Mosfellingur - 09.11.2023, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 09.11.2023, Blaðsíða 2
Í þá gömlu góðu ... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) Héðan og þaðan MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti MosfelliNgur keMur út 30. NóveMber Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út mánaðarlega. Það er dálítið merkilegt að fylgjast með umræðunni um hvaða þjón- ustu fólk vill í bæjarfélagið og hvað ekki. Margir hafa kallað eftir kaffihúsi og stöðum sem bjóða upp á meiri hollustu. Í síðustu viku lokaði kaffhúsið Gloría sem starfrækt var í glænýju húsnæði í miðbæ Mosfellsbæjar. Svo spyr maður kannski þá sömu og kölluðu eftir kaffihúsi: „Fórstu oft þangað?“ Þá er svarið oftar en ekki: „Ég var alltaf á leiðinni að kíkja.“ Takk fyrir viðskiptin (sem voru eng- in?). Ef við viljum að þjónusta dafni þá verðum við líka að nýta okkur hana. Við getum ekki bara heimtað og heimtað á bakvið lyklaborðið. Nú eru komnir þónokkrir hollustu- staðir í bæjarfélagið og maður krossar fingur að þeir lifi. Svo eigum við líka flotta staði sem hafa verið starfræktir síðustu árin og við getum verið dugleg að sækja og mæla með. Verslum í heimabyggð og stöndum með þeim stöðum sem við viljum hafa hjá okkur í Mosó. Undir okkur komið Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is 6 - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ2 KIRKJUSTARFIÐ Mosfellingar taka upp nágrannavörslu Samvinna nágranna Haldið var upp á aldarafmæli kvenfélags Lágafellssóknar í Hlégarði Kvenfélag Lágafellssóknar 100 ára KVENFÉLAG LÁGAFELLSSÓKNAR 1909-2009 Í ritinu Saga byggðar - Mosfellsbær segir: Á árunum 1890-1910 voru ýmis samtök stofnuð og urðu mörg mótandi fyrir samfélagið í Mosfellssveit á 20. öld. Meðal þeirra var Kvenfélag Lágafellssóknar, stofnað 1909. Með stofnun félagsins eignuðust konur sókn- arinnar kærkominn vettvang til að efla samkennd og að sinna framfara- og góðgerðarmálum. Mynd og texti: Mosfellingur 15. janúar 2010

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.