Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2020, Síða 3
Það er eitt sem við getum
treyst á, að óháð undirbúningi,
hentugleika, umhverfi okkar og
ástandi, jólin koma. Jólin koma
þegar hringt er inn kirkju klukk
unum klukkan 6 á aðfanga dags
kvöld. Hvort sem við erum til
búin eða ekki, hvort sem við
erum til búin með matinn, erum
í myrkri eða ljósi, í fjölmenni
ástvina eða ein. Jólin koma. Það
er aðeins spurning hvort við
hleypum þeim inn í hjarta
okkar.
Á hinum fyrstu jólum voru
fá tæk og ferðafúin ung hjón,
fjarri ástvinum og í erfiðu
ástandi, stödd í miðjum glaumi
borgar innar þar sem gleði var í
hverju húsi, en sama hvar þau
bönkuðu, hvergi var pláss fyrir
þau. Það var ekki fyrr en í einu
húsi þar sem ekki heldur var
pláss fyrir þau að þeim var þó
boðið að vera í skepnuhúsunum.
Þar voru þeirra fyrstu jól haldin,
í þreytu, í erfiðleikum, í fátækt,
í einveru, í myrkri og í þjáningu.
Unglings stúlkan þurfti við
þessar aðstæður að fæða frum
burð sinn.
Þrátt fyrir það komu þeim
jólin. Sonur Guðs kom til þeirra
og ljósið skein þeim skærar en
nokkuð mannlegt ljós.
Fæðingarhátíð frelsarans, barns
þeirra, er enn haldin tveimur
árþúsundum seinna.
Við höfum öll átt okkar erfið
leika, þjáningu, myrkur og
missi. Árið 2020 hefur verið
mörgum erfitt og þungt. Lífið er
ekki í eðlilegum skorðum og
það ber undirbúningur jóla
einnig keim af. Allt er öðruvísi.
Við höfum þurft að vera fjarri
vinum og ástvinum og þurfum í
mörgum tilfellum að vera það
áfram nú um jólin. Kvíði og ótti
er án efa sterkur í huga marga
er líða fer að jólum.
En við megum treysta að ein
mitt í slíkum aðstæðum erum
við meira tilbúin að halda sönn
og gleði leg jól, en í glaumi
margra annara ára. Oft vorum
við þá eins og íbúar Betlehems
borgar sem misstu af hinum
fyrstu jólum því þau voru svo
upp tekin af gleði daganna og
verð mætum sem ryðga og
eyðast. Það voru hinu fátæku
fjár hirðar úti í haga sem sáu
ljós ið og upplifðu hina sönnu
gleði.
Jólin verða ekki betri með
meiri ljósaperum, skrauti og
íburði. Jólin verða ekki betri
með miklum mat. Nei, jólin eru
í hjarta manna, hinu innra. Þar
er hin sanna gleði, þar er hin
sanni jólafriður og vagga jóla
barnsins. Ert þú of upptekinn
til að mæta honum þar? Er of
mikið í ljós í kringum þig að þú
sérð ekki ljós jólastjörnunnar í
hjarta þínu? Sérð þú ekki ljósið
sem skín úr augum og hjörtum
þeirra sem minnst eru og þurfa
hjálp? Sérðu ekki Krist í þeim?
Það líður að jólum og senn
bankar Kristur á hjarta þitt. Er
vaggan tilbúin? Er pláss fyrir
frið hans, gleði og ljós? Er pláss
fyrir jólin? Eru augun okkar
opin fyrir jólabarninu sem knýr
á og ljósi þess?
Hvernig væri að nota þetta ár
og erfiðleika þess til að sjá það
sem við höfum, það sem okkur
er gefið og þakka fyrir það sem
er þakkarefni?
Jólin koma, líka til þín.
Gleðjumst og þökkum, því Guð
er ekki sama, hann er með
okkur og elskar þig, því erum
við aldrei ein. Guð gefi ykkur
gleðileg jól.
Óskar Ingi Ingason
Jólin koma
Þorláksmessa 23/12 kl. 09 - 22
Aðfangadagur 24/12 kl. 10 - 14
Jóladagur 25/12 lokað
Annar í jólum 26/12 kl. 12 - 18
Sunnudaginn 27/12 kl. 10 - 22
Mánudaginn 28/12 kl. 09 - 22
Þriðjudaginn 29/12 kl. 09 - 22
Miðvikudagur 30/12 kl. 09 - 22
Gamlársdaginn 31/12 kl. 10 - 16
Nýársdaginn 01/01 lokað
Laugardaginn 02/01 kl. 10 - 22
Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla
og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
4.990,-
4.890,-
995,-
Ýmislegt
sniðugt í
skóinn fyrir
jólasveininn
4 ostborgarar,
milli franskar, 2 dósir sósa
og 2L Coke.
1.675,-
Ostborgari
1/2 L Coke, franskar og sósa
16” TILBOÐ
16” pizza x 2 álegg
8 brauðstangir + sósa
2L Coke
3.990,-
12” TILBOÐ
16” pizza x 2 álegg
5 brauðstangir + sósa
2L Coke
Hotwings 8 stk,
1/2 L Coke og koktail sósa
Bátur með
lambakjöti, osti,
piparsósu og
frönskum á milli.
BÚKOLLA
Bátur með
nautakjöti, osti,
bernaise og
frönskum á milli. HRIKALEGA GOTT
MIKKI
REFUR
Aðeins kr.
1.995
m/ 0,5L Coke