Feykir - 25.01.2023, Qupperneq 10
„Þyrey Hlífarsdóttir heit ég, gift
Degi Þór Baldvinssyni. Við eigum
þrjú börn Evu Rún, Hlífar Óla og
Baldvin Orra. Við búum í Víðiholti
og starfa ég sem grunnskóla-
kennari í Varmahlíðarskóla þar
sem ég kenni umsjónarkennslu í
1. - 2. bekk auk þess sem ég kenni
textílmennt við skólann. Ég tek
glöð við áskorun frá Stefaníu
ömmusystur minni um að segja
aðeins frá því hvað ég er með á
prjónunum,“ segur áskorandi
hannyrðaþáttar Feykis að þessu
sinni. Gefum Þyrey orðið.
„Alveg frá því ég man fyrst eftir mér
hef ég haft mikinn áhuga á öllu
handverki og hannyrðum. Oft þótti
mér fúllt að mamma mín gerði litla
sem enga handavinnu og því var
ekki til mikið af garni, prjónum eða
efni til að vinna úr heima hjá mér. Ég
var þó svo heppin að föðuramma
mín bjó á efri hæðinni hjá okkur,
en hún var mikil hannyrðakona og
lærði ég margt af henni, þá aðallega
í saumaskap og endurnýtingu.
Móðuramma mín er líka mikil
hannyrðakona og gerir enn mikið af
fallegu handverki og á alltaf eitthvað
til í prjónakassanum sínum þegar
barnabörnin og langömmubörnin
eru með kaldar hendur eða fætur. Ég
er svo heppin með það að eiga marga
að í kringum mig sem kunna vel til
verka þegar kemur að hannyrðum.
Síðustu ár hef ég t.d. farið á hverju
sumri í nokkra daga til frænku
minnar Hólmfríðar Ófeigsdóttur
sem býr á sveitabæ í Vopnafirði. Hún
kenndi mér að jurtalita band og
höfum við átt dásamlegar stundir
saman við þessa iðju. Það er
ómetanlegt að læra til verka af fólki
sem býr yfir þekkingu og vinnu-
brögðum sem hafa verið viðhöfð í
áraraðir og mikilvægt að þekkingin
viðhaldist.
Ég er oftast með nokkur verkefni
á prjónunum í einu og stundum
helst til of mörg. Núna er ég t.d. með
þrjár peysur á prjónunum og aðrar
þrjár sem ég á aðeins eftir að ganga
frá, setja í rennilás, þvo og leggja til.
Mér finnst mjög gaman að flest allri
handavinnu, fatasaum, útsaum,
perlusaum, hekla, prjóna, lita garn
o.fl. Það er þó ansi margt sem ég á
ennþá eftir að læra og er ég með
margt á listanum mínum sem mig
langar að læra. Það sem er næst á
stefnuskránni hjá mér er að læra að
vinna ull, kemba og spinna. Það væri
gaman að geta unnið band úr ull af
kindunum hér á bænum. En við
sjáum til hvort það verður að
veruleika einn daginn.“
Þyrey skorar á samstarfskonu sína,
Írisi Olgu Lúðvíksdóttur, að segja frá
því sem hún er með á prjónunum.
,, Það væri gaman að geta unnið
band úr ull af kindunum hér á bænum,,
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM? ) klara@nyprent.is
Þyrey Hlífarsdóttir VíðiholtI í Varmahlíð
Þyrey.
AÐSENDAR MYNDIR.
Peysan Frost eftir Ömmu Loppu, prjónuð 2022. Húfa og hringtrefill, Winter Triangle frá Drops, prjónað. Peysan Riddari prjóuð 2022, munstur úr
jurtalituðum léttlopa.
Jurtalitað band, litað sumarið 2022. Ungbarnasett prjónað í skírnargjöf handa litlum frænda 2022.
10 04/2023