SÍBS blaðið - 01.06.2024, Blaðsíða 9
9
2. tbl. 2024
1975 þegar umhverfi og sérstaklega matvælaumhverfi fer að
breytast mjög hratt. En það er frá 1975 sem tíðni offitu og
svonefndra lífstílssjúkdóma hefur legið hratt upp á við og
ekkert lát er á.
En hverjar eru þessar breytingar í umhverfinu sem tor-
velda svona þyngdarstjórnun og góða efnaskiptaheilsu?
Matvælaumhverfi - næring
Mataræði hefur breyst alveg gífurlega mikið síðastliðna ára-
tugi. Hlutfall gjörunninna matvæla í mataræði hefur aukist
mikið og neysla sykurs hefur margfaldast. Skyndibitastöðum
fjölgar stöðugt og mun algengara er að kaupa mat tilbúinn.
Neysla sykraðra drykkja hefur aukist mikið og síðustu ár hafa
sætuefni náð mjög mikilli markaðshlutdeild. Þessi breyting
á matvælaumhverfi og matarvenjum er ein stærsta ástæðan
fyrir því að þyngdarstjórnun í nútíma umhverfi er orðin erfið.
Það er því miður ekki svo einfalt að þetta snúist um að fólk
innbyrði of mikið af hitaeiningum og hreyfi sig of lítið, þó
það sé vissulega hluti af ástæðunni. Mannslíkaminn er mun
flóknari en svo að hægt sé að setja upp einfalda reikniform-
úlu fyrir innbyrtar hitaeiningar og brenndar hitaeiningar. Mun
nærtækara er að horfa á mat sem skilaboð og hvernig áhrif
hann hefur á frumurnar okkar og þessa flóknu lífeðlisfræði
sem fjallað var um hér að ofan.
Mannslíkaminn er gerður úr 36 þúsund miljörðum frumna.
Í einfölduðu máli eru allar frumur í grunninn eins, en þær
sérhæfa sig í ólíka vefi sem mynda svo líffæri. Inni í öllum
frumum eru líffæri sem heita hvatberar. Hvatberar eru for-
senda þess að við erum á lífi. Í hvatberunum fer fram frumu-
öndun (súrefni sem við öndum að okkur) og hvatberar breyta
þeirri orku sem við fáum úr mat í orkusameind sem nefnist
ATP. ATP virkar svo sem gjaldmiðill inn í frumunni fyrir allri
starfsemi líkamans, hvort sem það er að búa til prótein, gera
við erfðaefni eða framleiða hormón. Hvatberar eru því orku-
ver líkamans. Matur, innihaldsefni hans og sindurefni sem
annað hvort myndast við niðurbrot óhollra matvæla eða
berast úr umhverfinu hafa afgerandi áhrif á starfsemi hvat-
beranna. Þegar hvatberar hætta að starfa eftir bestu getu þá
birtist það í einkenni eða sjúkdómi í því líffærakerfi sem við á.
Nútímaumhverfi gerir hvatberum erfitt fyrir á marga vegu.
Röskun á starfsemi þeirra er nátengd röskun á þyngdar-
stjórnunarkerfi líkamans. Hér á eftir koma helstu áhrif
matvælaumhverfis sem torvelda þyngdarstjórnun, skipt upp í
nokkra flokka.
Gjörunnin matvæli
Matvæli sem eru búin til úr mikið maukuðum eða unnum hrá-
efnum. Þau innihalda yfirleitt mikið af aukefnum til þess að
halda matvælinu saman, auka geymsluþol, gefa því ákveðinn
lit, ákveðna áferð og bragðauka. Þessi matvæli innihalda yfir-
leitt mikið af sykri og fitu og/eða sætuefnum. Þetta gerir mat-
vælin mjög orkurík og oftast eru þau fremur snauð af góðum
næringarefnum. Vinnslustig matvælanna, áferð og bragð gerir
það að verkum að það er mjög auðvelt að neyta þeirra hratt.
Þau frásogast hratt og einnig er tilhneiging til þess að ofneyta
þeirra vegna þessara sömu þátta.
Eins má færa góð rök fyrir því að vegna þessara sömu
eiginleika spili þessi matvæli á verðlaunastöðina í heilanum
sem tengist þyngdarstjórnunarkerfunum. Það myndast því
löngun í þessi matvæli og neysla þeirra tengist gjarnan tilfinn-
ingum, ofneyslu og algengt er að tengja þau við gæðastundir
eins og „kósíkvöld“.
Mjög mikið af öllum þeim mat sem auðvelt er að grípa sér
tilbúinn í matvöruverslunum, söluskálum, bensínstöðum eða
skyndibitastöðum flokkast undir gjörunnin matvæli. Fram-
boðið af þessum matvælum er því mjög mikið.
Á síðustu árum hafa verið birtar margar rannsóknir sem
sýna fram á veruleg tengsl milli mikillar neyslu á gjörunnum
matvælum og langvinnra sjúkdóma, svo sem offitu, hjarta- og
æðasjúkdóma, sykursýki týpu 2, krabbameina, þunglyndis og
fleira. Það er aukin athygli á þessu núna og munu því bætast
við fleiri og ítarlegri rannsóknir á næstu árum.
Vinnsla matvæla er mikilvæg og nauðsynleg til að tryggja
öryggi og nægt matvælaframboð fyrir alla. Mikilvægt er því að
rugla ekki saman unnum matvælum og gjörunnum matvælum.
Ég hvet því fólk til að kynna sér til dæmis NOVA flokkunar-
kerfið yfir matvæli sem getur gefið ágætis viðmið og svo má
einnig benda á góðar greinar um gjörunnin matvæli í febrúar
tölublaði SÍBS blaðsins 2024.
Sykur og frúktósi
Neysla á sykri hefur margfaldast síðustu áratugi og heldur
áfram að aukast. Erfitt er að fá nákvæmar tölur yfir þetta og
þær geta verið mismunandi eftir því hvernig viðbættur sykur
er skilgreindur. Ýmsar tölulegar staðreyndir eru frá útlöndum
og einnig hérlendis úr landskönnunum á mataræði Íslendinga.
Fróðleg söguleg heimild um aukningu á sykurneyslu
Íslendinga birtist í grein um arfgenga heilablæðingu í lækna-
blaðinu 2022. Þar er stuðst við innflutningstölur á sykri sem
má ætla að endurspegli neyslu landsmanna. Á tímabilinu 1840
til 1940 50-faldaðist innflutningur á sykri, úr 900 grömmum
á mann á ári í 50 kílógrömm á mann. Heimildir eru fyrir því
að neysla á frúktósa hafi aukist um allt að 3000 prósent á
síðustu 100 árum.
Sykurrík matvæli eru oftast orkurík og næringarsnauð.
Regluleg neysla á sykurríkum matvælum virðist líka bæla
bragðlaukana á þann hátt að það dregur úr ánægju við neyslu
á öðrum mat, sem er sérstaklega mikilvægt í tilfelli barna.
Eins hefur sykur víðtæk áhrif á efnaskipti líkamans sem ná
langt út fyrir orkuinnihaldið. Viðbættur sykur er í mjög stórum
hluta matvæla sem neytt er reglulega og á það líka við um
mörg matvæli sem myndu þó almennt teljast holl vegna ann-
arra góðra næringarefna sem þau innihalda.
Strásykur eða hvítur sykur er svokölluð tvísykra sem kall-
ast súkrósi. Hver tvísykra súkrósa er sett saman úr tveimur
einsykrum, einum glúkósa og einum frúktósa. Þegar við
borðum sykur þá brotnar súkrósi niður í meltingunni í glúkósa
og frúktósa. Niðurbrot og áhrif þessara tveggja einsykra eru
mjög ólík í líkamanum. Báðar hækka þær blóðsykur en á þeim
er sá grundvallarmunur að allar frumur líkamans geta notað
glúkósa sem orkugjafa, en ekki frúktósa.
M i ð s t ö ð s í m e n n t u n a r
C: 0 M:90 Y:100 K:0
C: 0 M:44 Y:100 K:0
C: 40 M:0 Y:100 K:0
C: 100 M:0 Y:0 K:0
C: 0 M:0 Y:0 K:65
C: 0 M:0 Y:0 K:100
CMYK litir