Feykir - 25.01.2023, Side 2
Söngkeppni FNV fór fram síðastliðið fimmtudags-
kvöld á sal bóknámshúss Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra. Sigurvegari keppninnar var Heiðmar
Gunnarsson en hann söng lagið Another Love sem
Tom Odell gerði vinsælt fyrir um tíu árum síðan og
hefur fengið yfir 1.4 milljarð spilana á Spotify..
Í öðru sæti
endaði Þórey Edda
Marx með lag Siu,
Elastic Heart, og í
þriðja sæti voru þau
Íris Helga Aradóttir
og Óskar Aron
Stefánsson með lagið
Á tjá og tundri sem
var fyrsta lagið sem
Skagstrendingurinn
Gummi Jóns gerði
vinsælt með Sálinni
hans Jóns míns. Alls
voru sjö atiði í Söngkeppni NFNV en flytjendur
voru alls tólf talsins.
Sigurvegarinn, Heiðmar Gunnarsson, sem er
aðeins 16 ára gamall, er frá Búrfelli í Svarfaðardal
en foreldrar hans eru Gunnar Þór Þórisson og
Guðrún Marinósdóttir. Heiðmar verður því
fulltrúi NFNV í úrslitum Söngkeppni framhalds-
skólanna sem sennilega fara fram á höfuð-
borgarsvæðinu, væntanlega í Kaplakrika í Hafnar-
firði, þann 1. apríl nk. /ÓAB
Nú er riðlakeppni HM í handbolta nýlokið og því miður
komst Íslenska liðið ekki í átta liða úrslit eins og vonir stóðu
til fyrir mót. Liðið er úr leik og hafnaði í 12. sæti keppninnar.
Ljóst er að árangur liðsins hefur
valdið ákveðnum hópi gríðarlegum
vonbrigðum sem ræðir um að
þjálfarinn verði að axla ábyrgð og
taka pokann sinn.
Einnig virðist árangurinn langt ut-
an væntingaramma landsliðsmann-
anna sjálfra samanber afsökunar-
beiðni Elliða Snæs Viðarssonar,
leikmanns íslenska landsliðsins, til þjóðarinnar vegna þeirrar
hneisu að hafa látið í minni pokann gegn ríkjandi Evrópu-
meisturum Svía í öðrum leik liðsins í milliriðlinum. „Mér líður
illa og ég vill byrja á því að segja sorry við þjóðina,“ sagði Elliði
Snær í viðtali á Vísi eftir fimm marka tap liðsins gegn Svíum.
Menn eru alveg í öngum sínum yfir þessari sneypuför liðsins
og eru fréttatímar útvarps og sjónvarps helgaðir vonbrigðum
með glatað tækifæri til að verða heimsmeistarar líkt og fréttir
netmiðlanna. Mig grunar þó að þegar rykið hefur sest og fólk
fer að rýna í stöðuna þá spyrji einhverjir; af hverju gerðum við
þessar kröfur á liðið? Kíkjum á árangur Íslendinga á síðustu
heimsmeistaramótum:
2021 – HM í Egyptalandi: Ísland endaði í 20. sæti.
2019 – HM í Þýskalandi: Ísland endaði í 14. sæti.
2017 – HM í Frakklandi: Ísland endaði í 14. sæti.
2015 – HM í Katar: Ísland endaði í 11. sæti.
2013 – HM á Spáni: Ísland endaði í 12. sæti.
„Allt í lagi,“ sagði Logi Geirsson, einn sérfræðinganna í HM
stofu RÚV, „Við verðum þá bara Evrópumeistarar á næsta ári!“
en Logi var einn þeirra sem spáði liðinu heimsmeistaratitlin-
um. Kíkjum þá á árangur liðsins á síðustu Evrópumótum:
2022 – EM í Ungverjalandi og Slóvakíu: Ísland í 6. sæti.
2020 – EM í Svíþjóð: Ísland endaði í 11. sæti.
2018 – EM í Króatíu: Ísland endaði í 13. sæti.
2016 – EM í Póllandi: Ísland endaði í 13. sæti.
2014 – EM í Danmörku: Ísland endaði í 5. sæti.
2012 – EM í Serbíu: Ísland endaði í 10. sæti.
Eigum við ekki bara að stilla væntingum í hóf og sætta okkur
við það að barningurinn snýst um að vera á topp tíu á heims-
listanum? Ef einhverjir ættu að biðjast afsökunar eru það
sérfræðingarnir, hvort sem þeir sitja í stúdíói eða í sófanum
heima, sem gerðu óraunhæfar kröfur á annars frábært lið
Íslands.
En við vinnum Júróvisjón í vor!
Góðar stundir og áfram Ísland!
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Sérfræðingarútan úti á túni
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 690 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 835 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
AFLATÖLUR | Dagana 15.–21. janúar á Norðurlandi vestra
Málmey SK 1 með tæp 127 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Hafrún HU 12 Dragnót 738
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 5.888
Samtals á Skagaströnd 24.437
HVAMMSTANGI
Sjöfn SH 4 IGPL 5.218
Samtals á Hvammstanga 5.218
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 106.135
Málmey SK 1 Botnvarpa 126.997
Samtals á Sauðárkróki 233.132
SKAGASTRÖND
Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína 17.811
Á Skagaströnd lönduðu þrír bátar rúmum 24
tonnum í sex löndunum. Gulltoppur GK 24 var
aflahæstur með tæp 18 tonn, Sæfari HU 212
með tæp 6 tonn og svo Hafrún HU 12 með 738
kg.
Á Króknum lönduðu Drangey og Málmey
rúmum 233 tonnum og var Málmey með tæp 127
tonn. Málmey var við veiðar á Skagagrunni og
Heiðardal og var uppistaða aflans þorskur og
ýsa. Drangey var aftur á móti við veiðar á
Þverálshorni og uppistaðan hjá henni var
þorskur og ufsi.
Enginn landaði á Hofsósi en einn bátur land-
aði tvisvar sinnum á Hvammstanga, Sjöfn SH 4,
rúmum 5 tonnum. Heildarafli á Norðurlandi
vestra var 262.787 kg í tíu löndunum. /SG
Húni segir frá því að sveitar-
félagið Skagaströnd vilji verða
leiðandi sveitarfélag í rekstri
Tónlistarskóla Austur-Húnvetn-
inga, náist samkomulag um það.
Í fundargerð sveitarstjórnar
Skagastrandar, sem vitnað er í,
kemur fram að til umræðu hafi
verið erindi Húnabyggðar um
vilja sveitarfélagsins til þess að
slíta samstarfsverkefnum sem
rekin eru í byggðasamlögum
eins og um félags- og skóla-
þjónustu, tónlistarskóla og
menningar- og atvinnumál.
Húni segir: „Í fundargerð-
inni kemur fram að slitameð-
ferð Byggðasamlags um menn-
ingar- og atvinnumál sé hafin
og að sveitarstjórn Skagastrand-
ar samþykki slit á Félags- og
Skólaþjónustu A-Hún. í sam-
ræmi við ákvæði laga. Miða
skuli við tveggja ára tímaramma
laganna nema ásættanleg lausn
finnist á skemmri tíma og
þjónustunni verði komið í
annan farveg án óásættanlegs
kostnaðarauka eða skerðingar á
þjónustu við íbúa. Þá lýsti
sveitarstjórn vilja til þess að
verða leiðandi sveitarfélag í
rekstri Tónlistarskóla Austur-
Húnvetninga, náist samkomu-
lag um það, eins og áður sagði.“
/ PF
Austur Húnavatnssýsla
Byggðasamlögum slitið
Heiðmar Gunnarsson
MYND AÐSEND
Söngkeppni NFNV
Heiðmar sigraði
með Another Love „Fólk er afar ánægt með Skólabúðirnar og ég
heyri ekkert nema jákvætt um þær í sveitar-
félaginu,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir,
sveitarstjóri Húnaþings vestra, í umfjöllun um
búðirnar á heimasíðu UMFÍ.
Unnur Valborg fundaði með Auði Ingu
Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ,
og Sigurði Guðmundssyni, forstöðumanni
Skólabúðanna á Reykjum, um búðirnar í
síðustu viku. Í fréttinni kemur fram að UMFÍ
hafi tekið við rekstri skólabúðanna undir lok
síðasta sumars og réðst samstundis í um-
fangsmiklar endurbætur á húsnæðinu með
starfsfólki sveitarfélagsins sem kom að þeim
af fullum þunga. Starfsfólk er allt búsett í
héraðinu og er allur mögulegur aðbúnaður
og þjónusta keypt í sveitarfélaginu.
Í Skólabúðirnar koma á fjórða þúsund
nemenda 7. bekkjar úr grunnskólum lands-
ins á hverju skólaári með kennurum og
umsjónarfólki nokkra daga í senn og fá
nemendurnir tækifæri til að efla og styrkja
leiðtogahæfileika sína og sjálfsmynd og bæta
félagsfærnina. /PF
Skólabúðirnar á Reykjum
Mikil ánægja
Kátir krakkar í Skólabúðunum á Reykjum. MYND; UMFI.IS
2 04/2023