SÍBS blaðið - 01.06.2024, Blaðsíða 13

SÍBS blaðið - 01.06.2024, Blaðsíða 13
13 2. tbl. 2024 „Ég er svona ævintýramaður,“ segir Sveinn Hjörtur með breiðu brosi og strýkur víkingaskeggið sem honum var uppá- lagt að safna fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni. „Vegna stærðar minnar hafa mér áskotnast mörg hlutverk í auglýsingum og bíómyndum. Það er mjög skemmtilegt og kannski má líta á það sem jákvæðu hliðina á því hlutskipti að vera svona stór og mikill um sig. Ég var stórt barn við fæðingu, eða 22 merkur og 53 sentí- metrar. Ég veit ekki hvort það sé ástæða þess að svona fór fyrir mér, hvort þetta hafi verið einhver efnaskiptasjúkdómur. Ég byrjaði eðlilega á brjósti en þurfti strax meira en móður- mjólkina og var fljótlega farinn að borða grauta og þess háttar löngu áður en ungabörn byrja yfirleitt á slíku fæði. Svo var ég bara nokkuð þéttur sem barn og unglingur, en var líka eitt- hvað í íþróttum, til dæmis í handbolta. Ég hef þó alltaf verið meira í hugvísindum en hitt, með áhuga á mörgum andlegum málum og ætlaði mér alltaf að verða prestur þegar ég yrði stór. Þessi áhugi kom í kjölfar erfiðrar lífsreynslu sem ég varð fyrir þegar ég var tíu ára gamall. Þá missti ég eldri bróður minn með sviplegum hætti. Hann var myrtur á mjög ljótan hátt er hann vann hjá Landhelgisgæslunni. Það breytti allri minni lífssýn að kynnast því svona snemma hvað sorg er, og hvað dauði er. Þetta var árið 1980 og á þeim tíma var ekki haldið eins vel utan um börn sem verða fyrir slíku áfalli og nú er gert. Menn áttu bara að bera harm sinn í hljóði. Mamma blessunin vann þannig aldrei úr sorg sinni og ekki heldur pabbi, sem var varðstjóri í lögreglunni. Við systkinin vorum sex. Við erum fjögur núna og þetta hefur verið djúpt sár á sálinni hjá okkur öllum.“ Rokkandi þyngd Sveinn Hjörtur er 188 sentímetrar á hæð, en þótt hann hafi verið stór við fæðingu kveðst hann hafa verið frekar lágvaxinn sem strákur. „Upp úr fermingu byrjaði ég svo snarlega að stækka, tók allt í einu þennan svaka kipp og því fylgdu miklir vaxtarverkir. En ég var mjög líkamlega hraustur, byrjaði í kraftlyftingum og var kominn í dyravörslu á skemmtistöðum 18-19 ára gamall. Á þessum árum var ég alltaf nokkuð þéttur á velli og rokkaði heilmikið í þyngdinni framan af en finnst ég þó aldrei hafa verið beint mjög feitur þegar ég var ungur. Ég kynntist barnsmóður minni þegar ég var 24 ára gamall og við eignuðumst okkar fyrsta barn, sem var stúlka, þegar ég var rúmlega þrítugur. Hún er núna 21 árs, nýbúin á klára stúdentsprófið og ætlar að verða læknir. Þremur árum eftir að hún kom í heiminn eignuðumst við tvíbura, stúlku og dreng. Þau eru 18 ára, bæði í framhaldsskóla og pluma sig vel í lífinu. Við barnsmóðir mín skildum nokkrum árum eftir fæðingu tvíburanna, en höfum alltaf gætt þess að hafa gott samband vegna barnanna okkar.“ Neyðarvörðurinn Sveinn Hjörtur fór að vinna við símavörslu hjá Neyðarlínunni árið 1997 sem markaði ákveðin tímamót hjá honum hvað varðar líkamsþyngdina. „Þá byrjaði ég smám saman að bæta á mig kílóunum, þessari skelfilegu kviðfitu. Þetta var vaktavinna sem er mikil setuvinna og lífsmynstrið breytist mikið varðandi svefn og mataræði. Það er mjög þekkt erlendis, til dæmis í Ameríku, að neyðarverðir séu mjög þéttvaxnir og ekki bara það heldur eru þeir lífshættulega þéttir. Menn sitja við símann á löngum vöktum, yfirleitt eru það tólf tímar og maður veit aldrei við hverju er að búast, það er algjör rúlletta. Adrenalínið fer svo alveg á milljón þegar eitthvað gerist, til dæmis við að fylgja eftir konu á leiðinni á fæðingardeildina með heiftar- legar hríðir, mikið stress og óðagot í gangi, barnið kemur kannski í heiminn áður en á spítalann er náð og neyðarvörður þarf að virkja aðstoð á staðnum ef hægt er. En allt fer samt oftast nær vel og mikill fögnuður þegar fyrsti gráturinn berst í gegnum símtólið. Ég hef líka tekið á móti mörgum af ljótustu morðum sem hafa verið framin hér á Íslandi og komið inn á borð 112. Maður þarf að gera allt hárrétt, það má ekkert klikka og í því felst mikil þjálfun með lögreglu, sjúkraliði, slökkviliði og öðrum viðbragðsaðilum.“ Vakti það þá ekki aftur upp tilfinningar hjá þér frá morði bróður þíns? „Nei, ekki þá þótt mál hans hafi verið að flækjast fyrir mér á seinni árum. Þarna vann ég með áfallateymi slökkviliðsins og lögreglunnar þar sem menn styðja vel hverjir aðra. Auð- vitað tók maður margt inn á sig og sumir atburðir sátu lengur í manni en aðrir, en þó ekki þannig að það angraði mann og ylli vanlíðan. Þetta var vinnan manns og maður nálgaðist hana með mannlegri reisn, sem er um leið fegurðin og sorgin í þessu starfi. Það sem kom mér persónulega í koll voru þessar óheilbrigðu matarvenjur sem fylgdu álaginu í vaktavinnunni sem ég stundaði svo lengi. Á næturvöktum var maður með litla matarlyst þannig séð, hélt sér vakandi með gosdrykkjum, matartímar mjög óreglulegir, mjög oft einhver skyndibitamatur sem fljótlegt er að gleypa. Maður festist einhvern veginn í þessu fari, ætlar sér alltaf að laga það en það gerist aldrei. Svo hætti ég hjá Neyðarlínunni. Tvíburarnir voru þá á leiðinni og ég orðinn langþreyttur á vaktavinnunni og óreglu- lega lífsstílnum sem henni fylgdi. Ég fór að vinna dagvinnu hjá gamla Toyota, hjá Páli heitnum Samúelssyni sem var ein- stakur maður og gott að vinna hjá honum. Ég náði síðar meir að létta mig með ýmsum hætti, fór alveg niður í 90 kíló og var bara grannur og fínn. Svo skildi ég árið 2009 og byrjaði aftur að þyngjast. Léttist aftur og þyngdist aftur. Ég var eins og jójó með þyngdina.“ 199 kíló! Árum saman skiptust á þessi tímabil þar sem Sveinn Hjörtur þyngdist og léttist á víxl. „En svo var ég orðinn alltof þungur. Það var fyrir sex eða sjö árum að ég steig á vigtina sem upp- lýsti mig um að ég væri orðinn 199 kíló! Og ég fékk algjört sjokk. Ég hafði alltaf verið hár í loftinu en núna var ég líka orðinn gríðarlega mikill um mig. Þá hafði ég sem sagt um all- nokkurt skeið leikið talsvert í bíómyndum og auglýsingum. Ég var þursinn í myndunum og var til dæmis sem slíkur notaður í auglýsingu fyrir Dodge bílaframleiðandann. Það var rosalega skemmtilegt verkefni og auglýsingin sýnd í tengslum við Súp- erball úrslitaleikinn í Bandaríkjunum, sem hundruðir milljóna manna sáu. Ég lék líka fanga í einni af Marvel-myndunum sem frumsýnd verður næsta haust. Ég var sem sagt búinn að fá helling af slíkum aukahlutverkum með þennan stóra búk, síða úfna skeggið, stingandi bláu augun og svo framvegis. Það var út af fyrir sig mjög fínt og gaf mér ágætis aukapening. En ég var farinn að átta mig á því að ég væri allt of þungur og að það stefndi í hættulegt ástand hvað heilsu mína varðaði. Ég var sem betur fer enn með hnén og mjaðmirnar í lagi, og ekkert bólaði á sykursýki 2 eða öðrum slíkum kvillum sem hrjáir svo marga sem kljást við ofþyngd. Ég púa vindil ein- staka sinnum en reyki ekki að staðaldri. Ég hætti að drekka áfengi fyrir tólf árum síðan, ekki af því að það væri neitt vandamál, ég hætti því af því mér þótti það ekki henta mér lengur. Svo ég mátti því bara heita gott eintak af manni með offitu. En núna var svo komið að ég yrði að fara að snúa við blaðinu.“

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.