Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 8
Snemmtæk atferlisíhlutun
fyrir börn með einhverf u
Samvinnuverkefni Ráðgjafar- og sálfræðideildar Leikskóla Reykjavíkur og
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Um verkefnið
Haustið 2001 fór af stað umfangsmik-
ið þróunarverkefni undir stjórn Sigrúnar
Kristjánsdóttur þroskaþjálfa á Ráðgjafar-
og sálfræðideild (RAS) Leikskóla Reykja-
víkur (LR) og Guðnýjar Stefánsdóttur
þroskaþjálfa á Greiningar- og ráðgjafar-
stöð ríkisins (GRR). Verkefnið ber heitið
„Snemmtæk atferlisíhlutun fyrir börn með
einhverfu“ og fjallar um skipulag, ferli og
gæði atferlisíhlutunar fyrir börn með ein-
hverfu.
Tilgangur þessa yfirlits er að segja frá
markmiðum verkefnisins og skýra í stuttu
máli þá verkþætti sem þau innihalda.
Þátttakendur og framkvæmd
Þrjú ung börn með einhverfu, fjöl-
skyldur þeirra og þjónustuteymi eru þátt-
takendur í verkefninu. Foreldrar barnanna
óskuðu eftir snemmtækri atferlisíhlutun
og hófst sú þjálfun haustið 2001 í þremur
leikskólum Reykjavíkurborgar. Hvert
barn nýtur þjónustu þroskaþjálfa, leik-
skólakennara og/eða aðila með B.A. í sál-
arfræði.
Unnið er út frá aðferðum sem Dr. Ivar
Lovaas og Dr. Tristram Smith hafa þróað
í tengslum við rannsóknir á áhrifum at-
ferlismeðferðar á börn með einhverfu.
Snemmtæk atferlisíhlutun (behavioral
early intervention) merkir í þessu sam-
hengi meðferð/þjálfun ungra barna með
einhverfu byggða á hagnýtri atferlisgrein-
ingu. I daglegu tali er algengast að talað sé
um atferlismeðferð.
I maí 2002 var lokið við gerð þróunar-
áætlunar en hún er unnin af okkur Sig-
rúnu með aðstoð Ólafs H. Jóhannssonar
lektors í stjórnsýslufræðum við Kennara-
Guðný stundar nú framhaldsnám í þroskaþjálfun
jafnhliða starfi sínu á fagsviði einhverfu og
málhamlana á Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins.
háskóla Islands þar sem við stundum
framhaldsnám. Starfsfélagar okkar þau
Agnes Elídóttir þroskaþjálfi, Sigríður Lóa
Jónsdóttir sálfræðingur, Helgi Hjartarson
sálfræðingur, Þórhalla Guðmundsdóttur
leikskólasérkennari og Anna Lind Péturs-
dóttir sálfræðingur mynda með okkur
stýrihóp sem fundar reglulega. Stýrihóp-
urinn vann að gerð þróunaráætlunar
ásamt því að útfæra nú einstaka þætti
verkefnisins. Yfirmenn oklear þau Evald
Sæmundsen sviðsstjóri fagsviðs einhverfu
og málhamlana á GRR og Margrét Vallý
Jóhannsdóttir yfirmaður fagsviðs LR,
funda reglulega með stýrihópnum og
fylgjast með verkefninu.
Um markmið verkefnisins
Þróunarverkefninu er ætlað að verða
nokkurskonar uppskrift eða verkáætlun
um hvernig æskilegt sé að skipuleggja og
framkvæma snemmtæka atferlisíhlutun
fyrir börn með einhverfu í leikskólum,
þannig að hún standist kröfur um gæði.
Lagðar eru til grundvallar niðurstöður
rannsókna á áhrifum atferlismeðferðar á
börn með einhverfu, ásamt reynslu og
þekkingu sérfræðinga á því sviði hérlendis
og erlendis.
Verkefninu er ætlað að hafa í för með
sér þann ávinning að auka lífsgæði barna
með einhverfu og fjölskyldna þeirra, gera
fleiri börnum með einhverfu mögulegt að
njóta árangursríkrar þjálfunar innan leik-
skóla og að stuðla að faglegum og gæða-
stýrðum vinnubrögðum.
Markmið verkefnisins eru:
Að byggja upp þekltingu og reynslu á
öllum stigum þjónustunnar.
Að skipulag og framkvæmd uppfylli
kröfur um fagleg gæði.
Að gera snemmtæka atferlisíhlutun
sýnilegri og skoða hvort hún sé fram-
kvæmanleg innan leikskólans.
Að útbúa verkáætlun/verklýsingu sem
slcýrir þjónustuferli og verkaskiptingu.
Með markmiðum er skilgreint í hverju
gæðin eiga að felast og hvaða umbætur
eiga sér stað í ferlinu. Hverju markmiði er
skipt niður í verkþætti til nánari útfærslu
og þróunar.
Verkefnið stendur yfir í tvö ár og hef-
ur hver liður verið settur inn á tímaplan
og er yfirumsjón verkþátta skipt á milli
þátttakenda.
I markmiðum felst m.a.: