Þroskaþjálfinn - 2003, Page 15
netið mikið dl að fylgjast með nýjum
straumum og stefnum. Eg hef þó fundið
það að í mínu starfi þá starfa ég ekki við
beina þroskaþjálfun. Langstærsti hluti
starfsins fer í fjármálin, starfsmannahald
og stefnumótun og sakna ég þess hversu
fjarlæg ég er orðin þeim uppruna mínum.
Mestu fræðsluna sæki ég í þá þroskaþjálfa
sem með mér starfa.
Er eitthvað sérstakt sem þig langar
að koma áframfieri við þetta tœkifœri?
Ég óska Þroskaþjálfafélaginu til ham-
ingju með nýja formanninn. Þar er rétt
manneskja á réttum stað og vonandi eig-
um við eftir að heyra mikið til hennar á
næstu árum og sjá miklar breytingar á
starfi félagsins.
Eg hef nokkrar áhyggjur af því hversu
margir þroskaþjálfar í stjórnunarstöðum
hafa lítið tækifæri til að rækta fagmanninn
í sér þar sem stöðugt er verið að gera meiri
kröfur til þeirra um góða þekkingu á
rekstri og starfsmannamálum. Þetta verð-
ur til þess að þeir eiga orðið erfiðara með
að miðla sinni þekkingu sem þroskaþjálf-
ar. Með einhverjum hætti þarf að sam-
tvinna þetta.
Einnig vona ég að þroskaþjálfum tak-
ist að koma sér meira á framfæri sem
fræðimenn, fyrirlesarar og kennarar þar
sem þroskaþjálfun er í forgrunni.
Viðtalið tók Hulda Harðardóttir.
Aðalfundur
Aðalfundur Þroskaþjálfafélags íslands
verður haldinn fimmtudaginn 8. maí, n.k.
og hefst kl. 17:00 á Grand hótel Reykjavík í Hvammi.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa
verður óskað eftir heimild fyrir stjórn félagsins
til húsnæðiskaupa.
Stjórnin