Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 17

Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 17
semi sem þar fer fram og þegar fjármagn er af skornum skammti takast gjarnan á rekstrarleg og fagleg sjónarmið. Umræðan um hverskonar inngrip í líf fólks með fötl- un er orðin almennari og krafa um að sett verði Iagaákvæði um þvingun og valdbeit- ingu í störfum með fólki með fötlun heyr- ist æ oftar. Það var ekki síst út frá þessari umræðu og stöðu þroskaþjálfa sem yfirskrift starfs- daganna sem haldnir voru á síðast liðnu hausti var: Ltigaleg og siðferðileg viðmið í nútímasamfélagi - starfsrammar þroskaþjálfiuiar. Starfsdagarnir hófust með því að Magnús Þorgrímsson framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vesturlands, kynnti fyrir okkur starfsemi svæðisskrifstofunnar og bauð að því loknu upp á léttar veitingar. Að því loknu var gengið til dagskrár. Fjall- að var um starfsvettvang og fagumhverfi þroskaþjálfa í lagalegu og siðferðilegu samhengi og út frá því sjónarhorni unnið að gerð starfsramma. Starfsrömmum þess- um er ætlað að vera leiðbeinandi gagnvart inngripum og siðferðilegum álitamálum er tengjast þroskaþjálfun. Erindi voru flutt af þroskaþjálfum sem þannig miðluðu áfram þekkingu sinni og reynslu og lögðu til efni sem nýtt var í umræður í hópum. Þó ekki hafi náðst að ljúka gerð starfs- ramma voru miklar umræður og góðar og verður áfram unnið með þau gögn sem þroskaþjálfar skiluðu af sér á starfsdögun- um. Samþykktar voru ályktanir sem send- ar voru til hlutaðeigandi aðila og þær jafn- framt birtar á heimasíðu félagsins. Starfsdagar ÞI voru að þessu sinni haldnir á Hótel Borgarnesi og voru þátt- takendur á starfsdögunum almennt ánægðir með aðbúnað allan. Fjöldi þeirra þroskaþjálfa sem tóku þátt að þessu sinni, rétt eins og ávailt áður sýnir svo ekki verð- ur um villst að full þörf er á því að halda slíka daga. Með félagskveðju, Sólveig Steinsson formaður fagráðs ÞI Sólveig útskrifaðist frá Þroskaþjálfaskóla Is- lands 1985 Starfaði sem deildarþroskaþjálfi á Kópa- vogshAi 1985-90 Lauk framhaldsnámi frá Þ.S.I. 1991 Þroskaþjálfi á skammtímavistun 1991—93 Forstöðuþroskaþjálfi á sambýli 1993—98 Formaður og framkvæmdastjóri ÞI 1996-2002 Fjöhnennt (fullorðinsfræðsla fatlaðra) frá 2002 Hefur stundað framhaldsnám við KHI með hléum frá 1998 og er að vinna að mastersverkefni þessa dagana. Fró Siðanefnd Síðastliðið vor voru endur- skoðaðar siðareglur þroskaþjálfa gefnar út í vasabroti og dreift til félagsmanna. Margar fyrirspurnir hafa borist um það hvort reglurnar verði settar á form sem megi ramma inn. Nú getur siðanefnd upplýst það að verið er að undirbúa prentun á siðareglunum í A-4 stærð. Magnús Björgvinsson þroskaþjálfi hefur hannað útlit og uppsetningu sem hentar vel til innrömmunar. Siða- nefnd stefnir að því að þessi vinna verði tilbúin fyrir næsta aðalfund. Þess má geta að litla vasabrotið vakti athygli og lukku í Danmörku á samnorrænni námsstefnu félagsráð- gjafa og þroskaþjálfa þar sem fjallað var um siðfræðileg mál. Þroskaþjdlfar verið duglegir að senda inn efni í blaðið. Munið: X útgáfuráð Alltaf gaman að hittast og slti á létta strengi

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.