SÍBS blaðið - 01.06.2024, Síða 19

SÍBS blaðið - 01.06.2024, Síða 19
19 2. tbl. 2024 lyfið Saxenda (liraglutide) meira notað. Auk áhrifa á þyngd hafa rannsóknir einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á áhættu hjarta- og æðaáfalla og lengri lifun hjá einstaklingum með offitu og hjarta- og æðasjúkdóma. Búast má við því að fjölbreytileiki í lyfjameðferð við offitu á Íslandi muni aukast á næstu árum vegna þess hversu mörg lyf eru komin langt í þróun. Stefnt er að því að markaðsetja lyfið Qsiva (phentermine/topiramat) á næstu mánuðum á Íslandi en lyfið dregur úr matarlyst. Lyfjameðferð við offitu er notuð til að koma betra jafnvægi á efnaskipti og þyngdar- stjórnun. Offitulyf eru ekki megrunarlyf. Efnaskiptaaðgerðir Annar meðferðarmöguleiki sem hægt er að bæta við eru efnaskiptaaðgerðir. Þær efnaskiptaaðgerðir sem notaðar eru í dag og hafa skilað bestum langtímaárangri eru magahjáveita (gastric bypass) og magaermi (gastric sleeve). Aðgerðirnar hafa góð áhrif á þyngd, blóðsykur, blóðfitur, blóðþrýsting og kæfisvefn til lengri tíma. Einnig finnur hluti þeirra sem fara í aðgerð fyrir minni stoðkerfisverkjum eftir hana. Mikilvægt er að einstaklingar sem hafa áhuga á aðgerð fái góðan undir- búning og séu tilbúnir til að gera breytingar í tengslum við hana til lengri tíma. Efnaskiptaðgerðir hafa áhrif á framleiðslu þyngdarstjórn- unarhormóna. Fyrir utan góð áhrif sem aðgerðirnar geta haft geta þeim einnig fylgt ýmsir fylgikvillar. Má þar helst nefna næringarvandamál tengd skertri upptöku á vítamínum og steinefnum, meltingarfæraóþægindi, hættu á misnotkun áfengis, þunglyndiseinkenni, blóðsykursfall og sjálfsvígs- hugsarnir. Mikilvægt er að sinna eftirliti, inntöku vítamína og bætiefna sem og næringarmálum eftir aðgerð til þess að hún skili sem bestum árangri. Einnig er mikilvægt að átta sig á því að skurðaðgerðir við offitu lækna í grunninn ekki sjúkdóminn. Þyngdaraukning eftir aðgerð er möguleg. Stigskipt þjónusta Offita er flókin og langvinnur sjúkdómur. Hann veldur mis- miklum einkennum og áhrifum á heilsu. Einnig má gera ráð fyrir því að sjúkdómurinn sé stöðugur á köflum og ekki sé þörf fyrir sérhæfða eða flóknari meðferð en á sama tíma geta ýmsir þættir valdið versnun og þörf á meðferð sérhæfðs teymis. Skipta má meðferð við offitu í fyrsta, annars og þriðja stigs þjónustu. Á fyrsta stiginu er litið er til þess að styðja einstaklinginn til heilbrigðra lífshátta. Slík þjónusta er veitt innan heilsugæslunnar, til dæmis á heilsueflandi móttökum. Sumir þurfa meiri stuðning eða meiri vinnu með grunn- þætti en heilsugæslan getur veitt. Þá koma meðferðarstöðvar á öðru og þriðja stigi heilbrigðisþjónustu til sögunnar og veita sérhæfðari meðferð. Sú meðferð felst í ítarlegri greiningu á orsakaþáttum offitusjúkdómsins, annarra sjúkdóma sem koma í kjölfarið og síðan meðferð og stuðningi. Í dag er tals- verður skortur á annars stigs þjónustu á Íslandi en hægt er að sækja hana til dæmis hjá Mín besta heilsa í Mjóddinni. Þriðja stigs þjónusta felur í sér sérhæfða þjónustu á Reykjalundi, í Kristnesi og/eða efnaskiptaaðgerð á vegum skurðlækna. Mikilvægt er að fagfólk sem sinnir fyrsta stigs þjónstu vísi fólki áfram á næstu stig við versnun sjúkdómsins eða þróun fylgisjúkdóma sem þurfa sérhæfða meðferð. Suðurlandsbraut 4, 3. hæð, 108 Reykjavík Sími 414 4100 · www.law.is

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.