Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Qupperneq 6
Lionsklúbbur Ólafsvíkur
færði leikskólanum Krílakoti
góðar gjafir á dögunum. Færðu
þeir leikskólanum ýmsar litlar
gjafir sem vantaði eins og þeir
orðuðu það og var það meðal
annars tvo kassa af vinnuvélum,
ísgerðavél, læknadót og fleiri
leikföng sem nýtast munu leik
skólabörnunum vel.
Á myndinni er Óskar Ingi
Inga son ritari Lionsklúbbs
Ólafs víkur að afhenda Ingigerði
Stefáns dóttur leikskólastjóra
gjaf irnar.
Gjafir til leikskólans
Krílakots
Víkingur lék sinn fyrsta alvöru
keppnisleik á árinu 2020 um síð
ustu helgi þegar liðið heimsótti
Þrótt Vogum í bikarkeppninni.
Leikurinn reyndist okkar
mönn um erfiður en að lokum
vannst 21 sigur þar sem spænski
fram herjinn Gonzalo Zamorano
Leon skoraði bæði mörk Víkings
í leikn um.
Nú þegar hefur verið dregið í
næstu umferð bikarkeppninnar
og ljóst er að þar mætum við
nöfnum okkar í Víkingi Reykjavík.
Sá leikur fer fram fimmtudaginn
25. júní en áður en að þeim
leik kemur mun Víkingur Ó.
mæta Vestra í 1. umferð Lengju
deildarinnar.
Á dögunum var Halldór Stein
grímsson ráðinn þjálfari bæði
karla og kvennaliða Snæfells í
körfubolta. Við á Jökli heyrðum
í Halldóri og ræddum við hann
um nýja starfið.
“Flutningarnir vestur leggjast
vel í mig. Ég er að flytja hingað
frá Höfn í Hornafirði sem er alveg
hinum megin á landinu, en það er
styttra að skreppa í bæinn núna,”
segir Halldór.
Það hefur reynst vel áður að fá
þjálfara vestur á Snæfellsnes frá
Höfn. Seinasti maður til að gera
það var Ejub Purisevic sem kom
til Víkings Ó frá Höfn og stýrði
knattspyrnuliði Víkings með afar
góðum árangri í 17 ár. “Það er
rétt hjá þér. Sagan er greinilega
mín megin í þessu,” sagði Halldór
kátur með þessa staðreynd.
Hann segist sammála því að
verkefnið sem hann sé að taka að
sér, að þjálfa liðin í Stykkishólmi,
sé afar krefjandi.
“Þetta er mjög krefjandi verkefni
bæði karla og kvennamegin.
Bæði liðin eru mjög ung og
kvennamegin erum við fámenn.
Við þurfum að styrkja okkur
með íslenskum og erlendum
leikmönnum á sama tíma og
við byggjum upp lið með kjarna
héðan af svæðinu. Við erum að
vinna eftir langtímaplani og ég sé
fyrir mér að hér sé hægt að gera
góða hluti á næstu 35 árum.”
Aðspurður um markmið fyrir
næsta tímabil segir Halldór að
spurninginn sé ekki tímabær.
“Það er eiginlega of snemmt
að segja til um það núna enda
ekki komin almennileg mynd
á leikmannahópinn. En það er
alveg ljóst að við viljum gera
betur með karlaliðið sem var í
botnbaráttu í 1. deildinni í fyrra
sem og að halda kvennaliðinu í
fremstu röð.”
Víkingur áfram í bikarnum
Viljum gera betur