Mosfellingur - 09.11.2023, Blaðsíða 8
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Stjórn FaMoS
jónas Sigurðsson formaður
s. 666 1040 jonass@islandia.is
jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Þorsteinn Birgisson gjaldkeri
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
Guðrún K. Hafsteinsdóttir ritari
s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is
ólafur Guðmundsson meðstjórnandi
s. 868 2566 polarafi@gmail.com
Ingibjörg G. Guðmundsdóttir varamaður
s. 894 5677 igg@simnet.is
Áshildur Þorsteinsdóttir varamaður
s. 896 7518 asath52@gmail.com
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Lions býður upp á
blóðsykursmælingu
Lionsklúbbarnir í Mosfellsbæ bjóða
upp á fríar blóðsykursmælingar í
Bónus Mosfellsbæ þriðjudaginn
14. nóvember, á Alþjóðlegum degi
sykursýki, milli kl. 17:00 og 19:00.
Sykursýki er oft falin en mikilvægt
er að greina hana á byrjunarstigi
svo koma megi í veg fyrir alvarlegar
aukaverkanir. Sykursýki er efna-
skiptasjúkdómur sem dregur nafn
sitt af auknu sykurmagni í blóði.
Orsök sykursýki er ekki þekkt og
sjúkdómurinn er ólæknandi en
með réttri meðhöndlun er hægt
að halda sjúkdómnum í skefjum.
Sykursýki 1 getur greinst hvenær
sem er á lífsleiðinni. Um er að
ræða sjálfsofnæmissjúkdóm sem
þýðir að líkaminn hefur brugðist við
utanaðkomandi áreiti með myndun
mótefna sem síðan taka þátt í að
eyðileggja vissar frumur líkamans.
Sykursýki af tegundinni 2 er vaxandi
vandamál í heiminum öllum. Það
er þó farið að hægja á greiningu
nýrra tilfella á vissum svæðum
eins og í hinum vestræna heimi en
heildarfjöldinn sem er með þennan
langvinna sjúkdóm er þó enn að
aukast. Lionshreyfingin leggur hér
lið. Þótt við þekkjum öll dæmi um
að beinar blóðsykurmælingar hafi
svipt hulunni af ógreindri sykursýki
einstaklinga er ekki síður mikilvægt
að fræða og vekja athygli almenn-
ings með fjölbreyttum hætti.
GaMan SaMan
9. nóv kl. 13:30 í borðsal Eirhamra
Helgi R. Einarsson gleðigjafi mætir og
tekur lagið með okkur og fær til sín
gesti frá Blikabergi. Endilega komið
og verið með okkur og syngjum sam-
an. Kaffi selt í matsal á 500 krónur
eftir sönginn. Allir velkomnir
opið hús
Menningarkvöld 2023
Diddú og Helga Bryndís í Hlégarði.
Næsta Opna hús/menningarkvöld
vetrarins verður í Hlégarði mánu-
daginn 13. nóvember klukkan 20:00.
Þar munu Diddú, sveitungi okkar,
og Helga Bryndís, píanóleikari, flytja
okkur dagskrá, sem verður algjört
bland í poka í söngferð út um víðan
völl. Kaffinefndin verður með sitt
rómaða kaffihlaðborð að venju.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 (posi er ekki
á staðnum).
Með kveðju, Menningar-
og skemmtinefnd FaMos
BaSar 2023
Hinn árlegi basar á vegum félags-
starfs eldri borgara í Mosfellsbæ
verður haldinn laugardaginn 25. nóv.
kl. 13:30-16:00 inni í félagsstarfinu
Hlaðhömrum 2. Fallegar handunnar
vörur á afar góðu verði og úrvalið
fjölbreytt. Eftir basarinn verða þær
vörur sem eftir eru til sölu í basarbúð-
inni okkar í félagsstarfinu alla virka
daga frá 11:00-16:00. Allur ágóði
af seldum vörum fer til þeirra sem
þurfa aðstoð í bænum okkar. Posi á
staðnum. Kór eldri borgara Vorboð-
arnir syngur fyrir gesti. Kaffisala á
vegum kirkjukórsins verður í matsal.
Hlökkum til að sjá sem flesta á basarnum.
StYrKjUM Gott MÁlEFnI
Fyrir allan aldur, hittumst í Hlégarði
Alla þriðjudaga kl. 13:00-15:00 í vetur.
Hlégarður verður opinn fyrir allan
aldur til að koma saman og njóta
samveru og t.d. prjóna, spila, vefa,
tefla, dansa og syngja. Endalausir
möguleikar og ýmar heimsóknir og
kynningar eru á dagskrá sem verða
auglýstar síðar. Alltaf verður heitt
á könnunni og hlýlegt að koma til
okkar. Nýtum fallega Hlégarð til
samveru. Ef þú hefur einhverjar góðar
hugmyndir sem ættu heima í þessum
samverustundum endilega hafðu samband
við forstöðumann félagsstarfins Elvu í síma
6980090 eða elvab@mos.is
lEIKFIMI
FYRIR ELDRI BORGARA
Alla fimmtudaga. Kennari er Karin
Mattson og eru tveir hópar.
Hópur 1 kl. 10:45 áhersla á aðeins
léttari leikfimi, hentar vel veikburða
fólki og fólki með grindur.
Hópur 2 kl. 11:15 almenn leikfimi, fyrir
þá sem eru í ágætis formi. Leikfimin
er gjaldfrjáls og liður í því að búa í
Heilsueflandi samfélagi Mosfellsbæ.
Kennt er í leikfimisalnum á Eirhömrum.
Öllum velkomið að mæta og vonum við
svo sannarlega að fólk nýti sér leikfimina.
GÖnGUHóPUr
Minnum á flotta gönguhópinn okkar
sem fer alla miðvikudaga frá Hlégarði
kl. 10:30.
Allir velkomnir í þennan frábæra félasskap
Myrkvi gefur út plötu,
Early Warning
Early Warning er plata með Myrkva
og Yngva Holm. Hún var upphaflega
hugsuð fyrir Vio, hljómsveit sem
þeir gerðu áður garðinn frægan
með, og byggir m.a. á upptökum
af fyrrum meðlimum sveitarinnar:
Kára Guðmundssyni og Páli Cecil
Sævarssyni. Seinna var Vio-nafnið
lagt til hliðar og ákveðið að halda
áfram undir formerkjum Myrkva.
Platan er ákveðið uppgjör við
fortíðina og markar þáttaskil í tón-
listarferlum kumpánanna. Týndu
árin, almennt óráð og alhugur eru
þeim hugleikin en hljóðheimur
uppvaxtaráranna, sitt hvorum
megin við aldamótin, lifnaði við við
gerð plötunnar. Nafn hennar, Early
Warning eða Snemmbúin viðvörun,
vísar í það sem kraumar undir
yfirborðinu og gæti sprungið út með
látum. Breiðskífan var tekin upp í
stúdíói þeirra í Mosfellsdal, þar hafa
þeir eytt drjúgum tíma sl. áratug.
Tónlistin er gítardrifin, líkt og allt
annað frá þeim drengjum, en hljóð-
heimurinn er orðinn heilsteyptari
og þróaðri. Lög plötunnar voru
samin á þeim gríðarlega krefjandi
tímabili í líftíma hvers bands, þegar
sæluvíman frá upphaflega árangrin-
um er horfin og menn þurfa að stíga
aftur niður á jörðina.
Hrútasýning í Kjósinni • Árangur metinn í sauðfjárrækt
skjöldurinn í miðdal
Hrútasýning Sauðfjárræktarfélagsins í Kjós
fór fram 12. október í aftakaveðri. Þrátt fyrir
það var metmæting en sýningin fór fram á
Kiðafelli og voru þar veitt verðlaun fyrir
góðan árangur í sauðfjárrækt.
Í félaginu eru sauðfjárbændur í Kjós, á
Kjalarnesi og í Mosfellsbæ og kepptu þeir
sín á milli um hver ætti besta hrútinn. Þá
fengu bændur stiguð og ómmæld lömb og
veturgamla hrúta.
Sauðfjárdómarar frá RML sáu um mæl-
ingar og dóma á gimbrum og hrútum.
Sigursælir voru hrútarnir frá Miðdal
og var það hrúturinn Ægir sem tryggði
hreppaskjöldinn eftirsótta.
Hyrndir lambhrútar: 1. sæti Miðdalur, 2.
sæti Kiðafell og 3. sæti Kiðafell.
Kollóttir lambhrútar: 1. sæti Miðdalur, 2.
sæti Kiðafell og 3. sæti Miðdalur.
Veturgamlir hrútar: 1. sæti Ægir frá Mið-
dal, 2. sæti Hrútur frá Stíflisdal og 3. sæti
Hrútur frá Flekkudal.
M
yn
di
r/
Bj
ör
n
H
ja
lta
so
n
Ólöf Ósk og HafþÓr í miðdal
ásamt börnunum agnesi
Heiðu og guðmundi ara
og Hrútnum ægi