Þroskaþjálfinn - 2003, Síða 18

Þroskaþjálfinn - 2003, Síða 18
Siðferðileg og lagaleg álitamóí tengd inngripum Unnið upp úr erindi Guðnýjar Stefánsdóttur sem flutt var á starfsdögum Þroskaþjálfafélags íslands 2002 Innlegg mitt byggði ég á gátlista frá Norsk Atferdsanalytisk Forening (NAFO) sem ég er félagi í, ásamt reynslu minni sem ráðgjafi í atferlisíhlutun. Leitast er við að draga fram fagleg viðmið og siðfræði tengd íhlutun. Einnig vísa ég til hluta af skilgreiningum starfsfélaga míns Tryggva Sigurðssonar sálfræðings, á gæðum þjálf- unar. Þau atriði sem ráðlegt er að skoða við ákvörðun og upphaf inngripa: Eru marktnið inngripa nœgjanlega ígrunduð? Eru markmið þannig framsett að auð- velt er að mæla/meta hvort þeim sé náð? Hefur þroskaþjálfi/ráðgjafi tryggt að þjónustuþegi eða umboðsmaður hans skilji markmið t.d. með því að þjónustu- þegi eða umboðsmaður hans endurtaki markmið munnlega eða skriflega? Eru aðilar (þroskaþjálfi/ráðgjafi og þjónustuþegi/umboðsmaður) sammála um markmið inngripa? Er valin aðferð nœgjanlega ígrunduð? Hafa útgefnar greinar, bækur eða rannsóknir, sýnt fram á að valin aðferð eigi við í þessu tilviki? Ef ekki, finnst nokkuð ritað um að- ferðina, er hún almennt viðurkennd leið? Eru áhrif aðferðarinnar skoðuð í sam- anburði við áhrif annarskonar aðferða? Hefur þjónustuþegi tekið þátt í um- ræðum um aðferðina? Hefur umboðsmaður hans einnig tek- ið þátt í þeim umræðum? Er aðferðin opinberlega, réttarfarslega eða faglega umdeild? Hafa aðrar leiðir að markmiði (aðferð- ir) verið kynntar ? Er þátttaka þjónustuþega með hans vilja? (Það er byggt á upplýstu sam- þykki) Guðný Stefánsdóttir. Er fulltryggt að samþykki sé fengið án þvingunar? Hefur þjónustuþega eða umboðs- manni hans verið gefinn kostur á að velja á milli ólíkra aðferða/inngripa eða á milli ólíkra meðferðaraðiia/þjálfa? Getur þjónustuþegi eða umboðsmað- ur hans dregið sig út úr meðferð án þess að það hafi í för með sér fjárhagslegan skaða, afnám sérréttinda eða aðrar óæskilegar af- leiðingar ? Persónuvernd Hefur þjónustuþegi/umboðsmaður hans verið upplýstur um hverjir hafi að- gang að persónulegum trúnaðarupplýs- ingum? Eru trúnaðarupplýsingar/dagálar geymdir í læstum hirslum? Er tryggt að nafnleyndar sé gætt í um- fjöllun um aðferðina? Réttarstaða Er réttarstaða þjónustuþega virt? Hefur þörf íyrir umboðsmann verið vel ígrunduð? Ef inngrip hafa í för með sér aðgerðir sem á einhvern hátt má flokka undir þvingun eða valdbeitingu, eru til áætlanir og samþykki þar að lútandi? Faglegur bakgrunnur Er þroskaþjálfinn eða meðferðaraðil- inn til þess fallinn að sinna verkefninu? Hefur þroskaþjálfinn eða meðferðar- aðilinn fengið þjálfun og reynslu í vinnu- brögðunum? Ef aðrir koma að þjálfun, hafa þeir fengið nægjanlega fræðslu og þjálfun? Er gert ráð fyrir sérhæfðri ráðgjöf? Ef reynslu eða þekkingu skortir, hafa þjónustuþegi eða umboðsmaður hans ver- ið upplýstir um þá þætti? Ef þekking er ekki talin nægjanleg, er þjónustuþega vísað á aðra sem hafa meiri þekkingu ? Ahrif inngripa Hafa inngrip verið athuguð, skráð, greind og metin þannig að skráning- ar/úrvinnsla sýnifram á að inngrip séu að skila vatntanlegum árangri? Hafa skráningar eða mat á framvindu verið aðgengilegt fyrir þjónustuþega eða umboðsmann hans? Tilvisun á aðra sérfrteðinga Þar sem þjálfun eða meðferð hefur ekki borið tilætlaðan árangur, er þjónustu- þega vísað á annan hæfan sérfræðing? Hefur réttur þjónustuþega til að fá bestu fáanlegu þjónustu verið virtur? Brot á réttindum Ef á einhvern hátt hefur verið brotið á réttindum þjónustuþega, hefur honum eða umboðsmanni hans verið gerð grein fyrir því?

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.