Stjörnur - 01.12.1945, Blaðsíða 11

Stjörnur - 01.12.1945, Blaðsíða 11
Gamla Bíó „The Three Caballeros" JÓLAMYND 1945 Gamla Bíó hefir valið, sem Jólamynd í ár, nýjustu mynd snillings- ins Walt Disney: „The Three Caballeros“. Það er enginn vafi á því að ungir sem gamlir munu hafa ánægju og skemmtun af að horfa á hana; þarf ekki annað en minna á fyrri myndir Disneys: „Mjallhvít og dvergarnir sjö“, „Fantasia“ og , Bambi“. „The Three Caballeros“ er að ýmsu leyti frábrugðin fyrri myndum hans, en minnir þó ef til vill á „Fantasia“. Því þetta er einnig músikmynd, samin utan um syrpu af léttum og skemmtilegum sönglögum frá Mexíkó og Suður-Ameríku. Myndin sannar að hugmyndaflugi Disneys og aðstoðarmanna hans eru engin takmörk sett. í þetta sinn hafa þeir tekið upp þá nýung að setja saman teiknimyndir og kvikmyndir af lifandi fólki. Aðalpersónur myndarinnar eru Dónald, andarsteggurinn góðkunni, Jose Carioca, páfagaukurinn frá Brasilíu, og mexíkanski haninn Panchito. Páfagaukurinn Carioca hefir einu sinni áður sést; í myndinni „Saludos Amigos“, en han- inn Panchita birtist hér í fyrsta sinn. Þessir þrír kátu náungar lenda í margskonar ævintýrum m. a. með blómarósunum Aurora Miranda, Carmen Molina og Dora Luz. Aurora Miranda er systir hinnar frægu Carmen Miranda. Dora Luz er vinsælasta söngmær Mexíkó, og í myndinni syngur hún hið undurfagra lag, ,„You Belong to My Heart“. Tvö önnur lög má nefna, „The Three Caballeros“ og „Baia“, en alls eru lögin í myndinni sextán að tölu. Auðvitað er myndin öll litskreytt, eins og fyrri myndir Disneys. STJÖRNUR 1 1

x

Stjörnur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.