Feykir


Feykir - 25.01.2023, Qupperneq 5

Feykir - 25.01.2023, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Subway-deildin í körfunni fór í gang á ný sl. fimmtudagskvöld eftir örlítið bikarhlé. Tinda- stólsmenn héldu suður í Breið- holt þar sem stigaþyrstir ÍR-ingar biðu þeirra í Skógarselinu. Það má alltaf reikna með hörkuleik þegar Stólarnir sækja ÍR heim og það varð engin breyting á því þetta kvöld, mikið jafnræði með liðunum þar til í fjórða leik- hluta að gestirnir sýndu hvað í þeim býr og þeir rúlluðu norður með stigin tvö og kampakátan nýjan þjálfara, Pavel Ermolinskij. Lokatölur 81-96 og Stólarnir stukku þar með upp í fimmta sæti. Heimamenn fóru betur af stað en Pétur kom sínum mönnum yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar hann setti niður fyrsta þristinn sinn af fjórum og staðan 10-11. Stólarnir höfðu síðan frum- kvæðið út fyrsta leikhlutann og staðan 17-21 að honum loknum. Allt var hnífjafnt, staðan 65-65, þegar fjórði leikhluti hófst og fyrsta karfan í honum kom ekki fyrr en tæpar tvær mínútur voru liðnar. Þá skellti Frábær fjórði leikhluti Stólanna færði liðinu sigur í Breiðholtinu Subway-deildin | ÍR - Tindastóll 81–96 Pétur Rúnar í leik gegn meisturum Vals milli jóla og nýárs. Hann var bestur í liði Tindastóls þegar liðið mætti ÍR. MYND: HJALTI ÁRNA Arnar í þrist og í kjölfarið fylgdu körfur frá Sigga, Tai, Pétri og Ragga og staðan skyndilega orðin 65-77 og ÍR- liðið í slæmum málum. Frá- bær kafli Stólanna þar sem allt gekk upp og það er skemmst frá því að segja að heimamenn náðu aldrei að klóra í bakk- ann síðustu mínúturnar og Tindastólsmenn fögnuðu mikilvægum sigri fyrir fram- an fjölmennt og fjörugt stuðn- ingsmannalið sitt. Með sigrinum skutust Stólarnir upp í fimmta sæti með 14 stig en á morgun, fimmtudag, mæta þeir liði Njarðvíkinga. Valsmenn tróna á toppi deildarinnar með 20 stig en Keflavík, Njarðvík og Haukar eru öll með 18 stig. Ef Tindastólsmenn ætla sér heimavallarrétt í úrslitakeppn- inni þá þurfa þeir að fara að hala inn stig gegn liðunum fyrir ofan þá í deildinni. Áfram Tindastóll! /ÓAB Um helgina mættust Tindastóll og Vestri í 11. flokki karla í Síkinu og var fyrri leikurinn spilaður á laugardeginum og sá seinni á sunnudeginum. Hart var barist frá fyrstu sekúndu í fyrri leiknum og okkar strákar alltaf skrefi á undan en Vestramenn komu alltaf til baka og staðan í hálfleik 39-35 fyrir Tindastól. Áfram hélt baráttan í seinni hálfleik og var greinilegt að hvorugt liðið ætlaði að gefa eftir. Þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum komust Vestramenn einu stigi yfir og Tindastóll tók leikhlé til að setja upp í kerfi. Innkastið var tekið og átti Axel Arnars lokaskotið og skoraði sigurkörfuna þegar 2,7 sekúndur voru eftir af leiktímanum og fögnuðu strákarnir vel í leiks- lok. Á sunnudeginum mættust liðin í seinni leik helgarinnar og var staðan 19-11 fyrir okkar strákum eftir fyrsta leikhluta þar sem þeir hittu fjórum þristum. En áfram hélt baráttan og undir lok hálfleiksins gáfum við eftir og staðan 30-26 fyrir Tindastól. Í þriðja leikhluta var sama upp á teningnum og lauk honum 46-38. Vestramenn komu ákveðnari til leiks í fjórða leikhluta og þrátt fyrir fullt af opnum skotum hjá okkar strákum vildi boltinn ekki ofan í og unnu Vestramenn leikinn 58-62. Eftir leiki helgarinnar situr 11. flokkur karla í 6. sæti í 2. deildinni með átta stig eftir níu leiki, fjórir sigrar og fimm töp. Þeir eiga næst leik gegn Þór Ak. þann 25. janúar í Glerárskóla en þeir sitja í níunda sæti. Á Feykir.is má sjá þegar Axel Arnars skorðaði sigurkörfuna þegar 2,7 sek. voru eftir af leik- tímanum í fyrri leik liðanna. /SG Körfuknattleiksdeild Tindastóls | 11. flokkur karla Sigurkarfan kom þegar 2,7 sek. voru eftir Lið Tindastóls spiluðu sinn hvorn leikinn á Kjarnafæðis- mótinu sl. laugardag og var leikið á Akureyri. Stelpurnar mættu FHL, sameiginlegu liði Austfirðinga, og höfðu sigur en strákarnir lutu í gervigras gegn liði Völsungs. Strákarnir hófu leik kl. 17 og það tók andstæðingana aðeins sjö mínútur að koma boltanum í markið en þá skoraði Gestur Sörensson. Aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Eysteinn Bessi Sigmarsson metin en sigurmark leiksins kom á 33. mínútu en þar var á ferðinni Árni Fjalar Óskarsson. Ekkert mark var því skorað í síðari hálfleik en tveir leikmanna Völsungs fengu að líta rauða spjaldið, fyrst Óskar Ásgeirsson á 77. mínútu og síðan Jakob Gunnar Sigurðsson á 90. mínútu. Ekki tókst Stólunum að nýta sér liðsmuninn á þessum skamma tíma og 1-2 tap því staðreynd. Stólarnir hafa nú spilað alla fjóra leiki sína í mótinu og hefja ekki leik í Lengjubikarn- um fyrr en í byrjun mars. Þeir nældu í eitt stig í þessum fjórum leikjum. Stelpurnar mættu Austfirð- ingum á Greifavellinum og þar leit eina mark leiksins ljós strax á 2. mínútu og það gerði Aldís María. Bæði lið tefldu fram ansi ungum mannskap og í raun aðeins þrír leikmenn á skýrslu sem fæddust á síðustu öld – sem sagt 23 ára eða eldri. Yngst á vellinum var Elísa Bríet Björnsdóttir frá Skagaströnd en hún verður 15 ára á þessu ári. Bekkjarsystir hennar frá Skaga- strönd, Birgitta Rún Finnboga- dóttir, leysti hana síðan af á 86. mínútu. Lið Tindastóls á eftir að spila einn leik á Kjarnafæðis- mótinu, gegn liði Völsungs, sem fram átti að fara 4. febrúar. Honum hefur hins vegar verið frestað þar sem lið Tindastóls á leik gegn Keflavík daginn eftir í Lengjubikarnum. /ÓAB Kjarnafæðismótið í knattspyrnu Sigur og tap hjá liðum Tindastóls Stólastúlkur spiluðu í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ á laugardaginn í fimmtánda leik sínum í 1. deild kvenna. Heimastúlkur í Stjörnunni hafa á að skipa sterku liði og tróna á toppi deildarinnar með þrettán sigurleiki og aðeins eitt tap. Lið Tindastóls hefur aðeins unnið tvo leiki í vetur en reynir nú að koma fótunum undir sig. Leikurinn var sveiflukenndur en aðeins tveimur stigum mun- aði í hálfleik. Heimastúlkur byggðu upp forskot í þriðja leikhluta og unnu að lokum sigur, 86-72. Lið Tindastóls rústaði Stjörnunni í fráköstum, hirtu 61 frákast á meðan heima- stúlkur tóku 41. Lið Tindastóls hitti betur innan 3ja stiga línunnar en ógnin var lítil sem engin utan hennar. Liðið tók aðeins tólf 3ja stiga skot og hitti úr tveimur á meðan Stjarnan setti niður átta í 35 tilraunum. Næst er það KR. 1. feb. /ÓAB 1.deild kvenna | Stjarnan – Tindastóll 86-72 Stjörnustúlkur höfðu betur gegn liði Tindastóls 11. flokkur Tindastóls karla á móti Vestra í Síkinu um helgina MYND OG TEXTI : HJALTI VIGNIR SÆVALDSSON. Aldís María í leik gegn liði Víkings sl. sumar. MYND: ÓAB 04/2023 5

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.