Stormur - 01.04.1944, Blaðsíða 7

Stormur - 01.04.1944, Blaðsíða 7
Stormur 1 ~Urn JV[innlsvaróa Lan.dnerno.nrLa Hvað ætlum við okkur með iðavelli? Mér finst Hað vera ógerning- ur að láta þetta indæla pláss ganga úr greipum okkar, eins og svo margt annað hér innan bygðarinnar. Eins og garðurinn er nú, og hefir verið fram að þessum tíma, er hann að mjög litlu gagni og okkur lítt til sóma. En mikið er hægt að gera, ef margir taka saman höndum og hjálp- ast að til að byggja upp garðinn og fegra. Mín hugmynd er sú, að hann gæti orðið sá. merkilegasti minnisvarði sem mögulegt væri að reisa íslenzku landnemunum hér í Nýja íslandi, — al-£slenzkur blettúr þar sem íslendingah gætu komið saman sér til ánægju og uppbyggingar. Stað'orinn er eins ákjósanlegur og hægt er að hugsa sér. Auðvitað yrði mikill kostnáður við að byggja hann upp svo hann yrði sæmilegur til hátíðahalda. En íslendingar hafa aldrei legið á liði sínu, ef leitað hefir verið til beirra til stuðnings góðum málefnum, h.vað þá ef það væri fyrir annað eins .fyrirtæki innan' þeirra eigin sveitar. Mér datt í hug hvort ekki mætti reisa lítinn skála eða hús, þar sem væru greipt eða skrautrituð nöfn fyrstu landnemanna; það mætti skifta beim í fiokka, eftir því sem landnám hófst við hin ýmsu pósthús. Seinna mætti koma upp dálitlum blómagarði, gróðursettum jurtum og blómum frá íslandi. Margt og margt fleira mætti gera. Auðvitað tekur þetta langan tíma, en hálfnað er verk þá hafið er. Eg hef fært þetta í tal við ýmsa kunningja mína, og þeim öllum litist vel á hugnyndina. _______ —H.E. FRAMFÖR Söfnun fyrir Rauða Krossinn í Árborg og grendinni er mjög virð- ingarverð. Síðast, er safnað var á sama svæði, var upphæðin $1,054.76. Nú söfnuðust $1,522.85. Batnandi mönnum er bezt að lifa. SPURNING Hver er skemtilegastur íslenzkur rithöfundur vestan hafs?

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.