SÍBS blaðið - 01.06.2024, Síða 8

SÍBS blaðið - 01.06.2024, Síða 8
8 SÍBS-blaðið Offita, yfirþyngd og slæm efnaskiptaheilsa er vaxandi vandi í nútímanum. Þetta á við um allan heim og ekki síst á Íslandi. Röskun í efnaskipta- kerfum líkamans ýtir undir og veldur lífstílssjúkdómum, sem ég vil kalla eftir að við sameinumst um að nefna samfélagssjúkdóma hér eftir. Slíkir sjúkdómar flokkast undir ósmitbæra sjúkdóma. Þessi vandi fær sífellt meiri athygli fagfólks þar sem tölur sýna að 80% af kostnaði við heil- brigðiskerfi í Evrópu er vegna ósmitbærra sjúkdóma. Ekki einkamál Allt of lengi hefur verið litið á offitu og yfirþyngd sem vanda hvers og eins og gjarnan hafa fylgt miklir fordómar allri umræðu um offitu. Vanþekking hefur leitt til þess að fólk sem glímir við þennan vanda hefur upplifað sig jaðarsett og ekki fengið ráðgjöf og meðferð við hæfi. Þetta á sér að mörgu leyti eðlilegar skýringar því eins og með svo margt annað þá tekur tíma að búa til þekkingu og skilja orsakir sjúkdóma. Þekkingu læknisfræðinnar á offitu hefur fleygt fram og í dag er mjög mikið vitað um meingerð, orsakir og meðferð offitu þó það séu hvergi nærri öll kurl komin til grafar. Eitt er víst að nógu mikil þekking er til staðar til þess að offita hefur verið skilgreind sem langvinnur sjúk- dómur og því eiga þeir sem glíma við þann sjúkdóm að fá fag- lega, samhæfða og gagnreynda meðferð. Sjúkdómurinn offita ekki spurning um leti, sjálfvalin örlög eða einfalt bókhald yfir inntöku og eyðslu hitaeininga. Þetta er því miður flóknara en það. Fita er vefur rétt eins og vöðvar, bein og fleira og það má líta á fituvef sem líffæri með fjölþætt og mikilvægt hlutverk í líkamanum. Ójafnvægi í efnaskiptum líkamans leiðir til þess að fituvefurinn hættir að starfa eðlilega og verður sjúkur. Í heila manna er flókin stýristöð orkuefnaskipta og þyngdarstjórn- unar. Þegar þyngdarstjórnunarstöðin í heilanum og fituvefur- inn hætta að starfa eðlilega leiðir það af sér röskun á mörgum flóknum ferlum í efnaskiptum líkamans. Það verður truflun á stýringu seddu og hungurs, heilinn endurstillir þyngdarviðmið sitt á hærri þyngd en var áður, það verður truflun á efnaskipta- hormóninu insúlíni og margt fleira sem ekki verður útskýrt nánar hér. Þessar breytingar á lífeðlisfræði líkamans og sú röskun í orkuefnaskiptum í frumum líkamans sem liggur þar að baki geta svo með tímanum leitt af sér aðra langvinna sjúkdóma svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, háan blóðþrýsting, sykursýki af tegund 2, röskun á blóðfitum, fitulifur, stoðkerfisverki, auknar líkur á krabbameinum, heilabilun og fleiru. Það er mikilvægt að vita að röskun á starfssemi í fituvef getur verið til staðar löngu áður eða án þess að fólk sé að glíma við mikla sýnilega yfirþyngd eða skilgreinda offitu út frá þyngdarstuðli. Eins er mögulegt að vera með eðlilega starf- andi fituvef og lífeðlisfræði þrátt fyrir skilgreinda yfirþyngd eða offitu, að minnsta kosti í einhvern tíma. Offita og slæm efna- skiptaheilsa snýst því um röskun á lífeðlisfræði líkamans en ekki sýnilega fitu eða útlit. En hverjar ætli séu ástæðurnar fyrir þessari hröðu aukn- ingu á offitu og efnaskiptaröskun fólks út um allan heim? Af hverju ætli sé orðið erfitt að halda sér í kjörþyngd í nútíma samfélagi og af hverju er þetta líka orðið vandamál hjá börnum allt niður á leikskólaaldur? Við þessum spurningum er ekki til neitt einfalt svar. Mjög mikil þekking hefur myndast um þær ástæður sem geta legið að baki og eitt er víst að það er engin ein ástæða. Þetta er mjög fjölþætt. Hér verður leitast við að útskýra á einfaldan hátt það helsta sem gerir þyngdarstjórnun í nútíma umhverfi erfiða og hvað liggur að baki. Þróunarlíffræði Það getur verið mjög gagnlegt að skoða hluti frá sjónarhóli þróunarlíffræði. Hinn viti borni maður (e. Homo sapiens) er um þrjú hundruð þúsund ára gömul dýrategund. Flestum fræðimönnum ber saman um að nútíma útgáfan sé um hundrað og sextíu þúsund ára. Allar breytingar á genamengi tegunda og þróun eigin- leika út frá breytingum í umhverfi gerast mjög hægt. Bróður- part þess tíma sem mannfólk hefur gengið á jörðinni hafa aðstæður í umhverfi verið mjög stöðugar og allar breytingar mjög hægar. Um tíu þúsund árum fyrir Krist fara breytingar að gerast aðeins hraðar og má þar nefna ræktun korns, búfénaðar og fleira. Breytingar voru samt sem áður til þess að gera hægar þar til í kjölfar iðnbyltingar og sérstaklega frá um það bil Grein Þyngdarstjórnun í nútíma umhverfi Kristján Þór Gunnarsson læknir, Heilbrigðisstofnun Suðurlands

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.