Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Síða 2

Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Síða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ, Grundarfirði, Stykkis hólmi, Helgafellssveit og Eyja­ og Mikla holts hreppi. Blaðið kemur út vikulega. Upplag: 1.500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netföng: jokull@steinprent.is steinprent@simnet.is Sími: 436 1617 Það voru ákveðinn tímamót hjá bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar fyrr í júní þegar fundur bæjar­ stjórnar var tekinn upp í fyrsta sinn. Fundurinn var svo í kjöl­ farið settur á netið þar sem fólk gat horft á hann. Bærinn fjárfesti nýverið í græjum til þess að taka upp fund­ ina og er stefnan sett á að fram­ vegis verði allir fundir bæjarins teknir upp og sýndir í beinni útsendingu á internetinu. Alls voru 28 dagskrárliðir á dag skrá fundarins en þar ber helst að nefna yfirferð yfir árs­ reikning bæjarins 2019 sem og fjárhagsáætlun fyrir árið 2020. Bæjarstjórnarfundir framvegis í beinni Það hefur verið mikið fjör hjá krökkunum á leikjanámskeiði Víkings síðustu daga og ýmslegt skemmtilegt brallað. Alls eru um 50 börn á námskeiðinu. Á mánudag fengu krakkarnir að heimsækja slökkviliðið í Snæfellsbæ. Þar skoðuðu þau slökkviliðsbílinn og fengu svo að að sprauta úr vatnsslöngunum. Krakkarnir hafa einnig fengið að fara á hestbak, hjólaferð og sveitaferð svo eitthvað sé nefnt. Leikjanámskeiðinu lýkur svo með grillveislu og skemmtun næsta föstudag. Sjóstangveiðifélag Snæ fells­ ness, SJÓSNÆ, stóð fyrir árlegu móti sínu um síðustu helgi en mótið stóð yfir frá fimmtudegi til laugardags. Þar stunduðu keppendur eljusamar veiðar frá morgni til kvölds en haldið var til veiða frá höfninni í Ólafsvík. Að mótinu loknu var svo haldið veglegt lokahóf í Röstinni á Hellissandi. Lokahófið í ár var ákaflega vel mætt en um var að ræða 30 ára afmælishóf félagsins. Alls mættu um 70 sjóstangveiðimenn og glöddust saman. Veittar voru viðurkenningar og verðlaun fyrir veiði helgarinnar auk þess sem veislugestir gæddu sér á veislumat og hlustuðu á skemmti atriði. Mikil almenn ánægja var með helgina enda gekk veiðin vel og þótti afmælishófið heppnast ákaf lega vel. Mótið er eitt af fjöl­ mörgum sjóstangveiðimótum sem haldin eru á landinu ár hvert. Næsta mót er á Patreksfirði um næstu helgi en það er einnig stærsta mót ársins. Heimsóttu slökkviliðið Sjóstangveiðimenn gerðu sér glaðan dag

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.