Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 25

Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 25
Fullsetinn ráðstefnusalur af fólki hvaðanæva úr heiminum. notkun. „Kveikja elda“, fólk með þroska- hömlun, fjölskyldur þeirra og stuðnings- fólk allsstaðar í heiminum er tilfinningar- ríkt og fullt eldmóðs og því mjög megn- ugt, þegar það sameinar krafta sína. Ráðstefnan Ráðstefnan sem haldin var í ráðstefnu- miðstöð borgarinnar, „Melbourne Con- vention Center“, var mjög fjölmenn, þátt- takendur voru yfir eitt þúsund hvaðanæva úr heiminum. Hún byggðist upp á aðal- fyrirlestrum í sameiginlegum ráðstefnusal, fyrirlestrum um ákveðin þemu í mismun- andi málstofum með umræðum, mynd- bandasýningum, listviðburðum og félags- legri samveru. Fjölmargir fyrirlestrar voru haldnir eða yfir 160 talsins og skiptust þeir í nokkra málaflokka. A fyrsta degi var opnunarhátíðin, á öðrum, þriðja og fjórða degi voru fyrirlestrar og málstofur starf- andi. Allt skipulag ráðstefnunnar var til fyrirmyndar, dreift var ítarlegri dagskrá með gagnlegum upplýsingum um ráð- stefnuna, ásamt hefti með ágripum af innihaldi fyrirlestranna. Dagurinn hófst alltaf með einum aðal- fyrirlestri sem fjallaði um eitt af yfirþem- um ráðstefnunnar. Fólk með þroskahöml- un stóð einnig fyrir listviðburðum sem yf- irleitt fólu í sér ádeilu, skilaboð eða sið- fræðilegar spurningar, s.s. um sjálfræði, sjálfsákvörðunarrétt, fósturrannsóknir og samlíf fólks með þroskahömlun. Fyrsta aðalfyrirlesturinn „The Kiss of Life“ fluttu þau A1 Etmanski og Vickie Cammack frá Kanada. Þau fjölluðu um LIFIÐ (LIFE), bæði á hagnýtan og heim- spekilegan hátt, um þrá okkar eftir að lifa góðu lífi og mikilvægi þess. Skilaboð þeirra voru skýr, allir þrá gott líf og við sem vinnum fyrir fólk með þroskahömlun eigum að styðja það til að lifa góðu lífi. Grundvallaratriði sé að bera virðingu fyrir fólki með þroskahömlun og hlusta á þrár þeirra og langanir. Gott líf endurspeglar okkar innstu þrár. Við eigum að finna út hverjar eru innstu þrár þeirra sem við erum að aðstoða og hjálpa þeim til að uppfylla drauma sína. Þannig fær fólk virðingu fyrir sjálfum sér, öðlast lífsfyll- ingu og verður hamingjusamt. Þau bentu á að ef fólk elst upp við að aðrir tali fyrir það, hætti fólk að hafa trú á því að það hafi eitthvað um líf sitt að segja. Þetta eigi við um flest fólk með þroskahömlun og því þyrftum við að hvetja það til að hafa skoðanir á lífi sínu og kenna því að tjá þarfir sínar og langanir. Það geri miklar kröfur til okkar sem veitum þjónustuna, kallar á nýja hugsun og nýjar leiðir við út- færslu hennar. Þau hvetja til þess að hug- myndaflugið sé notað til að finna nýjar leiðir og aðferðir til að aðstoða fólk með þroskahömlun til að öðlast gott líf. Þau trúa því að ef við spyrjum ekki nýrra spurninga eigum við á hættu að festast í gömlum lausnum. Þau segja að gott líf sé kannski ráðgáta en það sé dásamleg ráð- gáta sem leiði oklcur inn á nýjar brautir í hugsun og gjörðum og besta leiðin sé að nota líka hjarta og sál, ekki bara höfuðið. Næsta dag var aðalþemað baráttan fyrir FRELSI (Champions of LIBERTY) flutt af átta fulltrúum „People First“, sam- tökum fólks með þroskahömlun sem berj- ast fyrir réttindum sínum. Michael Aldridge, Nicholas Baker, Janette Hayes, Lyall Whitehouse, Ranus Baker og Cheryl Storey frá People First á Nýja Sjálandi kynntu baráttu og aðferðir samtaka sinna og bandamanna þeirra, til að þrýsta á yfir- völd að loka Kimperley Hospital, 400 manna stofnun, þeirri stærstu fyrir fólk með þroskahömlun á Nýja Sjálandi. Þau gerðu það meðal annars með því að hitta ráðherra félagsmála, skrifa í blöðin, safna undirskriftum með lokuninni og síðast en ekki síst með því að fara í kröfugöngu og mótmæla fyrir framan þinghúsið. Árangur baráttunnar var sá að ríkisstjórnin tók ákvörðun um að leggja stofnunina niður. Allir fyrirlesararnir áttu það sameiginlegt að hafa á unga aldri verið sviptir frelsi og lokaðir inni á stórum stofnunum, en feng- ið tækifæri til að lcomast út í lífið aftur. Þau vissu því af eigin raun hvað vistun á stofnun þýddi fyrir frelsi og mannréttindi fólks. Með þessari baráttu lögðu þau, ásamt félögum sínum, sitt af mörkum til að frelsa þá sem bjuggu á Kimperley frá stofnanavistun og stuðla þannig að bætt- um lífskjörum þeirra. Á eftir komu full- trúar People First í Ástralíu, Doug Pentland, Allan Robertson og Bob Usas og sögðu sögu sína frá vistun á stofnun og á hvern hátt líf þeirra gjörbreyttist til hins betra við að flytjast þaðan út í samfélagið. Máli sínu til stuðnings sýndu þau tvö áhrifarík myndbönd, „Stolen lives“ sem sýndi aðstæður fólks á stofnunum og „Witness“ sem fjallaði um mann sem var lokaður inni á ástralskri stofnun í 27 ár. Skilaboð beggja hópanna voru skýr: „Lok- um öllum helv... stofnununum“. Þriðja daginn var aðalþemað MANN- HELGI (SECURITY; A new Way of Thinking about Competence, Con- fidence, and Communication), erindi flutt af Colleen Wieck frá Bandaríkjun- um. Erindið fjallaði um þróun þjónust- unnar við fólk með þroskahömlun, frá einangrun til blöndunar og til þjónustu án aðskilnaðar frá samfélaginu, miðuð að fullri þátttöku. Hún benti á að yfirleitt væri verið að þróa nýjar hugmyndir á meðan þær eldri væru ennþá í fullu gildi. Hún benti einnig á að þeir aðilar sem vildu breytingar væru næstum alltaf utan- að komandi aðilar eða ungt fóllc, vegna þess að það sæi hlutina öðruvísi. Nýjum hugmyndum væri gjarnan hafnað afþeim sem vinna við og vilja verja gamla kerfið. Andstæðingar breytinga hefðu yfirleitt til- tækar hundrað afsakanir gegn því að prófa breytingar; við höfum ekki tíma, ekki peninga, of áhættusamt, af hverju eitthvað nýtt núna, við erum of lítil, of stór, yfir- maðurinn mun aldrei samþykkja þetta, of 25

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.