Læknaneminn - 01.04.2022, Síða 8
Á liðnu starfsári Lýðheilsufélagsins er
helst einn viðbuður sem stendur upp
úr, uppáhalds viðburður nýbakaðra
læknanema, Bangsaspítalinn. Ekki gekk
eftir, þrátt fyrir vonir félagsmanna, að halda
Bangsaspítalann á sínum hefðbundna tíma
í september. Hann var í staðinn haldinn
þann 30. apríl síðastliðinn. En hann var
ekki með öllu hefðbundnu sniði í ár þar
sem tvöfaldur árgangur bangsalækna tók
þátt og voru upp undir 15 bangsalæknar á
hverri stöð á hverjum tíma. Læknanemar
sem ekki fengu Bangsaspítala á skólaárinu
20202021 tóku þátt ásamt fyrsta árinu. Því
var lagt upp með að auglýsa viðburðinn
vinnu fundi um sýklalyfjaónæmi, lofts lags
breytingar og gervigreind í læknisfræði.
Félagið hélt áfram uppi starfi Sjálfselsk þetta
árið og efldum við til þriggja léttra ganga á
skólaárinu.
Við gengum upp Mosfell, við Rauðavatn
og héldum jólagöngu með piparkökum,
kakó og ljúfum tónum í Heiðmörk. Þar að
auki héldum við, í samstarfi við Svefn ráð
stefnu, gjafaleik og gáfum þar tvo miða á
ráð stefnuna ásamt „Af hverju sofum við?“
bókum eftir Matthew Walker.
Bestu þakkir fá stjórnarmeðlimir fyrir
vel unnin störf og frábært samstarf.
vel og nýjar leiðir til þess nýttar svo sem
instagram story sticker. Mikill skortur var
á reyndum bangsalæknum þetta árið til
þess að manna heilsugæslustöðvarnar þrjár
og leituðum við því á náðir reynsluboltans
Sifjar Snorradóttur og kom hún okkur til
bjargar. Vel var mætt á viðburðinn, fengu
allir bangsalæknar að spreyta sig og fengu
góðan tíma með hverjum bangsa.
Í nóvember sendi félagið þrjá full trúa;
Melkorku Sverrisdóttur, Höllu Kristjáns
dóttur og undirritaða á FINO, árlega
ráð stefnu læknanema á Norðurlöndum.
Yfirskrift ráðstefnunnar var „Framtíð
læknis fræðinnar“ og sóttu fulltrúar okkar
6
Katrín Kristinsdóttir
Formaður Alþjóðanefndar 2021–2022
Anna Karen Richardson
Formaður Lýðheilsufélagsins 2021–2022
Alþjóðanefnd
Lýðheilsufélagið
Starfsárið 20212022 hefur snúið að endur
uppbyggingu skiptináms læknanema
eftir heimsfaraldur. Líkt og árið áður sá
Landspítalinn sér ekki fært að taka á móti
erlendum skiptinemum sumarið 2021. Hins
vegar fóru tveir íslenskir læknanemar í
mánaðarlangt skiptinám það sumar og
voru áfangastaðirnir Portúgal og Rúmenía.
Þá var einnig endurvakning á því að
íslenskir nemar sætu ráðstefnur erlendis
og fjáröflunarbingó Alþjóðanefndar var
haldið í fyrsta skipti í þrjú ár. Aðalfundur
nefndarinnar var haldinn í lok september á
KEX Hostel.
Meðlimir Alþjóðanefndar hafa verið
duglegir að sækja ráðstefnur erlendis á
starfsárinu. Í nóvember 2021 fór öflugur
LÆKNANEMINN
hópur 10 íslenskra læknanema til Osló á
ráðstefnu á vegum FINO (e. Federation of
International Nordic medical students
́ Organizations) og meðal þeirra var
undirrituð. Í mars 2022 fór svo 7 manna
sendinefnd til NorðurMakedóníu á
marsfund (e. March Meeting) IFMSA
(e. International Federation of Medical
Students ́ Associations). Þar á meðal voru
fjórir meðlimir Alþjóðanefndar; Birta Rakel
Óskarsdóttir, Íris Brynja Helgadóttir, Jenný
Jónsdóttir og Katrín Wang.
Fjáröflunarbingó Alþjóðanefndar var
haldið á Stúdentakjallaranum þann 6. apríl
en viðburðurinn er mikilvæg tekjulind
nefndarinnar sem og auglýsing fyrir
starfsemi hennar. Kvöldið var einstaklega
vel heppnað og fóru margir heim með
flotta vinninga, enda uppsafnaður fjöldi frá
síðustu árum. Kynnar voru þau Aðalbjörg Ýr
Sigurbergsdóttir og Jón Gunnar Kristjónsson
sem stóðu sig frábærlega og héldu uppi
geggjaðri stemningu.
Helsta áskorun þessa starfsárs fólst í
endurvakningu skiptináms eftir heims
faraldur. Á þeim tveimur árum sem skipti
námið hefur ekki verið starfrækt hér á landi
hafa verið gerðar breytingar á starfsfólki
spítalans, þar með talið þeirra sem hafa
hingað til haldið utan um skiptinám á
vegum Alþjóðanefndar. Unnið var að því
að byggja upp samband Alþjóðanefndar,
Landspítalans og Læknadeildar að nýju og
náðist mikilvægur áfangi með undirritun
Stofnanasamnings um skiptinám lækna
nema við HÍ. Í sumar stefnum við á að taka
á móti 19 erlendum skiptinemum, 8 í júlí
og 11 í ágúst. Nefndin hefur unnið hörðum
höndum að því að undirbúa komu þeirra og
skipuleggja skemmtiprógram fyrir sumarið.
Alls munu fjórir íslenskir læknanemar fara
í skiptinám í sumar en áfangastaðirnir eru
Ítalía, Króatía og Svíþjóð.
Mig langar að þakka meðlimum
Alþjóðanefndar fyrir glæsilegt starfsár og
sömuleiðis kynnum á fjáröflunarbingói fyrir
frábæra frammistöðu.