Þroskaþjálfinn - 2003, Síða 7
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
skrifar fró Sauðórkróki
Á haustdögum kom útgáfuráð Þroska-
þjálfans að máli við mig og spurði hvort ég
væri ekki til í að skrifa um hvað þroska-
þjálfar í Skagafirði væru að gera. Eg tók
ekkert illa í það þó ég hefði ekki grænan
grun um hvað ég ætti að skrifa. Niðurstað-
an var sú að stikla kannski á stóru hvernig
málefnum fatlaðra er háttað hér í Skaga-
firði árið 2002.
Árið 1998 gerði samband sveitafélaga
á Norðurlandi Vestra samning við Félags-
málaráðuneytið, þess efnis að svæðisskrif-
stofan yrði lögð niður og sveitafélögin
tækju að sér þá þjónustu sem hún hefði
innt af hendi. Sambýlin og skammtíma-
vistun yrðu samt ekki á þeirra vegum
heldur myndi Byggðarsamlag um málefni
fatlaðra hafa yfirumsjón með þeim rekstri.
Nýr samningur var svo gerður 2002 og þá
varð sú breyting að sveitarfélögin tóku
einnig við rekstri sambýla á sínum svæð-
um.
Á Sauðárkróki eru í dag tvö sambýli,
annað með sjö íbúa og hitt með tvo, Iðja
(verndaður vinnustaður), starfsbraut í fjöl-
brautaskólanum og námsver í grunnskól-
anum. Hér er einnig staðsett skammtíma-
vistun sem þjónar svæðinu frá Siglufirði
að botni Hrútafjarðar.
Hjá félagsþjónustu Skagafjarðar eru
starfandi tveir þroskaþjálfar í ráðgjafastöð-
um; Þuríður Ingvarsdóttir sem er deildar-
stjóri í málefnum fatlaðra 18 ára og eldri,
sér meðal annars um sjálfstæða búsetu, lið-
veislu og frekari liðveislu. Dóra Heiða
Halldórsdóttir er deildarstjóri málefna
fatlaðra 17 ára og yngri. Hún er einnig
forstöðuþroskaþjálfi í skammtímavistun
og sér um leikfangasafnið. Undirrituð er
forstöðuþroskaþjálfi í Iðju-Hæfingu og
þar til í haust sá þroskaþjálfi um verkefnið
Atvinna með stuðningi (Ams).
Nú í haust var sett á laggirnar þjón-
ustuteymi fatlaðra þar sem sitja þrír áður-
nefndir þroskaþjálfar ásamt forstöðu-
mönnum sambýla, starfsmanni Ams og
framkvæmdastjóra Fjölskyldu- og þjón-
ustusviðs. Hlutverk teymisins eru eftirfar-
andi:
Að fara yfir mál þeirra einstaklinga
með fötlun sem eru með „samsetta"
þjónustu og meta hvort hún sé við
hæfi
Að málefni hvers einstaklings með
fötlun séu tekin fyrir amk. einu sinni á
ári
Hafa umsjón um ferðaþjónustu fatl-
aðra.
Nú eftir áramótin er hugmyndin að
auka tengsl Iðjunnar við vinnumarkaðinn
enn frekar. I samstarfi við starfsmann Ams
er ætlunin að bjóða flestum ef ekki öllum
fötluðum starfsmönnum Iðju-Hæfingar
starfsþjálfun á almennum vinnumarkaði,
sem ekki eru nú þegar í vinnu. Unnið
verður eftir hugmyndafræði Ams og
munu almennir starfsmenn Iðju verða til
aðstoðar.
Að lokum langar mig að nefna verk-
efni sem við hér í Skagafirði erum sérstak-
lega stolt af. Snemma árs 2001 byrjaði ég
í samstarfi við fleiri að bjóða upp á reið-
þjálfun einu sinni í viku þar sem starfs-
menn með fötlun fóru á vinnutíma úr Iðj-
unni. Tilgangurinn var að bjóða upp á
hestamennsku sem aíþreyingu en auk þess
að leyfa þeim sem sitja í hjóiastól að upp-
lifa þessar gönguhreyfingar sem við hin
upplifum og ekki var verra að vera nú
loksins hærri en þeir sem í kringum mann
voru. I byrjun voru sjö sem nýttu sér
þetta, þar af þrír sem eru í hjólastól. I
stuttu máli hefur þetta gefist afskaplega
vel og hefur alltaf verið að vinda upp á sig.
I dag er svo komið að níu starfsmenn með
fötlun fara á hestbak úr Iðjunni, tveir
nemendur koma úr Námsveri grunnskól-
ans og nú alveg á næstunni ætlar starfs-
braut fjölbrautaskólans að byrja með
hestamennsku tvisvar sinnum í viku.
Grunnskólinn metur þetta sent líkams-
þjálfun og greiðir fyrir nemendur sína sem
íþróttatíma. Sjúkraþjálfarar hér á staðnum
hafa líka verið að sýna þessu áhuga og
mælt með aukningu næsta vetur fyrir sitt
fólk. I sumar gaf Skagafjarðardeild Rauða
kross Islands sérsmíðaðan hnakk sem ger-
ir knapann sjálfstæðari og minnkar þann
stuðning sem aðstoðarmaður þarf að veita.
Reiðhöllin sem við nýtum í reiðmennsk-
unni er rétt við hesthúsahverfið hér á
Sauðárkróki og ég hafði sérstaklega gaman
af því þegar hinn almenni hestamaður
kom og kíkti á hvað væri eiginlega um að
vera í húsinu. Að mínu mati hefur þetta
heppnast mjög vel og sýnt að hesta-
mennska er einstaklingum með fötlun
mjög gefandi og eykur lífsgæði þeirra og
möguleika á að njóta þeirra tómstunda
sem við hin njótum.
Steinunn Rósa GuSmundsdóttir
B.ed. íproskaþjálfun frá KHI2000
ForstöSuþroskaþjálfi ISju-Hcefingar,
SkagafirSi