Úrval - 01.07.1981, Page 46

Úrval - 01.07.1981, Page 46
44 ÚRVAL vöktum þjást stöðugt af því sem í fluginu hefur verið kallað ,,þotu- þreyta” (jet lag), auk þess sem þeir missa sambandið við vini og kunningja og vita minna um fjölskyldu sína yfir daginn en þeir sem vinna „eðlilegan” vinnutíma. Ýmsir sérfræðingar halda því fram að næturvaktafólkið sé á hættulegri braut. Enginn veit nákvæmlega hvaða áhrif næturvinna hefur á líkama og sál en vísindamenn hafa leitt líkur að því að vaxandi tíðni næturvinnu haldist í hendur við íjölgun geðrænna og tilfinningalegra kvilla. ,,Við sendum fólk af handa- hófi til að vinna á öllum tímum sólar- hrings í kringum vélar sem ekki þreytast,” segir Wilse B. Webb, sálfræðingur við University of Florida. „Lífeðlisfræðileg náttúra mannsins er beitt harðrétti með óeðli- legu móti og allt venjulegt hegðunarmunstur, svo sem tengsl við fjölskyldu og samfélag, líður fyrir það.” Eitt stöðugt einkenni er slæmur svefn. Rannsóknir sýna að þeir sem vinna næturvaktir sofa skemmri tíma en þeir sem vinna á dagvöktum og að svefn þeirra er ekki jafnendurnær- andi. Einnig er mjög algengt að þeir sem á næturvöktum vinna þjáist af hvers konar meltingaróreglu. Ástæða til þess getur meðal annars verið ónógur svefn en einnig sú staðreynd að næturvaktafólk neytir áfengis, kaffis og tóbaks í meira mæli en þeir sem vinna á daginn en sofa á nóttunni. Áberandi fylgikvilli, sálræns eðlis, sem fylgir nætur- vöktunum er vaxandi ótryggð milli þeirra sem næturvaktir stunda og maka þeirra. Fram að þessu hefur þó engin rannsókn leitt í ljós að fólk sem vinnur á „óeðlilegum tímum” sé skammlífara en annað fólk. Frakkar hafa um skeið haft áhyggjur af áhrifum næturvakta á fólkið og hvetja nú eindregið til þess að vaktir séu látnar ganga til skiptis og eru að reyna að banna fastar þrískiptar vaktir á sjúkrahúsum þar sem hver vakt vinnur aðeins ákveðinn hluta sólarhringsins og aldrei annan. Vel má vera að verka- lýðsfélög taki þetta atriði upp á arma sína með kröfu um vaktir sem gangi ákveðinn hring þannig að allir verði einhvern tíma á hverri vakt þrískipts vaktasólarhrings en enginn verði fastur á næturvaktinni. Eftir því sem vísindin leiða fleira fram í dagsljósið um næturvaktirnar er líklegt að fólkið sjálft og samtök þess geri strangari kröfur hvað varðar skiptingu vinnutíma. Fortune EKKIERU TÖLURNAR EFNILEGAR! Ungbarnadauði og meðalævi fólks er hvort tveggja talið nákvæmur mælikvarði á félagslegar og efnalegar aðstæður. Miðað við þennan mæli- kvarða hallar nú ört undan fæti fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.