Stjörnur - 01.12.1945, Page 14

Stjörnur - 01.12.1945, Page 14
Tœkifœrisgjafir ávallt í miklu úrvali VERZLUNIN Laugaveg 1. Tyrone Power Framhald af bls. 6. milli forstjórarina en komst lengi vel hvergi að. Loks fékk hann 'tækifæri og hóf vinnu að tjaldabaki í leik- húsi einu. Eftir þetta fékk hann raunverulegt tækifæri fyrir milligöngu Helen Mencken, sem var viðurkennd leikkona. Hún hringdi til eins leikstjóra, og sagði að það mundi verða honum sjálfum til góðs, ef að hann tæki piltinn að sér. Hún kvaðst þekkja drenginn og vita að hann hefði gáfur . . . nóg af þeim. Um þetta leyti byrjaði Tyrone raunverulega leið sína til frægðar. Hann fékk hvert • vandasama hlut- verkið á fætur öðru til meðferðar og alltaf tókst hon- um betur og betur. Samt vildi hann alltaf læra meira og meira, og sjálfur sagði hann einhverntíma: „Þegar ég fer aftur til Hollywood, en þangað skal ég kom- ast, þá ætla ég að ganga í land, ekki að skríða“. Þegar Tyrone lék aðal'hlutverkið í „Romeo og Juliet“ vann hann sér mikla hylli. Við það tækifæri sagði móðir hans: „Eg var sannarlega ánægð með það hvernig Tyrone fór með hlutverk sitt. Eg var hreykin af honum bæði sem móðir og sem kennari". Þá er hér var komið sögu, árið 1936, gerði Tyrone sjö ára samning við 20th Century-Fox félagið, en þar er hann enn, og einn hinna viðurkenndustu leikara. Tyrone er þrjár álnir á hæð og vegur 140 pund. Hann er laglegur, með dökkbrúnt hár og falleg brún augu. Uppá'halds blóm hans eru hvítar rósir. Mesti ávani hans er að blístra í búningsherbergi sínu. Hann les ekki neitt alveg sérstakt, en yfirleitt allt, sem honum þykir gaman að, hvort sem það nú eru sögur, tímarit eða eitthvað annað. Uppáhaldslitur hans er blátt . . . hvaða tegund sem er af bláu. Uppáhaldsávextir hans eru perur . . . hann er mjög hrifinn af þeim. Af íþróttum þykir honum mest koma til fótbolta og hann tekur virkan þátt í þeirri íþrótt. I fristundum sínum tekur hann mikið af myndum, leikur tennis eða iðkar sund. Tyrone er giftur Annabella, sem er frönsk leik- kona. Þau giftu sig 23. apríl 1939. 14 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.