Þroskaþjálfinn - 2003, Blaðsíða 9
Þessi mynd er af lan Anthony og Hrefnu
þroskoþjálfa þau eru bæði þátttakendur i
þróunarverkefninu.
Að byggja upp þelddngu og reynslu
á öllum stigum þjónustunnar:
Sigrún Kristjánsdóttir og Þórhalla
Guðmundsdóttir eru nú í ráðgjafanámi
undir handleiðslu Agnesar Elídóttur,
Guðnýjar Stefánsdóttur og Sigríðar Lóu
Jónsdóttur. Starfsþjálfun ráðgjafa í aðferð-
um atferlismeðferðar miðar að því að þeir
uppfylli gæðakröfur sem gerðar eru til
meðferðarráðgjafa. Utbúin verður lýsing á
starfsþjálfun og námi m.t.t. þeirra gæða-
krafna sem gerðar eru erlendis og er henni
ætlað að verða leiðbeinandi fýrir aðra sem
hafa áhuga á þessari leið. Gerð verður
áætlun um hvernig beri að viðhalda þekk-
ingu ráðgjafa á GRR og stuðla að sí-
menntun þeirra með aðgangi að nám-
skeiðum, ráðstefnum og reglulegri þjálfun
erlendis. Verkefninu er einnig ætlað að
stuðla að því að þjálfar fái tækifæri til þess
að auka við þekkingu sína.
Lögð er áhersla á að kenna og leið-
beina foreldrum og þjálfum að nota að-
ferðir og tækni meðferðarinnar á réttan
hátt og að fræða allt starfsfólk leikskólans
um einhverfu og snemmtæka atferlisíhlut-
un. Þetta er gert með fræðslufundum,
námskeiðum, þjálfunarvinnufund-
um(workshops) og gerð fræðsluefnis.
Einnig er ráðgert að byggja upp að-
gengilegt safn upplýsinga fyrir foreldra,
þjálfa, ráðgjafa og aðra sem tengjast atferl-
isíhlutun.
Að skipulag og framkvæmd uppfylli
kröfur um fagleg gæði:
Verkefninu er ætlað að sýna fram á
hvaða lágmarkskröfur þurfi að uppfýlla á
öllum stigum þjónustunnar svo hægt sé að
bjóða upp á snemmtæka atferlisíhlutun
sem stenst kröfur um fagleg gæði. Bornar
verða saman gæðakröfur hérlendis og er-
lendis þar sem reynsla er meiri. Gert er ráð
fýrir að nýta m.a. upplýsingar úr handbók
New York fýlkis „Clinical Practice
Guideline, Report of the Recommenda-
tions“ við uppbyggingu þjónustunnar.
Að gera snemmtæka atferlisíhlutun
sýnilegri og skoða hvort hún sé fram-
kvæmanleg innan leikskólans:
Þessu markmiði er ætlað að ná með
því að kynna þróunarverkefnið og
snemmtæka atferlisíhlutun fýrir starfs-
mönnum þeirra stofnana sem verkefnið
tekur til, hjá fagfélögum, hagsmunasam-
tökum og með greinarskrifum.
Að útbúa verkáætlun/verldýsingu
sem skýrir ferli og verkaskiptingu:
Slík áætlun yrði leiðbeinandi fýrir
skipuleggjendur þjónustu, foreldra barna í
snemmtækri atferlisíhlutun og aðra þá
sem koma að þjónustu við þau. Verkáætl-
unin ætti að svara spurningum um hvern-
ig ber að undirbúa atferlisíhlutun, hvaða
skilyrði þarf að uppfýlla í leikskóla, ráð-
gjafarþjónustu og heima og hver ber
ábyrgð á tilteknum verkum.
Mat á framgangi verkefnisins
Framgangur verkefnisins er metinn
reglulega og fer næsta heildarmat fram í
apríl 2003. Aðilar stýrihópsins vinna
markvisst að verlcþáttum markmiðanna og
í þeirri vinnu skapast svigrúm fýrir nýjar
hugmyndir. Þróunarstarf sem þetta veitir
töluvert svigrúm til að útfæra og prófa
nýjungar.
Avinningur
Reiknað er með að verkefnið skili
hagnaði þegar til lengri tíma er litið. Gerð-
ar hafa verið rannsóknir um beinan fjár-
hagslegan ávinning af áhrifum atferlis-
meðferðar fýrir börn með einhverfu til
dæmis „Financial Cost and Benefits of In-
tensive Early Intervention for Young
Children with Autism“ (Jacobson,
Mulick, Green. 1996).
Niðurstöður rannsókna af þessu tagi
þarf að skoða betur í tengslum við þessa
þróunaráætlun. Gert er ráð fýrir að skipu-
lag og þjónusta sem þessi leiði af sér minni
þjónustuþörf.
Þróunarverkefninu er ætlað að hafa í
för með sér þann ávinning að auka lífs-
gæði barna með einhverfu og fjölskyldna
þeirra ásamt því að gera fleiri börnum með
einhverfu mögulegt að njóta árangursríkr-
ar þjálfunar.
Það er von þeirra sem vinna að verk-
efninu að það hafi einnig í för með sér fag-
legan ávinning og að það innihaldi raun-
hæfa áætlun sem miðast við raunverulegar
þarfir. Ef verkefnið hefur notagildi á öll-
um stigum þjónustunnar aukast líkur á að
þróunaráætlunin nái að festast í sessi og
stuðli að framþróun.
Styrktaraðilar
Vísindasjóður Þroskaþjálfafélags Is-
lands hefur styrkt Agnesi Elídóttur og
undirritaða mjög myndarlega og er ætlun-
in að nýta þann fjárstyrk í gerð fræðsluefn-
is, má þar nefna þjálfunaráætlanir (aðferð-
ir, útfærsla og gögn) og vinnslu verklags-
reglna fýrir gæðastýrða íhlutun. Styrktar-
sjóður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
ríkisins, til minningar um Þorstein Helga
Ásgeirsson, hefur einnig styrkt verkefnið.
GuSný Stefánsdóttir þroskaþjálfi og ráSgjafi
í snemmtakri alferlisíhlutun. FagsviSi
einhverfu og málhamlana, Greiningar-
og ráSgjafarstöS ríkisins.
GuSnj hefitr starfaS sem þroskaþjálfi síSan
1986, mest viS greiningu, þjáfim og
ráSgjöf til foreldra ungra harna meS
fatlanir ogþjónustuveitenda þeirra. SíS-
ustu ár hefur GuSný sérhœfi sig á sviSi
alferlisíhlutunarfyrir ung börn meS ein-
hverfu og skyldar fatlanir og aflaS sér
þekkingar m.a. í Noregi til aS veita sér-
hœfSa ráSgjöf á því sviSi.
Q