SÍBS blaðið - 01.06.2024, Blaðsíða 14

SÍBS blaðið - 01.06.2024, Blaðsíða 14
14 SÍBS-blaðið Hjáveituaðgerð Sveinn Hjörtur var orðinn meðvitaður um þörf á lífsstílsbreyt- ingu - en vendipunkturinn kom þó nokkru seinna eða næst er hann mætti til að gefa blóð í blóðbankanum. „Það hafði ég gert reglulega um margra ára skeið, nema hvað í þetta skipti mældist blóðþrýstingurinn hjá mér svo hár að hjúkrunar- fræðingurinn vildi ekki tappa af mér neinu blóði heldur hvatti mig til að fara beint til heimilislæknis míns og byrja að gera eitthvað í málunum. Heimilislæknirinn fór yfir stöðuna með mér - og þá var ég bara allt í einu kominn af stað í þetta hjá- veituaðgerðarferli á maga. Ég tikkaði enda í öll boxin varðandi skilyrðin fyrir að fara í svona aðgerð: Líkamsþyngdarstuðull- inn (BMI) var alveg uppi í rjáfri, blóðþrýstingur var hár og sykurinn líka þótt ég væri ekki kominn með sykursýki 2. Ofan á mikla þyngd og offitu var ég kominn með ættgengan sjúkdóm sem er þrenging í mænugöngum og miklir bak- verkir. Það var farið að gerast hratt og ég kominn á hækjur og að hluta til í hjólastól. Átti sem sé orðið mjög erfitt með gang. Auk ástandsins á mér var saga um alvarlega sjúkdóma í fjölskyldum mínum, pabbi dó eftir hjartaáfall og mamma úr nýrnasjúkdómi. Ég var svo heppinn að heimilislæknirinn sýndi mér einstakan skilning, gott viðmót og beindi mér áfram á rétta braut í stað þess að segja mér bara að fara út og létta mig, eins og svo margir fá að heyra. Ég fékk viðtal hjá Erlu Gerði Sveinsdóttur offitusér- fræðingi sem þá rak Heilsuborg og Hirti Gíslasyni skurðlækni sem annast þessar hjáveituaðgerðir úti í Svíþjóð. Ég þurfti svo að undirbúa mig mjög rækilega fyrir ferðina út, létta mig og gaumgæfa mataræðið. En lykilatriðið í því öllu saman var andlegi undirbúningurinn, hugarfarið, að stilla sig inn á það sem væri í vændum. Ég fór því í eitt erfiðasta verkefnið - að markþjálfa sjálfan mig! Þar kom verulega að gagni nám mitt og störf sem markþjálfi. Ég skildi vel hversu miklu máli það skiptir að undirbúa sig andlega undir þær breytingar sem fólk á eftir að fara í gegnum við það að undirgangast hjáveituað- gerð, því um leið og maður hefur ákveðið að breyta um lífsstíl og áttað sig á hvað í því felst, þá kemur hitt í kjölfarið. Eins og pabbi heitinn sagði: Ég vil, ég skal, ég ætla ... Þegar þetta er komið inn þá gengur hitt upp. Ef fólk fer í þetta og hugsar: Já, ég ætla að klára þetta - en er ekkert viss um hvað það eigi svo að gera, þá gengur þetta ekki upp. Þá koma mistökin. Ég vann alveg ofboðslega mikið í andlega þættinum, með góðri hjálp að sjálfsögðu, talaði við fólk sem hafði farið í gegnum þetta og undirbjó mig svakalega vel, þó ég segi sjálfur frá.“ Bið vegna Covid Sveinn Hjörtur var orðinn klár í hjáveituaðgerðina þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir snemma árs 2020 og flug- samgöngur til útlanda lokuðust. „Ég bjó erlendis í stuttan tíma og var í auglýsingaverkefni með erlendum aðilum þegar ég varð fastur hér. Lendi í því að bíða bara og bíða eftir að kom- ast út í aðgerðina. Biðin var þannig eiginlega það erfiðasta í þessu ferli öllu saman. Í september 2021 kom allt í einu gat fyrir flug til Svíþjóðar og Hjörtur hringir í mig og býður mér að koma út til sín. Ég rauk af stað í einum grænum og þetta reyndist verða hrika- lega erfitt ferðalag. Ég var þarna aleinn á ferð, 170 kíló og þurfti hálfpartinn að hlaupa alla þessa ganga á flugstöðinni í Kaupmannahöfn, en þaðan er tekin lest yfir til Malmö. Ég þurfti svo koma mér í lestina og labba úr henni á hótelið. Daginn eftir fór ég labbandi, aftur aleinn, og var lengi að finna sjúkrahúsið og var alveg orðinn örmagna er ég mætti loksins þangað. Kófsveittur, hjartslátturinn alveg uppi í rjáfri, með mikla bakverki og þrenginguna í mænugöngunum og ég að fara í þessa stóru og miklu aðgerð. Það þurfti hreinlega að byrja á því að róa mig niður, sem gekk reyndar fljótt og vel því viðmótið hjá Hirti, sem tók á móti mér ásamt svæfingalækn- inum Magnúsi Hjaltalín Jónssyni, var einstakt og skipti öllu. Þótt ég sé stór og víkingur, þá var mjög erfitt fyrir mig að fara einn í svona stóra aðgerð á erlendri grund. Ég var hræddur. Mjög hræddur. Það sem ég kveið meðal annars talsvert fyrir var svæf- ingin, því ég hafði fótbrotnað fyrir allnokkrum árum og fengið afar slæma svæfingu í þeirri aðgerð og vaknað mjög illa. Lungun féllu saman og verkirnir miklir í fætinum. Ég ræddi þetta sérstaklega við Magnús svæfingalækni og man að ég bað hann sérstaklega um að vera hjá mér þegar ég vaknaði eftir hjáveituaðgerðina. Sem hann og gerði og það létti ein- hvern veginn mjög á öllu fyrir mig hversu vel ég kom út úr aðgerðinni hvað þetta varðaði. Ég var svo í tvo daga á spítalanum eftir aðgerðina og kynntist þar fólki sem fór í gegnum sömu aðgerð og ég og er enn í dag í sambandi við tvo þeirra. En þetta gerðist samt allt á svo miklum hraða, sem er hættulegt og það finnst mér ekki í lagi. Og þetta að fara einn út og einn heim. Maður vaknar ekk- ert bara úr aðgerðinni og búinn að missa 50 kíló. Maður var Víkingurinn vígalegi með stingandi úlfsaugun. Ljósm. Mariana MA.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.