SÍBS blaðið - 01.06.2024, Page 19
19
2. tbl. 2024
lyfið Saxenda (liraglutide) meira notað. Auk áhrifa á þyngd
hafa rannsóknir einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á áhættu
hjarta- og æðaáfalla og lengri lifun hjá einstaklingum með
offitu og hjarta- og æðasjúkdóma.
Búast má við því að fjölbreytileiki í lyfjameðferð við offitu
á Íslandi muni aukast á næstu árum vegna þess hversu mörg
lyf eru komin langt í þróun. Stefnt er að því að markaðsetja
lyfið Qsiva (phentermine/topiramat) á næstu mánuðum á
Íslandi en lyfið dregur úr matarlyst. Lyfjameðferð við offitu
er notuð til að koma betra jafnvægi á efnaskipti og þyngdar-
stjórnun. Offitulyf eru ekki megrunarlyf.
Efnaskiptaaðgerðir
Annar meðferðarmöguleiki sem hægt er að bæta við eru
efnaskiptaaðgerðir. Þær efnaskiptaaðgerðir sem notaðar eru
í dag og hafa skilað bestum langtímaárangri eru magahjáveita
(gastric bypass) og magaermi (gastric sleeve). Aðgerðirnar
hafa góð áhrif á þyngd, blóðsykur, blóðfitur, blóðþrýsting og
kæfisvefn til lengri tíma. Einnig finnur hluti þeirra sem fara í
aðgerð fyrir minni stoðkerfisverkjum eftir hana. Mikilvægt er
að einstaklingar sem hafa áhuga á aðgerð fái góðan undir-
búning og séu tilbúnir til að gera breytingar í tengslum við
hana til lengri tíma.
Efnaskiptaðgerðir hafa áhrif á framleiðslu þyngdarstjórn-
unarhormóna. Fyrir utan góð áhrif sem aðgerðirnar geta
haft geta þeim einnig fylgt ýmsir fylgikvillar. Má þar helst
nefna næringarvandamál tengd skertri upptöku á vítamínum
og steinefnum, meltingarfæraóþægindi, hættu á misnotkun
áfengis, þunglyndiseinkenni, blóðsykursfall og sjálfsvígs-
hugsarnir. Mikilvægt er að sinna eftirliti, inntöku vítamína og
bætiefna sem og næringarmálum eftir aðgerð til þess að hún
skili sem bestum árangri. Einnig er mikilvægt að átta sig á því
að skurðaðgerðir við offitu lækna í grunninn ekki sjúkdóminn.
Þyngdaraukning eftir aðgerð er möguleg.
Stigskipt þjónusta
Offita er flókin og langvinnur sjúkdómur. Hann veldur mis-
miklum einkennum og áhrifum á heilsu. Einnig má gera ráð
fyrir því að sjúkdómurinn sé stöðugur á köflum og ekki sé
þörf fyrir sérhæfða eða flóknari meðferð en á sama tíma
geta ýmsir þættir valdið versnun og þörf á meðferð sérhæfðs
teymis.
Skipta má meðferð við offitu í fyrsta, annars og þriðja
stigs þjónustu. Á fyrsta stiginu er litið er til þess að styðja
einstaklinginn til heilbrigðra lífshátta. Slík þjónusta er veitt
innan heilsugæslunnar, til dæmis á heilsueflandi móttökum.
Sumir þurfa meiri stuðning eða meiri vinnu með grunn-
þætti en heilsugæslan getur veitt. Þá koma meðferðarstöðvar
á öðru og þriðja stigi heilbrigðisþjónustu til sögunnar og veita
sérhæfðari meðferð. Sú meðferð felst í ítarlegri greiningu
á orsakaþáttum offitusjúkdómsins, annarra sjúkdóma sem
koma í kjölfarið og síðan meðferð og stuðningi. Í dag er tals-
verður skortur á annars stigs þjónustu á Íslandi en hægt er
að sækja hana til dæmis hjá Mín besta heilsa í Mjóddinni.
Þriðja stigs þjónusta felur í sér sérhæfða þjónustu á
Reykjalundi, í Kristnesi og/eða efnaskiptaaðgerð á vegum
skurðlækna. Mikilvægt er að fagfólk sem sinnir fyrsta stigs
þjónstu vísi fólki áfram á næstu stig við versnun sjúkdómsins
eða þróun fylgisjúkdóma sem þurfa sérhæfða meðferð.
Suðurlandsbraut 4, 3. hæð, 108 Reykjavík
Sími 414 4100 · www.law.is