Uglan - 30.11.1949, Blaðsíða 2

Uglan - 30.11.1949, Blaðsíða 2
--------------------- UGLAN i — SKOPBLAÐ — Útgefið af nokkrum 4. bekkingum. Abyrgðarmaður: Jóhann Hlíðar, kennari. Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Á V A RP KÆRU LESENDUR, finnst ykkur ekki erfitt ati þurfa í skólann snemma á morgnana? Finnasl ykkur kennslustundirnar ekki lengi að líða? — Areiðanlega finnst ykkur þetta, þó að þið viður- kennið það ekki, þegar kennararnir heyra. Okkur langar til að segja ykkur smásögu, sem við höldum að geti átt við nokkuð mörg okkar. Þegar við loks vöknum, byltum við okkur fram og aftur í rúminu, áður en við árœð’im að opna augun. Með kuldahrolli rísum við upp og lítum á klukkuna í voninni um, að óhcélt sé að sofa 2— 3 mínútur enn. Nei, nú má hafa hraðann á. Skelf- ingu lostnir sprettum við fram úr rúrninu og hheðurn okkur. Enginn tími er til að borða. Við I , þjótum af stað. I flýtinum gœtum við ekki sem skyldi forarpollanna á götunum. Við blotnum í skóhlífalausa fœturna. Ef til vill náum við í tœka tíð. Þjótum lafmóðir og með stírurnar í auguu- um inn í stofuna rétt á undan kennaranum. Ef t.i.l vill verðum við of seinir. Hversu margir eru það ekki, sem stanza úti fyrir skólastofunni og hugsa sig urn, hvorl sé betra að halda áfrain eða snúa við? Fjölmargar augnabiiksmyndir þjóta gcgn- um hug okkar þar, sem við hikum. Illilegt augna- ráð skólasystkinanna. Kennarinn þar, sem hann iyftir pennanum, til að fa;ra inn mínusinn. Og loks skólarneistari lesandi vísitöluna á sal. Þessa óláns vísitölu, sem ekki rná fesla í stað Icaup- gjaldsvísitölunnar. Hins vegar er rúmið, ylvolgt og lokkandi. En þar ber skugga á, grafalvarlegir menn með hitamœlir að voptii. Við opnum dyrnar og lœðumst inn. Er þetta ekki það, sem Egla kallar hrœðslu- gœði? Kennslustundirnar eru svo langar, eins og bið- in er yfirleitt. Við verðum að eyða tímanum. Eitt- hvað verðurn við að hafa fyrir stafni. Bréfaskrift- ir, skvaldur og jafnvel svefn og spilamennska er ekki óalgengt í tímurn. Títuprjónn, cirkill og krítarmoli, til að kvelja með sessunautinn, eru kœrkomin leikföng. Einnig hafa skólablöðin stóru hlutverki að gegna á þessu sviði. Með þau. í hönd- um. líður tíminn hraðast, og raunirnar gleynvisi, helzt. Tvö blöð hafa komið út í skólanurn urn nokk- urt skeið. Þau eru efalaust góð á sínu sviði, en við œtlum ekki að líkja eftir þeim með þessu blaði okkar. „Englendingar segja, sko: Variety is the spice of life.“ Það er nokkuð til í því. Við höfum í hyggju að sýna ykkur broslegri hlið skólalífsins og jafnframt þá auvirðilegri í margra aitgum. Við viljum veita ykkur vöku- meðal í sögu- og dönskutímana, og koma brosi fram á varir ykkar á alvarleguslu augnablikum laiínu- og stœrðfrœðitímanna. Það er von okkar, að þið lakið vel þessari við- ieitni, til að hressa skap ykkar, sem ekki skrópið, á alvörustundum skólalífsins. Megi „UGLAN“ sem lengst verða ykkur andlegt hressingarmeðal! NOKKRIR 4. BEKKINGAR. UGLAN

x

Uglan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uglan
https://timarit.is/publication/1948

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.