Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2020, Blaðsíða 42
Sendum viðskiptavinum okkar
og Snæfellingum öllum
bestu jóla og nýárskveðjur.
Ágúst hættur að sjá nokkur
kennileiti sem hann kannaðist
við. Hann bað því Elínu að bíða
hjá hestunum og ætlaði að fara
aðeins ofar og gá hvort hann
sæi þúfu eða stað svo hann gæti
áttað sig á staðháttum áður en
þau héldu áfram.
Hann gekk því af stað með
ekkert nema staf til að reyna að
finna réttu leiðina. Ekki vildi
betur til en svo að hann hrapaði
fram af klettum. Í fallinu barðist
stafurinn í höfuð hans svo hann
rotaðist um stund, en slapp þó
stórslysalaust og rankaði við sér
nokkru síðar. Fyrst reyndi hann
að finna Elínu og hestana aftur,
en fann þau ekki. Þá hafði hann
þó áttað sig á hvar hann var og
fór með hraði að Búðum til að
fá hjálp.
Ágúst komst að Búðum um
klukkan fjögur þann 17. des em
ber og lét vita af því að Elín væri
ein á heiðinni með hestana og
póstinn. Haft var samband við
menn á næstu bæjum og hringt
til Ólafsvíkur eftir aðstoð við
leit.
Það fóru 19 menn á heiðina
Fróðármegin og 11 úr
Staðarsveit til að leita. Ágúst
sjálfur var ekki í standi til að
taka þátt í leitinni og þurfti því
að bíða milli vonar og ótta á
Búðum eftir fréttum.
Dimm þoka var þá komin á
heiðinni, en um klukkan 10
það kvöld fundu mennirnir
Elínu, kalda og blauta en heila á
húfi. Þeir færðu hana í þurr föt,
gáfu henni mat og komu henni
suður að Búðum þá um nóttina.
Ágúst póstur sinnti starfi sínu
vel og fór ófáar ferðirnar yfir
Fróðárheiði í öllum veðrum.
Hann þótti mikill garpur og orti
Refur bóndi um hann þessa
vísu sem lýsir þessari svaðilför
hans vel.
Þegar kaldur þaut um láð
Þungur vetrar gjóstur
Ágúst sýndi orku og dáð
Ólafsvíkurpóstur.
– höf. Refur Bóndi (Bragi Jónsson)
Það er ekki lengra en svo frá
þessum atburði að enn er fólk í
samfélaginu okkar sem man vel
þessa tíma þegar lífsbaráttan
var hörð og fólk gat orðið úti
við að fara á milli bæja. Í dag
eru viðfangsefni fólks oft ekki
ólík því sem þá var, en aðstæður
eru allt aðrar. Með samgöngu
úr bótum og framþróun í tækni
þarf ekki að óttast veðrið með
sama hætti og var fyrr á tímum.
Nú veldur magnið af pökkum
meiri áhyggjum fyrir póstinn,
en það að samgöngur hamli för.
Það er bæði gagn og gaman
að kynna sér söguna og þekkja
hvernig þeir fóru að sem ruddu
brautina á undan okkur, svo við
getum notið þeirra lífsgæða
sem við njótum nú.
Dagbækurnar hans afa, þessi
saga og svo margar aðrar sögur
segja okkur líka að samfélagið í
Snæfellsbæ var ekki sameinað
1994, heldur hefur byggðin hér
á Snæfellsnesi beggja megin
heiðar alltaf átt samleið og
sameiginlegra hagsmuna að
gæta. Það er gaman að keyra
yfir nýja veginn á Fróðárheiði
og hugsa um það hve miklar
framfarir hafa orðið síðastliðna
áratugi og hvað við höfum það
gott sem hér búum.
Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir,
Böðvarsholti
Formaður Sagnaseiðs á Snæfells-
nesi
www.peopleoficeland.is
snaefellsnes@peopleoficeland.is
Útgáfa Jökuls
á næstunni
Jökull kemur ekki út milli jóla og nýárs.
Næsta blað kemur út
fimmtudaginn 7. janúar
Snæfellingum óskum við
gleðilegra jóla
og þökkum viðskiptin á árinu.
Við óskum öllum Snæfellingum gleðilegra jóla
og heillaríks komandi árs. Þökkum starfsfólki
okkar og viðskiptavinum samstarfið á árinu
sem er að líða.