Læknaneminn - 01.04.2022, Blaðsíða 17
15 Taugaþroskafrávik hjá börnum
alla jafna nýburaviðbrögð sem eru ósjálfráð
við brögð taugakerfisins við ýmsu áreiti.
Eftir því sem barnið verður eldra hverfa
þessi viðbrögð og ættu þau að vera horfin að
mestu við 6 mánaða aldur. Eftir þann tíma
taka við varnarviðbrögð barnsins þar sem
það ber til dæmis fyrir sig hendur ef það
er að falla úr sitjandi stöðu. Þróun varnar
viðbragða hjá barni eru talin vera mikil
vægur þáttur í hreyfiþroska þess og frávik
í þeim viðbrögðum kalla eftir nánari eftir
fylgni á hreyfiþroska barnsins.3 Eftir farandi
einkenni hvetja til nánara mats á þroska
stöðu barnsins:
• Velta sér milli hliða fyrir 3 mánaða aldur.
• Krepptir lófar 3 mánaða.
• Nýburaviðbrögð greinilega til staðar eftir 6
mánaða aldur.
• Önnur höndin ríkjandi fyrir 18 mánaða
aldur.
Viðvarandi táganga.
Samkvæmt erlendum rannsóknum eru
um 56% barna með frávik í samhæfingu
hreyfinga og jafnvægi sem hefur áhrif á þau
dags daglega. Samkvæmt ICD10 flokkast
þessi frávik undir hreyfiþroskaröskun. Þessi
börn eiga í erfiðleikum með fínhreyfingar
og/eða grófhreyfingar og hreyfifærni er
ekki aldurssvarandi. Þessum frávikum
fylgja oft erfiðleikar við að tileinka sér nýja
hreyfi færni eins og að hjóla á reiðhjóli og/
eða reima skó.29 Hreyfiþroskaröskun tengist
stundum víðtækari frávikum í taugaþroska
þar sem helst má nefna einhverfurófsröskun
og/eða athyglisbrest með ofvirkni.30
Heilalömun
Heilalömun (cerebral palsy) er algengasta
tegund hreyfihömlunar meðal barna
og kemur fram hjá um 1 – 3/ 1000 lifandi
fæddra barna. Um helmingur barna með
heilalömun fæðist fyrir tímann. Birtingar
mynd heilalömunar kemur fram vegna
truflunar á stýringu hreyfinga líkamans.
Einkenni barnsins eru þó mun víðtækari
þar sem frávik í öðrum þroska sviðum,
svo sem vitsmunaþroska, mál þroska
og félagsþroska eru tíð. Orsök truflana
í starfsemi heilans má yfirleitt rekja til
skemmda í miðtaugakerfi barnsins sem
orðið hafa á fósturskeiði þó einnig geti sama
birtingarmynd komið fram eftir áföll í
fæðingu eða snemma á lífsleiðinni. Greining
á heilalömun fer yfirleitt fram á fyrstu
aldursárum barns en fer þó eftir alvar leika
einkenna. Mikilvægt er að útiloka aðrar
ástæður fyrir frávikum í hreyfifærni. Oft
sjást ákveðnar breytingar á segulómun af
höfði sem samrýmast heilalömun eins og
til dæmis hvítefnisbreytingar hjá fyrir
burum og breytingar á heilavef í kjölfar
súrefnis skorts. Heilalömun er flokkuð eftir
vöðvaspennu, eðli hreyfinga og útbreiðslu
einkenna. Langalgengasta formið er
stjarfalömun (spastic paralysis) þar sem
vöðvaspenna er aukin í útlimum. Stjarfa
lömun er síðan flokkuð í helftar lömun,
tvenndarlömun eða fjórlömun eftir því hver
dreifing einkenna er.3134
Málþroski
Málþroski er talinn vera einn besti mæli
kvarðinn á vitsmunaþroska barns. Frávik
í málþroska geta verið fyrstu einkenni
víðtækari þroskafrávika eins og einhverfu
rófsröskunar, þroskahömlunar og
heyrnar skerðingar.35, 36 Einnig gæti verið
um kjörþögli (selective mutism) að ræða
hjá eldri börnum en þá tjáir barnið sig í
ákveðnum aðstæðum en tjáir sig lítið sem
ekkert í öðrum.37 Ef barn þroskast eðlilega
að öðru leyti gæti verið um afmarkaða
málþroskaröskun að ræða. Samkvæmt
erlendum rannsóknum eru 1015% tveggja
ára barna með seinkaða máltöku en
aðeins 45% barna við þriggja ára aldur
sýna merki um málþroskafrávik.38, 39
Mikilvægt er að meta heyrn þeirra barna
sem sýna frávik í málþroska og kort leggja
málþroska þeirra með mati tal meina
fræðings. Frávik í málþroska geta birst sem
frávik í málskilningi, máltjáningu og/eða
málnotkun. Einnig eru til frávik í fram
burði og flæði í máltjáningu. Barn sem er
með frávik í málþroska við 5 ára aldur er
í aukinni hættu á lestrarerfiðleikum og
öðrum námserfiðleikum. Einnig eru börn
með frávik í málþroska í aukinni hættu á
félags legum erfiðleikum og tilfinningavanda
síðar á lífsleiðinni. Þegar frávik í málþroska
eru metin skyldi alltaf hafa í huga að leita
eftir einkennum einhverfurófsröskunar.
Börn með afmörkuð frávik í málþroska sýna
samskiptum/leik við jafnaldra meiri áhuga
en börn á einhverfurófinu gera alla jafna.38
Félagsþroski
Áfangar í félagsþroska eru nátengdir
áföngum í málþroska. Fyrstu samskipti
nýburans við umhverfi sitt er með augn
sambandi og brosi og eru það dæmi um
óyrt samskipti. Barnið hermir eftir leikjum
annarra og verður smám saman meiri þátt
takandi í leikjum og samskiptum jafnaldra.
Eftir því sem barn eldist aukast kröfur
umhverfisins um þátttöku í samskiptum og
skilningur á málnotkun (pragmatic language
skills) verður mikilvægari.3
Einhverfurófið
Einhverfurófsröskun er röskun í tauga
þroska sem einkennist af frávikum í
félagslegum samskiptum, tjáskiptum og
sér kennilegri og áráttukenndri hegðun.
Þetta þroskamynstur kemur fram á fyrstu
aldursárum barnsins. Einnig eru oft til
staðar frávik í skynúrvinnslu, þar sem
Fósturskeið Burðarmálsskeið Eftir fæðingu
Erfðaþættir Fyrirburafæðing Sýkingar
Vímuefni og lyf Sýkingar Höfuðáverkar
Sýkingar Heilakvilli af völdum súrefnisþurrðar Heilaæxli
Byggingargallar Höfuðáverkar Efnaskiptagallar
Skerðing á blóðflæði og næringarflutningi Efnaskiptavandamál Umhverfisaðstæður
Tafla III. Orsakir fyrir taugaþroskaröskunum.
Mynd 3. Uppvinnsla vegna gruns um
taugaþroskaröskun.
• Myndgreining (ómun af höfði,
segulómun)
• Heilarit
• Erfðarannsóknir
• Mænuvökvi
• Blóðrannsóknir
• Mænuvökvi
• Próf- og matstæki til að meta
þroskastöðu, hegðun og líðan