SÍBS blaðið - 01.06.2024, Qupperneq 5

SÍBS blaðið - 01.06.2024, Qupperneq 5
5 2. tbl. 2024 Röskun á þyngdarstjórnun Röskunin sem verður á þyngdarstjórnunarkerfum getur átt uppruna sinn á mörgum stöðum. Til einföldunar má skipta þessum truflunum í þrjá meginflokka. Stundum er það truflun á starfsemi í fituvefnum, stundum verður truflun á stýri- kerfinu í heilanum og stundum er truflun á starfsemi annarra kerfa svo sem í efnaskiptakerfinu þar sem insúlín skipar stóran sess eða truflun í meltingarvegi og þarmaflóru. Allar þessar raskanir geta verið vegna innri þátta í líkamanum sjálfum til dæmis á grunni erfða eða vegna utanaðkomandi áhrifa svo sem vegna álags, áfalla, vannæringar eða svefn- röskunar. Það sem gerir þetta líka flókið er að sjaldnast er einn þáttur sem veldur trufluninni heldur samverkun margra þátta og því oft erfitt að átta sig á því hvað er hvað. Þannig svarar þyndarstjórnunarkerfi okkar breytingum á lífsháttum á ólíka vegu en líkaminn okkar svarar líka sérhæfðum inn- gripum svo sem lyfjum og efnaskiptaaðgerðum á ólíkan hátt. Mig langar að nefna hér örfá dæmi um þætti sem geta raskað starfsemi þyngdarstjórnunarkerfa okkar og vona að um leið gefi það innsýn í hversu víðtækt og flókið þetta kerfi er. Fituvefurinn sjálfur er merkilegt líffæri og hefur mikla efnaskiptavirkni. Starfsemi fituvefjar, efnaframleiðsla fitu- frumanna, bólguvirkni, insúlínónæmi og margt fleira getur skapað sjúkdómsástand í fituvefnum sem aftur hefur marg- vísleg áhrif á líkamsstarfsemina í heild. Rannsóknir síðustu ára hafa sýnt að tegundir fitufruma eru mun fleiri en áður var haldið og að fitufrumur geta framleitt mörg ólík efni. Í dag eru þekkt yfir 600 efni sem fitufruma getur framleitt. Enn er margt óljóst um af hverju þær senda frá sér svo mismunandi skilaboð og hvaða kerfi eiga að fá þessi skilaboð en við erum enn að læra. Eitt er víst að það hefur ekkert með persónuleika einstaklingsins að gera. Þegar umframorka berst í líkamann og upp kemur ósk um að geyma orkuna í formi fitusýra í fitufrumum bregst heilbrigður fituvefur við með því að fjölga fitufrumum þegar búið er að fylla það pláss sem til er. Þá eru til staðar svokallaðar forstigsfitufrumur sem þroskast yfir í fitufrumur. Þetta eru heilbrigðar frumur með heilbrigð efna- skipti, þær ná að fanga þær fitusýrur sem til þeirra berast og eru tilbúnar að láta þær frá sér aftur þegar þörf er á að ganga á birgðirnar. Óheilbrigður fituvefur bregst hins vegar við með því að stækka fitufrumurnar í stað þess að fjölga þeim. Þyngdin er sú sama en starfsemin allt önnur. Þegar fitu- frumurnar stækka óeðlilega mikið breytist starfsemi þeirra, þær fara að framleiða óæskileg efni svo sem bólguþætti sem hafa truflandi áhrif bæði inni í fituvefnum og utan hans. Þær missa af fitusýrum sem þeim er ætla að geyma og fitusýrur fara að safnast upp í líffærum utan fituvefs svo sem í lifur og hjarta og trufla starfsemi þeirra. Súrefnisskortur, minnkað insúlínnæmi, bandvefsmyndun og bólguástand myndast í fituvefnum. Hér er kominn sjúkdómur í fituvefinn óháð stærð hans og er ein birtingarmynd sjúkdómsins offitu. Ef við lítum til heilans þá getur svokallaður undirstúku- heiladinguls-nýrnahettu öxull raskast. Ef hann örvast leiðir það til ýmissa breytinga í efnaskiptakerfinu okkar. Meðal þess sem gerist er að streituhormónið kortisól hækkar, insúlínviðnám eykst, svengdarhormónið ghrelin hækkar og sedduhormónið leptin lækkar. Þannig stillir líkaminn sig á fitusöfnun á meðan þetta ástand varir. Það sem getur valdið örvun á þessum öxli er til dæmis streita, langvinnt álag, áföll og langvinn svefntruflun. Þannig er mikilvægt að vinna að bættum svefni og fá aðstoð til að draga úr streitu og afleið- ingum áfalla ef ætlunin er að léttast. Annað kerfi heilans sem getur raskast er svokallað verðlaunakerfi sem er ætlað til að hvetja okkur til að borða og halda þannig lífi. Þetta kerfi er auðtruflað í nútíma matvælaumhverfi þar sem samsetning á gjörunnum mat er sérstaklega til þess gerð að ræsa þetta kerfi og hvetja okkur til að borða meira. Starfsemi í meltingarvegi getur einnig raskast. Sumir eru með óeðlilega hraða magatæmingu þannig að skilaboð um svengd eru miklu örari en eðlilegt er. Fjölmörg hormón eru framleidd í meltingarvegi og hafa víðtæk áhrif meðal annars á svengd og seddu. Efnaskiptaaðgerðir vegna offitu svo sem magaermi og magahjáveita breyta samtali þessara hormóna meltingarvegarins og stýrikerfis þyngdar í heila. Það gera einnig sum lyf sem nú eru notuð til offitumeðferðar. Þessum sérhæfðu meðferðum er ætlað að koma jafnvægi á þetta samtal á ný eftir að það hefur raskast. Bakteríurnar í þarmaf- lórunni okkar eru mjög valdamiklar þegar kemur að heilsufari okkar og líðan og tengsl þeirra við stjórnun líkamsþyngdar er engin undantekning. Rannsóknir hafa sýnt að þarmaflóra ein- staklinga með offitu og þeirra sem hafa grannan vöxt er ólík. Enn vitum við ekki allt um áhrif þarmaflórunnar en þó getum við gengið út frá því að ef hún er einsleit þá er það ekki gott fyrir okkar heilsu. Þannig er alltaf hagur að því að efla fjöl- breytta þarmaflóru sem við gerum með því að borða vel af trefjum og þá mismunandi trefjum því ekki hafa bakteríurnar allar sama matarsmekk. Við getum einnig stutt við fjölbreytta þarmaflóru með því að borða reglulega gerjaða matvöru svo sem sýrt grænmeti eða hreinar sýrðar mjólkurvörur. Það sem truflar þarmaflóruna er meðal annars svefnleysi, hreyfingar- leysi, streita og trefjaskortur en einnig gjörunnin matur og sætuefni. Með því að iðka heilbrigðan lífsstíl fáum við góða þarmaflóru í bónus og heilsufarslegur ávinningur margfaldast. C100 - M60 - Y0 - K10 C0 - M0 - Y0 - K15

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.