Feykir - 25.01.2023, Síða 9
Hvernig nemandi varstu? Svona
oftast miðjumoðari.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Fermingar-
kortið sem á stóð Erla Atladóttir
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? Kennari og
hestakona eins og Imba kennari
sem kom ríðandi í skólann.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Það voru plastdýrin mín, ég
rak búgarð með þeim dýrum,
útihús úr legó og girðingar úr
tvinnakeflum.
Besti ilmurinn? Af nýfæddum
lömbum
Hvar og hvenær sástu núver-
andi maka þinn fyrst? Það var
á skrifstofu Skagstrendings sum-
arið 1999, ég nýflutt til Skaga-
strandar og hann kom að snuðra
þegar fréttist að mættur væri nýr
starfsmaður. :-D
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Það var
nú ýmislegt sem tekið var upp
á kasettu og hún svo spiluð í
ræmur á rúntinum á Akranesi.
Allt frá ballöðum í þungarokk, fór
bara eftir því hvernig stóð á.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Erla Jónsdóttir
ÁRGANGUR: 1974.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Jóhanni Inga Ásgeirssyni og saman eigum við
tvö börn, Freyju Dís 19 ára og Loga Hrannar 14 ára.
BÚSETA: Kambakoti í Skagabyggð.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er aðflutt, ólst upp
á Álftanesi á Mýrum þar til ég var 14 ára og þá flutti fjölskyldan til
Akraness.
STARF / NÁM: Framkvæmdastjóri Lausnamiða ehf, oddviti Skaga-
byggðar, stjórnarformaður Stapa lífeyrissjóðs o.fl.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Að taka inn tvö hross í vetur og njóta að vera til.
Erla Jóns
Hvernig slakarðu á? Leggst í
sófann og kveiki á imbanum, ef ég
þarf hins vegar endurnæringu þá
fer ég í göngutúr eða á hestbak.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Horfi nú sjaldnast
á línulega dagskrá nema þá helst
EM eða HM í handbolta.
Besta bíómyndin? Stella í orlofi,
hún kemur manni alltaf til að
hlæja.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft að
dúsa þar einn dag. Hver værirðu
til í að vera og hvað myndirðu
gera? Ég myndi vilja vera fjár-
málaráðherra og þá myndi ég
breyta skattkerfinu þannig að-
stöðumunur landsmanna yrði
jafnaður.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Margir góðir en
ég dáist mjög að þeim Sveindísi
Jane og Glódísi Perlu.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Púff, þau geta öll
toppað mig ef þau bara vilja.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ætli það sé ekki „kjöt
í röstý.“
Hættulegasta helgarnammið?
Heitt súkkulaði með einhverju
góðu út í.
Hvernig er eggið best? Hænu-
eggin eru best svona varla
harðsoðin en hettumáfseggin
alveg linsoðin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Segi alltof sjaldan nei.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óheiðarleiki.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Lífið er æði.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Það er þegar ég fór í
kaupstaðinn með mömmu til þess
að kaupa mér typpi og bræður
mínir gerðu þvílíkt grín að mér
þegar ég sagði þeim að það hefði
ekki verið til í búðinni.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Uppáhalds-
bókin mín í mörg ár var Helgi fer
í göngur ég kunni hana næstum
alla utan að, í dag les ég meira
fræðibækur og sögur byggðar á
raunverulegum atburðum.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? „Þú segir...“
Hvaða þremur persónum vild-
irðu bjóða í draumakvöld-
verð? Það væru Svafa Grönfeldt,
Guðfinna S. Bjarnadóttir og
Guðrún Högnadóttir, þetta eru
konur sem ég hef mikið litið upp
til og væri pottþétt áhugavert að
kynnast yfir góðum kvöldverði
en ég þekki enga þeirra í dag.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Úff,
núna í þessum kulda myndi ég
örugglega bara velja fyrstu ferð
fjölskyldunnar til Tenerife.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? „Bara Erla” – fólki hefur
alltaf fundist það svo lítið að heita
„bara Erla“ en ævisagan myndi
nú sennilega enda í ritröð. :-D
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... til Tenerife.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en
þú gefur upp öndina: Spilla
barnabörnunum (sem ekki
eru getin enn) Klára að byggja
jarðirnar mínar upp og fara í fleiri
hestaferðir.
04/2023 9