Þroskaþjálfinn - 2003, Síða 10

Þroskaþjálfinn - 2003, Síða 10
Animal Asissted Theranv MEÐFERÐARLEGT GILDI HUNDA FYRIR BÖRN OG UNGLINGA MEÐ EINHVERFU Hlutverk hundsins: „Þegar hundurinn var skapaður sleikti hann hönd Guðs og Guð strauk hundinum um höfuðið og sagði: „Hvað vantar þig hundur?“ Hundurinn svaraði, „Herra minn, ég vil vera hjá þér á himnum, sitjandi á mottu fyrir framan hliðið...“ Marie Noel. (Mery, Fernand. 1970:193). Inngangur I janúar síðastliðnum lauk ég námi mínu til B.A.-gráðu við KHI þroskaþjálfa- braut. I lokaritgerðinni skrifaði ég um meðferðarform sem hafa verið síðustu tvo áratugi í þróun víða um heim og þá helst í Bandaríkjunum. Þessi meðferðarform eru „meðferð með hjálp dýra“ og „virkni með hjálp dýra“ („Animal Assisted Therapy og „Animal Assisted Acitivity"). Þau henta mörgum markhópum í heilbrigðis -og/eða félagskerfmu s.s. blindum, börnum með klofm hrygg (cerebral palsy), heyrnar- skertum, heilasköðuðum, mænusköðuð- um, öldruðum og síðast en síst börnum og unglingum með einhverfu. I ágripi ritgerðarinnar sem ber nafnið „Meðferðarlegt gildi hunda, fyrir börn og unglinga með einhverfu“ segi ég frá aðdá- un minni frá því ég man eftir mér á loðn- um dýrum þá sérstaklega, hundum og köttum og hve oft ég hef velt eiginleikum þessara dýra fyrir mér. I starfi mínu síðast- liðna þrjá áratugi með fólki með fötlun hefur áhugi minn legið m.a. í starfi með fólki með einhverfu. Mér fannst það alveg tilvalið að láta áhuga minn á sitthvoru sviðinu njóta sín og einblíndi því á notk- un hunda í þessum meðferðarformum fyr- ir börn og unglinga með einhverfu. Til að öðlast frekari skilning á þessum meðferðarformum ákvað ég að gera vett- vangs-athugun og fékk leyfi til þess á einu af meðferðarheimilum, fyrir börn og ung- linga með einhverfu, á Reykjarvíkursvæð- inu. Mér til aðstoðar notaði ég tíkina mína BIRTU sem er af „Golden Retri- ever“ tegundinni og stóð hún sig fullkom- lega í því hlutverki án þess að hafa fengið þjálfun í það hlutverk. Sennilega er þetta önnur rannsóknin sem gerð hefur verið á þessum meðferðar- formum hér á landi. Sú fyrsta var gerð vorið 2001 af Ingibjörgu Hjaltadóttur hjúkrunarfræðingi ásamt nokkrum hjúkr- unarfræðingum. Um var að ræða eigind- lega rannsókn á því hvaða áhrif heim- sóknir hunda hefðu á Iíðan heilabilaðra sjúklinga og var rannsóknarvettvangurinn ein af öldrunarstofnunum borgarinnar. I vettvangsathugun minni studdist ég við eigindlega rannsóknaraðferð. Rann- sóknar-spurningin var: Er hægt að nýta meðferðarformin „meðferð með hjálp dýra“ og „virkni með hjálp dýra“ með öðr- um meðferðarformum sem börnum og unglingum með einhverfu standa til boða? Tilgangurinn var marg-þættur, en fyrst og fremst að varpa ljósi á gildi meðferðar-for- manna. H ugmy adafræðin Delta Society eru samtök í Bandaríkj- unum sem stofnuð voru 1977 en þau bera ábyrgð á því að safna saman því vísinda- lega rannsóknarstarfi sem framkvæmt hef- ur verið á sviði tengslamyndunar milli manna og dýra. Hlutverk þessara samtaka er að bæta heilsu manna með aðstoð þjón- ustu -og meðferðardýra. Markmiðin með starfi samtakanna eru; að auka meðvitund almennings á þeim jákvæðu áhrifum sem dýr geta haft á heilsu og þroska manna að yfirvinna hindranir sem koma í veg fyrir þátttöku dýra í daglegu lífi manna að fjölga hlutverkum, meðferðar- og þjónustudýra s.s í þjónustu, til mennt- unar og heilsu bótar (deltascoci- ety.2001). Formleg skilgreining á „meðferð með hjálp dýra“ samkvæmt Delta Society er eftirfarandi: „„Meðferð með hjálp dýra“ er meðferðarform sem notað er til að ná fram tilgreindu markmiði, þar sem dýr (sem uppfylla ákveðin skilyrði) eru notuð sem

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.