein
ingum frá BM Vallá og var því
komið fyrir á tjaldsvæðinu í
síðustu viku. Nú hefst vinna við
að steypa plötu, setja þak á það
og annan frágang áður en það
verður tekið í notkun. Með húsinu
er stór bæting á aðstöðu og má þar
nefna fjölgun salerna og bætingu
á sturtu að stöðu.
Tjaldsvæðið á Hellissandi hefur
notið vaxandi vinsælda undan
farin ár og er þetta liður í því verk
efni bæjarins að bæta þjónustu og
aðbúnað við tjald svæðið.
Þess má geta að á síðasta ári
gistu um 17.000 gestir á tjald svæð
um Snæ fellsbæjar í Ólafsvík og á
Hellis sandi.
930. tbl - 20. árg. 18. júní 2020
Ólafsbraut 55, Ólafsvík
Sími: 436 1212
Þónokkur aukning varð á
veiði í maí 2020 miðað við árið
á undan í höfnunum á Snæ fells
nesi. Hafnirnar sem um ræðir
eru á Arnarstapa, Grundarfirði,
Ólafsvík, Rif og Stykkishólmi.
Í maí 2019 var 7.295.770 kg
landað í höfnunum fimm á Snæ
fells nesi en í maí á þessu ári var
8.823.894 kg landað.
Um er að ræða rúmlega 20%
aukningu milli ára hér á Snæ
fells nesi sem er töluvert meira en
gengur og gerist á landinu. Sam
kvæmt tölum Hagstofu Íslands
var aukningin á landsvísu um
3%.
Veiði í maí eykst
milli ára
Nýtt þjónustuhús á tjaldsvæðinu á Hellissandi
Gréta Björgvinsdóttir
s: 770 0188
Guðný Bjarnadóttir
s: 869 7522
www.borgutfor.is Borg útfararþjónusta borg@borgutfor.is
Fagmennska – virðing –umhyggja
Önnumst alla þætti útfarar af fagmennsku,
með virðingu og umhyggju að leiðarljósi.
Í persónulegum samtölum förum við yfir óskir
og þarfir ástvina.Við þjónum og styðjum.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
VESTURLANDS
Jökull Bæjarblað
jokull@steinprent.is
steinprent@simnet.is
436 1617
Höfn: Maí 2020 Maí 2019
Arnarstapi 657.050 kg 527.498 kg
Grundarfjörður 2.867.647 kg 1.512.011 kg
Ólafsvík 2.550.252 kg 2.188.080 kg
Rif 2.567.818 kg 2.875.136 kg
Stykkishólmur 181.127 kg 193.045 kg
Samtals: 8.823.894 kg 7.295.770 kg