Dögun - 24.06.1946, Side 5
DÖGUN
5
BæjaverkfræS-
ingur.
Meðan enn voru haldnir bæj-
arstjórnarfundir, báru Helgi
Þorláksson og Ingólfur Runólfs-
son fram tilfögu um ráðningu
verkfræðings í þjónustu bæjar-
ins. Tillagan var samþykkt mót-
atkvæðalaust, en því jafnframt
lýst af forseta (Ó. B. B.), að
hér væri alveg nýtt mál á ferð-
inni.
Því miður virðist bæjarstjóri
varla taka þessa samþykkt mjög
alvarlega, því að hann auglýsti
stöðuna aðeins í einu blaði og
með fimm daga umsóknarfresti.
Úr þessu var þó bætt, er flutn-
ingsmenn fundu að þessu á
riæsta fundi.
Síðan vitum við ekki sþguna
meir. Enginn bæjarstjórnarfund-
ur, enginn verkfræðingur.
Það var að vísu vitað og ræki-
lega ábent af flutningsmönnum,
að mikið kapphlaup er um verk-
fræðinga okkar. Siglufjarðarbær
og Isafjörður hafa leyst þessi mál
um stundarsakir með ráðningu
danskra verkfræðinga, og hefur
gefizt vel. Líklegt er þó, að
norskir verkfræðingar mundu
að sumu leyti henta okkur bet-
ur, ef þeirra væri völ, en fram
til þessa hefur enginn hörgull
verið á Dönum til slíkra starfa.
Þær raddir hafa heyrzt, að lítil
þörf væri hér fyrir bæjarverk-
fræðing, verkefni séu allt of fá.
En hvernig var það, átti ekki
að halda áfram með hafnargerð-
ina, hefja fullkomna gatnagerð,
leggja skolpleiðslur, nýja vatns-
veitu, reisa skóla o. s. frv.? Ætli
það fari ekki hér sem víðar, að
sparnaðurinn geti orðið dýrasta
eyðslan? Verkfræðingum getur
auðvitað skjátlazt með einstök
verk, en hvers má þá vænta af
ólærðum?
Þótt skammt sé til Reykjavík-
ur, er það alls ófullnægjandi að
treysta hverju sinni á aðstoð
verkfræðinga, sem þar starfa.
Þeir eru allir önnurii hlaðnir.
Auk þess vœri einmitt ástœða til
að óttast mistök af íhlauþavínnu
þeira hér, þótt gerð vœri af bezta
vilja og getu, sbr. vatnsveituna.'
Slíkir starfsmenn þurfa að vera
nákunnugir staðháttum, veður-
fari o. fl. slíku.
Sumum ^ann að detta í hug,
að rétt sé héðan af að bíða með
ráðningu verkfræðings, unz nýr
bæjarstjóri verður ráðinn, og
sameina þá hvort tveggja í sama
manrti: - '— • ..
Það er, að mínum dómi, mjög
hæpið. Verkfræðiþekking og
hagsýni um stjórn bæjarmála
þarf engan veginn að fara saman,
og er enda ólíklegt, þótt dæmi
finnist gagnstæðunnar.
En sérþekking í tæknilegum
stórvirkjum nútímans er hins
vegar álíka nauðsynleg og sjálf-
sögð og læknisþekking í stað
skottulækninga.
Nýsköpun eSa
niðurrif.
Sósíalistaflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn bjóða fram í
öllum kjördæmum við Alþingis-
kosningarnar 30. júní, og eru
frambjóðendur hvors um sig 61.
Alþýðuflokkurinn býður ekki
fram í Austur-Skaftafellssýslu
og Norður- Múlasýslu, og Fram-
sóknarflokkurinn hefur engan
í kjöri í N.-ísafjarðarsýslu og
Seyðisfirði. Mun hér vera Um
hrossakaup að ræða milli þessara
flokka, og eru þau kannske ekki
furðuleg, þegar þess er gætt, að
ýmsir frambjóðendur Alþýðu-
flokksins eru ákveðnir andstæð-
ingar nýsköpunarinnar og vilja
gjarnan koma í veg fyrir fram-
Iiald núverandi stjórnarsam
starfs.
Vitað er, að enginn flokkur
gengur heill til kosninga fyrir
nýsköpunarstefnuna og fram-
hald hennar, nema Sósíalistar.
Allir vita urn afstöðu Framsókn-
arflokksins. Hann vildi aldrei
vera með og hefur þar ekkert
lært og engu gleymt. Margir
hugðu hinsvegar, að Sjálfstæðis-
flokkurinn leyfði ekki stjórnar-
andstæðingunum að fara fram í
nafni flokksins. Nú eru allir
fimmmenningarnir í kjöri og
Björn Ólafsson að auki í öruggu
uppbótarsæti. Það er því naum-
ast furða, þótt kjósendur spyrji
hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætlist
fyrir að kosningum loknum.
Hann býður þannig fram, að
ástæða er til að óttast afnám ný-
sköpunarinnar, ef kjósendur
verða ekki á varðbergi og fella
afturhaldsmennina.
Alþýðuflokkurinn á sérkenni-
lega sögu í þessum málum. Al-
kunnugt er, ‘ að aðeins fékkst
eins atkvæðis meirihluti í mið-
stjórn hans með þátttöku í nú-
verandi ríkisstjórn. Málgögn
flokksins hafa alla tíð verið
blendin í afstöðinni og sum bein
línis andstæð, svo sem Skutull
o. fl. Framboð Alþýðuflokksins
vekja þó enn rneiri tortryggni.
Þar er t.d. Barða Guðmundssyni,
öruggum styðjanda stjórnarsam-
starfsins, vikið úr vissu sæti, svo
að stjórnarandstæðingur, Hanni-
TILKYNNING
frá Nýbyggingarráði
Nýbyggingarráð hefur nú lokið úthlutun
þeirra vörubifreiða, sem það að þessu sinni
hefur gert ráðstafanir til að komi til lands-
ins.
Frekari umsóknir um vörubíla verða því
ekki teknar til greina að sinni.
Nýbyggingarráð.
TILKYNNING
til útgeröarmanna
Þeir útgerðarmenn, sem hafa í hyggju að leggja upp
síld til söltunar af skipum sínum á þessu sumri, þurfa
samkvæmt 8. grein laga nr. 74 frá 1934 að sækja um
leyfi til Síldarútvegsnefndar.
Útgerðarmenn þurfa í umsóknum sínum að taka fram
eftirfarandi:
Nöfn skipa, stærð, einkennistölur. Áætlað magn til sölt-
unar og hjá hvaða saltanda síldin verður söltuð.
Umsóknir þessar skulu sendar til skrifstofunnar á
Siglufirði og þurfa að vera komnar þangað fyrir 30. júní
1946.
Síldarútvegsnefnd.
bal Valdimarsson, komist á þing.
Til frekari öryggis er stillt á móti
Barða á Seyðisfirði, svo að ör-
uggt sé, að hann nái ekki kosn-
ingu. Ekki verður því sagt, að
Alþýðuflokkurinn gangi heill til
þessa leiks, og er það illt.
Sósíalistar hafa boðið Sjálfst.
og Alþfl.áframhaldandi samstarf,
hvernig sem kosningar fara. Þeir
hafa ætíð gengið heilir að fram-
kværnd nýsköpunarinnar. Hitt
dylst þeim ekki, að enn er engan
veginn náð því marki, sem þessir
andstæðu flokkar hafa sett sér 02:
o
geta náð, þrátt fyrir skoðana-
andstæður. Það ætti að vera
landslýð Ijóst, að nú má ekki
staðnæmast á framfarabrautinni.
Afturhvarf og kyrrstaða býður
þjóðarinnár, ef horfið verður að
fyrri háttum, en menning og vax
andi velmegun, sé traustlega
reist á nýlögðum grundvelli.
„Nýsköpun til sjávar og sveita“
Húseigendur!
Tek að mér allskonar
innan og utan húss
m á 1 u n.
EINAR ÁRNASON
MÁLARAMEISTARI,
Suðurgötu 102.
er kjörorð þessara kosninga, og
Sósíalistaflokkurinn einn ber
það merki við hún. Efling hans
tryggir aukna velmegun þjóðar-
innar.Fellið alla frambjóðendur
afturhvarfsins.
x—y—z
I