Þroskaþjálfinn - 2003, Page 11

Þroskaþjálfinn - 2003, Page 11
hluti af meðferðinni. Meðferðin er í höndum fagfólks innan heilbrigðiskerfis- ins með sérhæfingu á ákveðnu sviði og starfsreynslu innan síns sérsviðs“ (Asta B. Pétursdóttir 2000: fylgiskjal C). Markmið meðferðar er að stuðla að bættri andlegri, líkamlegri, félagslegri, tilfinningalegri og/eða vitrænni starfsemi einstaklingsins. Meðferðinni er beitt við mismunandi að- stæður og getur verið um einstaklings -eða hópmeðferð að ræða. Ahersla er lögð á að meðferðarferlið sé skráð og árangurinn metinn eftir hvern meðferðartíma. Mikil vinna felst í því að gera þau dýr sem nota skal við meðferðina hæf til að gegna þessum hlutverkum. Þeim er gert að ganga í gegnum ýmis próf og stranga þjálfun. Samkvæmt lögum um málefni fatlaðra í Bandaríkjunum eru þessi dýr („service animals“) skilgreind sem dýr er fengið hafa sérstaka þjálfun til að aðstoða fólk með fötlun við eina eða fleiri athafnir daglegs lífs s.s. að vísa veginn, að sækja ákveðna hluti, að opna hurð, að veita lík- amlegan stuðning, að bregðast við floga- veikisköstum og sykurfalli (hundurinn nemur lykt og varar eigandann við), að bregðast við ákveðnum hljóðum fyrir heyrnarskerta t.d. símahringingu, dyra- bjöllu, barnsgráti, óvæntum hljóðum frá, t.d. vatnsleka og óboðnum gesti, síðast en ekki síst að veita andlegan, tilfinningaleg- an og félagslegan stuðning. Söguleg yfirlit á notkun dýra í meðferðarskyni, stiklað á stóru Að nota dýr sem þátttakendur í með- ferðarlegum tilgangi er ekki ný hugmynd. Til eru heimildir um að Forn-Grikkir létu sjúklinga með ólæknandi sjúkdóma fara á hestbak sér til andlegrar upplyftingar. Hundar þeirra gengdu lykilhlutverki í dýrkun á Asklepios (Aesculapius) syni Apollos sem var guð lyfjafræðinnar og læknisfræðinnar. Margir guðir Forn-Eg- ypta í hundslíki komu og heimsóttu sjúka menn og þrifu þá með tungunni sem hafði mikinn lækningarmátt. Sú hugmynd að hundar græði sár og áverka á mönnum með því að sleikja þá hefur stöðugt haldist við í kristinni trú. Saint Roch sem jafnt og Asklepios birtist venjulega í félagsskap hunds virtist hafa fengið Iækningu á sárum sínum sem þjök- uðu hann, með því að hundurinn sleikti sár hans. St. Christopher, St. Bernard og margir aðrir dýrlingar tengdust hundum og margir höfðu orð á sér að vera græðar- ar (Serpell 1986:74). Eitt af fyrstu skiptum sem dýr voru notuð í meðferðarskyni inni á stofnunum átti sér stað í Englandi seint á átjándu öld á frægu hæli þekkt sem Yourk Retreat („Yourk hælið“). Þessi hugmynd var hug- arfóstur Williams Tuke sem var framsýnn Kvekari. A Yourk hælinu var beitt óvenju- Halla Harpa Stefónsdóttir ósamt Birtu lega framsýnni meðferð miðað við þær að- ferðir sem notaðar voru á öðrum stofnun- um á þessum tíma. Vistmönnum var leyft að klæðast sínum eigin fötum og þeir voru hvattir til að stunda handiðnað, til að lesa og til að skrifa bækur. Þeim var einnig leyft að ganga frjálsir um á landareigninni og í garðinum þar sem voru ýmsar teg- undir af heimilis-dýrum, s.s. kanínur og alifuglar sem sjúklingarnir voru hvattir til að umgangast og hugsa um. Tuke trúði því að dýrin hefðu þau áhrif að þau sköp- uðu mannúðlegar kenndir og færði rök fyrir því að sjúklingunum myndi aukast sjálfsstjórn með því að hugsa um verur sem eru veikari en þeir sjálfir (Serpell 1986:76). Innan heilbrigðisþjónustunnar er ein sú elsta heimild sem til er varðandi það að nota dýr í meðferðarskyni sett fram af sjálfri Florence Nightingale. Það var árið 1860 að hún getur þess að smádýr geti reynst góður félagi þeirra sem veikir eru og þá sérstaklega þeirra sem haldnir eru lang- vinnum sjúkdómum. Við hjúkrunarstörf sín bar hún litla uglu (sem hún nefndi Athena) í vasa sínum og leyfði sjúklingum að handfjatla hana, þar sem hún skynjaði jákvæð áhrif þess fýrir þá sem veikir voru. A árunum 1944-45 geta heimildir þess að dýr séu notuð í meðferðarskyni. Við ' ieg!£Sif!f£í ■

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.